Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1983, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1983, Blaðsíða 14
Matthías Johannessen Mynd af Marilyn Monroe látinni 1. Horfin frá hvítu ljósi og himni sem lék sér í silki- mjúku hári og augum horfin frá alþekktum vanga yfirgefnum sem jörðin án sólar stjarna og yls horfin þeim augum sem eitt sinn voru tvær lýsandi sólir og svipbrigðalausri ásjón horfin þér sjálfri og síðan veit enginn hvers er að vænta svo yfirgefin sem jörðin án sólar stjarna og himins og augu þín negldir hlerar á einmana húsi, án glugga horfin þér sjálfri og öðrum sem áttu samleið, en kvöddu sem fugl kveðji heiðar á hausti. 2. Sem þytur af væng á hausti kom dauðinn á miðju sumri og sótti vorið á vanga vorið í augum þínum stjörnum sem hættu að blika á leið inní okkar myrkur inní það hvíta myrkur sem leysist sundur að lokum í gulri sól sem er svörtust. 1) Sbr. Lesbók Mbl. 30. júlí sl. Framhald af bls. 13 valdamiðstöðvar í landinu, önnur i suðurhlutanum en hin í norður- hlutanum, og urðu þetta síðar sjálfstæð konungsríki. Landið var sameinað aftur árið 2040 f.Kr. undir sterku hervaldi, en þjóðfé- lagsástandið hélzt mjög ótryggt. Árið 1991 f.Kr. hófst annað gull- aldartímabil Forn-Egyptalands. Var þjóðfélagið nú byggt upp á velskipulögðu eftirlitsmannakerfi. Efnahagur ríkisins var sterkur, og ráðist var í miklar framkvæmdir. Voru áveituskurðir víða grafnir, og reist voru glæsileg musteri og konungshallir. Aðeins fáeinir pýramídar voru nú byggðir. Voru þeir úr grófgerðum múrsteini, en múrhúðaðir að utan. Voldugustu mannvirkin voru reist úr kalk- steini, sem skorinn var niður í smá hleðslusteina. Síðan voru mörg þessara mannvirkja rifin niður og efnið úr þeim notað í aðr- ar byggingar. Frægasta mann- virki Miðríkisins var völdunarhús- ið mikla Labyrint, sem löngu er eyðilagt. Musterið í Der-el-Bahari í Þebu, hinni nýju höfuðborg landsins er langmesta mannvirki Miðríkisins, sem varðveizt hefur. f tengslum við musterið var reistur pýramídi, sem stóð á steinpalli, en grafhýsi var höggvið inn í mikið bjarg, sem musterið stóð við. Hnignun Miðríkisins hófst um 1786 f.Kr. og stóð í tvær aldir, áður en Nýríkið var stofnað árið 1567 f.Kr. Vegur Forn-Egyptalands reis hæst á fyrri hluta Nýríkisins. Tímabilið einkennist einkum af alþjóðahyggju og hernaðarmætti. Var föstum atvinnuher fljótlega komið á fót, og urðu Forn-Egyptar mikið herveldi, sem átti víða mik- illa hagsmuna að gæta. Stríðs- fangar voru nú teknir í stórum stíl og hnepptir í þrældóm. Var vinnu- framlag þeirra ákaflega þýðingar- mikið við byggingu hinna mörgu og íburðarmiklu mannvirkja, sem var nú ráðizt í. Helmingi stærra en Péturskirkjan í Róm Margir konunganna gerðu það að venju sinni að þakka guðinum Ammon stærstu sigurvinninga sína með því að reisa honum bygg- ingar við hið stórfenglega Amm- onmusteri í Karnak, skammt frá Þebu. Þarð þetta að lokum eitt al- stærsta mannvirki jarðarinnar, og t.d. um helmingi stærri en Pét- urskirkjan í Róm varð síðar. Kon- ungarnir létu nú ekki reisa sér lengur grafhýsi, heldur voru þeir grafnir í sérstökum grafreitum í Konungadal, andspænis Þebu. Tútmósis 3. (1481—1448 f.Kr.) var mestur herkonunga Forn-Egypta, og náði auðlegð landsins hámarki í stjórnartíð hans. Ríkidæmið leiddi hins vegar af sér ýmis konar spillingu í þjóðfélaginu. Konung- urinn lét reisa og ljúka við mörg musteri í landinu, þeirra á meðal var musterið í Lúxor fyrir sunnan Þebu. Að Tútmósis 3. látnum tóku Iknatón og kona hans Nefritíte við ríkinu. Afnámu þau átrúnað á hina fornu guði. Landsmenn fóru hrakfarir í orrustum, en enn komst losung á ríkið. Ramses 2. (1304—1238 f.Kr.) lét reisa fjöl- mörg musteri og ýmis konar minnismerki. Að honum látnum seig enn á ógæfuhliðina hjá Forn- Egyptum, og féll Nýríkið árið 1075 f.Kr. Tóku klerkarnir nú öll völd í sínar hendur, en Egyptaland greindist í mörg smáríki. Biðu landsmenn ósigur í mörgum orrustum á næstu öldum, og var ástæðan m.a. sú að ekkert járn- grýti fannst í Egyptalandi, en þjóðir þær, sem Egyptar áttu í ófriði við, voru búnar mun full- komnari vopnum úr járni. Ass- ýríumenn herjuðu á Egyptaland, og lögðu þeir Þebu í rúst árið 666 f.Kr. Persar lögðu allt landið und- ir sig árið 525 f.Kr. og laut Egyptaland stjórn Persakeisara um eina öld. Alexander mikli stofnaði borg- ina Alexandríu við Nílarósa, og gerði hann hana að höfuðborg beimsveldis síns. Varð borgin miðstöð grískrar menningar og bárust grísk áhrif inn í allt landið. Risastór viti við hafnarminni Al- exandríu var eitt sjö furðuverka fornaldar. Margar glæsilegar byggingar voru reistar í borginni, og bárú þær flestar grískt yfir- bragð. Við dauða Kleópötru drottningar, árið 30 f.Kr., varð Egyptaland rómverskt skattland og var það fram til ársins 395. Rómversku keisararnir létu reisa margar ágætar byggingar í land- inu og reyndu að koma sér vel við landsmenn, sem þá voru ennþá meðal mestu kornræktarþjóða heims. Þegar Þeódósíus mikli fyrirskipaði kristna trú í öllu róm- verska beimsveldinu árið 381, var fjölda egypzkra mustera breytt í kirkjur, og ennfremur var mikið reist af nýjum kirkjubyggingum. Varð oft úr þessu furðuleg blanda byggingarstíla. Hinn nýi siður veitti hinni gömlu byggingarhefð endanlega banahöggið. Egypta- land laut Miklagarðskeisara fram til ársins 650, en féll þá í hendur Araba, og landsmenn tóku íslamska trú. Verða íslömskum arkitektúr í Egyptalandi gerð skil síðar. 14 Guð gefi þér gleðilegt sumar Þessi svipmynd úr bæjarlíf- inu, sem ég hef dregið upp úr fórum mínum, er sannarlega komin til ára sinna, hún er frá þeirri tíð þegar Hafnarfjarðar- vagnarnir höfðu aðsetur sitt á sjálfu Lækjartorgi. — Ritað 1946. Það var í vor að ég þurfti ein- hverra heiðarlegra erinda vegna að bregða mér út úr bænum. Um sjöleytið að morgni var ég kom- inn á torgið, en það var hvoru- tveggja í senn of snemma og of seint til þess að ná í strætis- vagninn samstundis, svo ég varð að bíða. En ég var ungur og mér leið vel og lá ekkert á. Vorkyrrðin ríkti í borginni. Túnblettirnir í miðbænum voru farnir að grænka. Enn var umferðin ekki teljandi. Einstaka verkamaður, léttklæddur, með kaffitösku í annarri hendinni hraðaði sér í átt til hafnarinnar. En á einum bekkjanna á torginu sat mið- aldra maður, dálítið hniprings- lega, eins og hann væri ekki nema að hálfu leyti tilheyrandi vökunni. Ég skipti mér auðvitað ekkert af honum, heldur sneri ég augum mínum að þeirri fegurð dagsins, sem lá ofar hinu mannlega. En hann ... Hann hafði auð- vitað uppgötvað mig og kallaði til mín. Ég gerði ráð fyrir því að þetta væri einn af hinum venjulegu fimmtíuaurabetlurum, sem ætíð eiga svo brýn erindi suður í Hafnarfjörð, en skortir farar- eyri og villast svo að jafnaði inn á einhverja kompu niður við höfn, þegar aurarnir eru komnir í lófa þeirra. Það getur orðið út- dráttarsamt fyrir menn með ábyrgðartilfinningu og kannski ekki of mikil fjárráð á erfiðum tímum, að sinna slíku kvabbi. Ég tók því ávarpi hans fálega í fyrstu. En hann var nú ekki á því að gefast upp og hélt því áfram að klappa steininn. Veðrið var nú líka svo gott og í rödd hans var ekki þessi alþekkti uppgerð- ar smeðjuhreimur, sem maður á nú svo oft að venjast hjá svona fólki. Ég labbaði því til hans, ábúðarmikill og þegjandi. Þetta var veðurbarinn sjómaður á fimmtugsaldri. Hann rétti mér hönd sína til kveðju, þykka og siggharða. — Áttu eldspýtu, sagði hann. Wagner Frh. af bls. 5. að viðhalda og magna þá skoðun óafvitandi með Wagnersdýrkun sinni fyrir hönd Þriðja ríkisins. Enda telja margir músíkina rammfasíska. Orsakir fordóma þessara eða hugmyndatengsla segir Magee vera að finna í því, að Wagner tjái hvatir, er aðrir listamenn láta jafnan liggja í láginni, hvatir, er t.d. hníga að sifja- spelli og morði á fjölskyldumeð- limum. 1. þáttur „Valkyrjunnar" fjallar t.a.m. um ástir tvíbura- systkina. Slíkar hvatir eru fljótt bældar niður í uppeldi barna, enda lúta þær að þyngstu „tabúurn" eða forboðum samfélagsins. Sam- kvæmt niðurstöðum nútíma sálfræðinga haldast hvatir þess- ar eftir sem áður í undirmeðvit- undinni undir vissu fargi, sem leitt getur til tilfinningalegrar streitu. Um þetta er lítt hægt að veiða úr músíkinni einni, enda er hún „merkingarlaus", eins og Strav- insky á að hafa orðað það, nema hvað megi álykta út frá hug- myndatengslum vegna leiði- stefja, eins og áður var ritað. Ef menn vilja vefengja tilvist slíkra huggulegheita í verkum Wagners, má t.d. benda á söng- texta „Hringsins", þar sem hjá- svæfelsi systkinanna Siegmunds og Sieglinde í lok 1. þáttar „Val- kyrjunnar" er greinilega litið velþóknunaraugum af sjálfum Valföður (Wotan): „Hvað gerðu þau af sér, að unnast hér um vorið?“, þó að spúsa hans, Frigg, maldi í móinn, enda hjóna- málaráðherra Ásgarðs. Þá vill ekki betur til en að Óðinn fellst á að refsa Siegmund, sem er raunar sonur hans og Jarðar (Erda), fyrir legorðsbrotið og drepur hann (!) á meðan á ein- vígi Siegmunds og Hundings stendur. Inntak músíkdramans, segir Magee, er unnið að miklu leyti með hliðsjón af lögmálum, er fyrst voru skýrgreind hálfri öld síðar af brautryðjendum dulsál- arfræðinnar. En það er í hljómsveitinni, sem sálarátökin í tónlist Wagners eiga sér stað. Á máli Freuds mundi söngvar- inn fara með „Ego“ en hljóm- sveitin með „Id“. Það „hættu- lega“ við tónlistina er, að hún smeygir sér framhjá „censorn- um“, þ.e. meðvitaðri dómgreind áheyrandans, ef svo mætti taka til orða, meðan „tabúum" text- ans er hafnað af siðgæðisástæð- um. Er nema von, að æri óstöð- ugan, er hann gefst ósjálfrátt á vald frumstæðra tilfinninga, er tengjast athæfi, sem bæld hafa verið niður frá því er hann man eftir sér! Mörgum áheyranda finnst hann kynnast innra manni í fyrsta skipti, er hann gefur sig Wagner á vald. En það fer þó væntanlega eftir því hvernig honum líkar þau kynni, hvort hann á eftir að hata „umboðs- mann heimsendis" eða elska. — R.Ö.P.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.