Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1994, Blaðsíða 9
Laura, skip Sameinaða gufuskipafélagsins, í höfninni í Stykkishólmi.
Ljósm.: Magnús Ólafsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar.
ísfiskur og póst-
ur til Englands
Bréfaskriftirnar héldu áfram. Drechsel skrifaði
Tryggva 26. febrúar 1895. Hann segir það
gleðja sig að byrjað sé að búa í haginn fyrir
fiskveiðarnar eftir þeim óskum sem hann
hafí borið fram í Reykjavík síðastliðið sumar.
I fyrstu grein um þetta
efni var greint frá upphafi
bréfaskipta Tryggva
Gunnarssonar og C.F.
Drechsels, sjóliðsforingja,
hjá fiskveiðifélaginu Dan
í Kaupmannahöfn.
Eftir HAUK SIGURÐSSON
Erfitt hafi reynst að fá keypt skip sem
hæfilegt væri til að flytja frystivörur en þó
voni hann allt hið besta. Gangi það eftir
muni skipið sigla strax til Önundarfjarðar.
Skipin Cimbria og Dania muni sigla þegar
í mars og í byrjun apríl muni Cimbria geta
farið sína aðra ferð. Skipið komi þá við í
Reykjavík á leiðinni til íslands. Skipið muni
flytja fisk fyrir gufuskip, skútur o.fl. auk
þess að taka fisk í Reykjavík. Skipið fái af
söluverði fyrir flutninginn þegar kostnaður-
inn við söluna hafi verið dreginn frá. Það
sé því lægra verð en Tryggvi geti um í
bréfi sínu.
Ríkisstjórn Dana sendi fiskifulltrúa til
Englands og muni hann fylgjast með fisksöl-
unni. Það eigi að skapa öryggi sem ekki sé
á fisksölumörkuðunum. Tryggva biður hann
að láta Bagger skipstjóra vita í hvaða ferð-
um skipið eigi að koma til Reykjavíkur.
Mikill styrkur yrði að því ef félagið fengi
nokkur þúsund krónur fyrir póstinn því að
byrjunin yrði erfið og tap fyrstu árin. Drec-
hsel segist munu ganga á fund ráðherra
íslandsmála, eins og Tryggvi hafi lagt til.
Honum þyki gott að heyra að vatnið úr
Tjörninni hafi reynst hreint. Ekki segist
hann geta fullyrt hve mikið menn vilji borga
fyrir ísinn en gerir ráð fyrir að það verði
7-8 kr. tonnið, kominn um borð í skip.
Heppilegt sé ef Cimbria geti fengið nokkurn
ís í tilraunaskyni. Drechsel líst vel á hug-
mynd Tryggva að skipið flytji vörur auk
íssins, þótt plássið geti orðið lítið þar sem
hillur og frystiklefar séu í skipinu. Einnig
að skipið taki vörur í Reykjavík ef tími verði
nægur.
Hvernig á Að Verja
FISKINN?
Drechsel segist nú leita bæði að Christ-
ensen og Steen, en Tryggvi hafði í bréfinu
frá 2. febrúar beðið hann að leita upplýs-
inga um fiskflutningana hjá Christensen
konsúli sem var í stjórn ísfélagsins.
Drechsel telur ágætt að verja ís með hálmi.
Norðmaður sem þekki til þessara mála hafi
sagt sér að sag einangri ágætlega. Þegar
nota eigi ísinn sé nóg að sprauta því af.
Túnþökur séu líka heppilegar efst. Nú sé
allt í góðum undirbúningi, en koma þurfi í
veg fyrir að samkeppni verði um ísinn og
fiskflutningana. Félagið hafi ekki ráð á að
láta Cimbriu sigla með ónógan fisk. Þess
vegna hafi félagið samið við þrjú ensk gufu-
skip sem flytji fyrir það fisk á erlendan
markað. Landshöfðingi hafi leyft þetta. í
bréfi hans segi að erlend skip sem veiði á
íslandsmiðum megi koma fiskinum á flutn-
ingaskip.
Samkeppnin Hræðir
Drechsel segir að ekki sé hægt að veiða
á Islandsmiðum nema að hafa slíkt leyfi frá
stjórnvöldum. Hér muni ýmis skip fá leyfi
til að veiða. Hætta sé á því að erlend félög
fái danskt félag til að kaupa skip með frysti-
klefum, því verði lagt á einhverjum fjarð-
anna og keppi við fiskveiðafélag Drechsels.
Eða að erlent félag fái einhvern kaupmann
til að koma upp ísgeymslu. Hann spyr síðan
hvort ekki sé ástæða til að setja lög sem
banni útlendingum öðrum en Dönum að
flytja veiði sína inn fyrir landhelgismörk
Islands til að salta fiskinn, leggja hann í ís,
umskipa honum eða færa hann til með öðr-
um hætti. Með slíkum lögum sé hægt að
bjarga þessu máli danska fyrirtækisins. I
raun segist Drechsel ekki óttast að útlend-
ingar komi á fót veiðistöðvum á íslandi.
Hann vill beina því til Tryggva Gunnars-
sonar að hann tali við yfirvöld í Reykjavík
um þetta mál. Ekki sé nauðsynlegt að leggja
fram lagafrumvarp fyrr en Ijóst sé næsta
sumar hvort fyrirtækið beri sig eða ekki.1
Hvernig FÁ Skal Leyfi Til
AðFlytjaPóst
Nokkrum dögum síðar skrifaði Drechsel
Tryggva enn þar sem póstskipið Laura var
þá enn ófarið frá Höfn. Vildi hann segja
Tryggva hvað hefði gerst í þessu fiskflutn-
ingamáli frá því að hann skrifaði síðasta
bréf. Þar segir hann að félagið Dan hafi
keypt seglskip, sem beri nafnið Roma, frá
Noregi fyrir 15.000 kr. Skipið verði sent til
Önundarfjarðar með 750 tonn af ís. Skip
félagsins muni koma til Islands undir lok
mars.
Þennan dag, 4. mars, segist Drechsel
hafa gengið á fund íslandsráðherra og leit-
að eftir því að félagið fengi áðumefnda póst-
flutninga um Vestfirði og póstþjónustu við
Austfírði að haustinu. Ráðherra hafi talið
vai-hugavert að koma þessum liðum inn í
fjárlagafrumvarpið. Alþingi geti þá fundið
ástæðu til að hafna þeim. Heppilegra sé að
beiðni komi frá samtökum verslunarmanna
í Reykjavík og almennum borgurum. Málið
komist síðan í hendm- landshöfðingja sem
muni mæla með málinu við stjórnina. Drec-
hsel segir að það fari eftir því hve mikið
fáist af vörum hvort skipið sigli til Reykja-
víkur. Póstflutningarnir eigi að vera fjár-
hagstrygging ef tap verði á fiskflutningun-
um. Heimdallur sé gott flutningaskip og
eigi nú að koma í stað Diönu.2
íslandsráðherra hefur áttað sig vel á þvi
að á Alþingi var rótgróin tortryggni í garð
Dana og því mikilvægt að beiðnin kæmi frá
íslendingum eða mönnum sem hagsmuni
hefðu á Islandi ef málið ætti að ná fram
að ganga. Frá okkar sjónarhóli virðist þetta
einnig vera lýðræðislegri leið, en eflaust
hefur það sjónarmið ekki verið efst i huga
hins danska ráðherra.
ILLT AÐ TAPA í TVÖ ÁR
I bréfi 13. mars til stjórnarformanns
Danfélagsins spyr Tryggvi hvort félagið vilji
kaupa af ísfélaginu flyðru og rauðsprettu
næsta sumar ef félagið geti tryggt að hið
danska félag fái vörur vikulega. Hann seg-
ist geta boðið 8-9 aura pundið af heilagfiski
og rauðsprettupundið á 5 aura. Ef fiskveiði-
félagið sé ekki ánægt með þetta verð þurfi
að semja um nýtt verð í Reykjavík.
Tryggvi segist reiðubúinn að þola eitt-
hvert tap á fisksölunni eins og varð síðastlið-
ið ár þegai' skip fiskveiðafélagsins fluttu
fiskinn á markað í Englandi. En félagsmenn
ísfélagsins séu ekki reiðubúnir að taka á
sig annað tap, mestallur höfuðstóllinn hafi
farið í fyrra. Hann segist þó vilja gera allt
sem hann geti til þess að aftur verði selt á
erlendum markaði. Þó að ísfélagið muni
ekki þéna mikið á því þá muni fátækir sjó-
menn hafa sitt lífsviðurværi af þessu.3
í marslok þetta ár 1895 skrifaði Tryggvi
Drechsel enn bréf. Þar segir hann að vet-
urinn hafi verið óvenjumildur og ísskortur
hrjái félagið. Þetta ár geti ísfélagið ekki
selt Dan nægan ís. En næsta ár reyni hann
að tryggja nægan ís.
Laura stansi svo stutt í höfn að ekki gef-
ist tími til að ræða við kaupmennina. En
hann muni beita áhrifum sínum á Alþingi í
sumar sem best hann geti. Dan muni fá
sömu þóknun fyrir fiskflutninginn eins og
veiðiskipin hafi borgað. En magnið verði
lítið, hér séu menn áhugalausir og sumir á
móti málinu.'
FlSKSALAN VERÐUR AÐ
Borga SIG
Þessu bréfi Tryggva svarai' Drechsel svo
2. júlí. Þar segir að formaður Danfélagsins
sendi nú til Reykjavíkur beiðni um framlag
til póstflutninga af Vestm-landi til Hull á
Englandi. Þetta sé talsverður póstm-.
Það hafi glatt sig mjög að Cimbria hafi
flutt mikinn fisk frá Reykjavík. En mark-
aðurinn hafi því miður verið óhagstæður en
hann voni að fyrirtækið verði samt báðum
aðilum til góðs. Ef frystur fiskur verði flutt-
ur verði að koma fyrir frystiklefa í Cimbr-
iu. En hann vilji þó fyrst reyna hvernig
gangi að flytja ísaðan fisk á markað í Hull,
þai' sé hann í góðu verði.
Ef rætt verði á Alþingi að fiskveiðifélagið
sé í samvinnu við Englendinga þá sé það
aðeins svo að varan sé seld á enskum mark-
aði, bæði fiskur og ís. Þetta sé talið nauðsyn-
legt því að sala á fiski með Cimbriu borgi
ekki kostnað. En hugmynd hans sé að
Cimbria fái allan sinn fisk frá dönskum
veiðiskipum verði þau nógu mörg á ís-
landsmiðum.5
ÍSFÉLAGIÐTAPARÁ
Lúðusölu á Englandi
Þegar Ti'yggvi svarar Drechsel 23. júlí
segist hann hafa séð tilboð Carls stjórnar-
formanns Danfélagsins til Alþingis um póst-
flutningana frá Vesturlandinu til Hull. Hann
segir Drechsel að hann sé formaður fjár-
hagsnefndar Alþingis og hafi mælt með því
við nefndarmenn sína að félagið fái 5.000
ki'. styrk vegna póstflutninganna. Ef skipið
komi til Reykjavíkur vikulega telur Tryggvi
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. MARZ 1994 9