Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1987, Síða 12
Lengrigerðin af sjöunni er auðkennd með 735ÍL. HUðarmyndin sýnir velútlitsbreytinguna, enda hefur loftmótstöðustuð-
ullinn verið bættur verulega, ernúna 0,32. Þessi lengda gerð er 11,4 cm lengri en hin.
Ný sjöa
frá
B M W
Frágangur og útfærsla á smáatriðum
í hæsta gæðaflokki. Leðuráklæðið á
sætin verðuraðpanta sérstaklega, en
rauðviðurinn íhurðunum er alltaf með
íkaupunum.
Samkeppnin er hörð í
hæsta verðflokki bíla
og þar hefur Mercedes
Benz 40% af markaðn-
um. Með nýju sjöunni
gerir BMW harða at-
lögu, sem virðist ætla
að heppnast.
Gagnstætt venju breytingaglaðra bílaframleið-
enda í Japan og Bandaríkjunum, sem skipta
um ytra byrði bíla sinna á eins til tveggja ára
fresti, láta vestur-þýskir kollegar þeirra sér
nægja að gera róttækar útlitsbreytingar á 7-8
ára fresti að jafnaði. Því þykir það nokkrum
tíðindum sæta þegar BMW kemur nú loks
með nýja útgáfu af 7-línunni fram á sjónar-
sviðið, þá fyrstu eftir að framleiðsla sjöunnar
hófst árið 1977.
EFTIR JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON
Að vanda er ekki um neinar stökkbreyt-
ingar að ræða hjá Bæjurunum. Ekki bara
vegna þess að þeir eru í eðli sínu íhaldssam-
ir, heldur lét einnig forstjóri BMW, Eberhard
von Kuenheim, hafa eftir sér fyrir nokkrum
árum að eiginlega framleiddu BMW þegar
svo góða og fallega bíla að öllum breyting-
um yrði að vera haldið innan þröngs ramma.
Þessi framleiðslufílósófía hans Eberhards
er í hávegum höfð í nýju sjöunni. Engar
breytingar hafa verið gerðar í útliti sem
kynnu að styggja augað. Engar stórtækar
breytingar hafa heldur orðið á og í inn-
volsinu. Eiginlega er á öllum sviðum um
að ræða hægfara þróun á þeim hlutum sem
þegar eru fyrir hendi. Þróun sem þó er
nógu markviss og hraðfara að engum dylst
að með tilkomu endumýjaðrar 7-línu er
BMW að gera ákveðna tilraun til þess að
komast inn á umráðasvæði S-línunnar frá
Mercedes Benz. Ef marka má umsagnir virð-
ist þessi tilraun bara hafa tekist nokkuð vel.
Arangurinn er líka í samræmi við þá
dagskipun sem gefín var þegar ákveðið var
að fara út í smíði nýrrar sjöu: „Þetta á að
verða besti bíll í sínum flokki" — svo aftur
sé vitnað í nefndan von Kuenheim. Og ef
við hugum að því hvaða flokk hann á þama
við kemur í ljós að hann fylla bflar eins og
Ferrari, Porsche, Jaguar, Rolls Royce og
svo vitanlega S-línan frá Mercedes. Talið
er að salan sé ekki nema um 250.000 ein-
tök á ári í þessum háklassa bflismans og
þar ræður Mercedes-Benz þegar um 40%
markaðshlutdeildarinnar. Því skyldi maður
ætla að þama verði ekki feitan gölt að flá
fyrir BMW og allt sé þetta byggt á einu
heljarinnar miklu bjartsýniskasti. En BMW
hefur víst aldrei skort sjálfstraustið.
Þegar vagninn með V-12 vélinni, 750i
og 750L, kemur á markað næsta haust má
búast við að keppinautamir megi vara sig.
Allavega gefa uppgefín verð þessara glæsi-
vagna til kynna að BMW stefni hátt, ætli
sér að seilast undir koddann hjá helstu
auðkýfíngum heims. Verð dýmstu útgáf-
unnar, 750ÍL Spezial (L stendur fyrir lengri
gerð), er áætlað 130.000 vestur-þýsk mörk
frá verksmiðju, eða tæpar 3 millj. íslenskra
króna. Verkamannaútgáfuna, 750i, má hins
vegar fá fyrir aðeins 98.000 mörk.
Nýja sjöan ku standa sérdeilis vel fyrir
sínu í öllu því sem aksturseiginleika varðar.
Unnið hefur verið að endurbótum á öllum
undirvagninum, ijöðrunarbúnaði, fóðringum
og upphengjum hjólabúnaðar svo og í smíði
og frágangi yfírbyggingar. Ennfremur hefur
verið bætt við upplýsinga- og notkunar-
möguleika borðtölvunnar og rafeindabúnað-
arins sem greinir ákveðnar bilanir í
öryggisbúnaði bflsins. í þeim eftium er þó
hætta á að leikgleðin og ljósadýrðin yfír-
keyri að einhveiju leyti notagildið, eins og
stundum vill henda hjá Japönum.
Þá er komið að þeim hluta bflsins sem
gerir hann að þessu meistarastykki hvað
aksturseiginleika varðar, vélinni. 3,5 lítra
vélin í 735i bflnum hefur orð á sér fyrir að
vera besta 6 strokka vélin í sínum stærðar-
flokki sem nú er á markaðnum. Reyndar
hefur BMW ávallt haft góðum vélahönnuð-
um á að skipa en engu að síður ber það
þessari deild innan BMW góðan og órækan
vitnisburð að vél sem fær slíka einkunn
skuli hafa verið hönnuð fyrir meir en 20
árum, en hún kom fyrst fram á sjónarsviðið
árið 1968.
Vélahönnuðir BMW hafa enn einu sinni
farið höndum um 3 og 3,5 lítra vélamar
með góðum árangri. Með aukna hagkvæmni
að leiðarljósi hefur megináherslan verið lögð
á þijú atriði, minnkun loftmótstöðu við inn-
sog og útblástur, nákvæmari og hraðari
bruna eldsneytis og fullkomnari rafeinda-
stýringu kveikitímans. Það er Motronic-
búnaðurinn, sérhannaður af Bosch fyrir
BMW, sem sér um þá hlið málsins. Nú hef-
ur bæst enn einn þátturinn við í þessari
stýringu, hægagangshraðastýring sem held-
ur snúningshraðanum jöfnum og gerir
vélinni kleift að snúast aðeins 700 sn./mín.
í hægagangi.
Greinilega hefur árangur þessara aðgerða
skilað sér, því að úr 3,5 lítra vélinni fást
nú 220 hestöfl. Þessir 220 hestar ná að
Útlitsbreytingin er einkum fólgin íþví,
að kílformið hefur lítið eitt verið aukið
og allar línur mýktar án þess að fórnað
væri svipmótinu, sem alltaf einkennir
BMW.