Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1983, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1983, Blaðsíða 9
Frank er mexíkanskur málari, þótt hann búi i Tucson og hann er einn af fáum, sem tekizt hefur að halda hinu bernska svipmóti; er með öðrum orðum naivisti. Til vinstri: Veggmynd af mannlífinu í mexíkönskum smábæ. Tii hægri: Bóndi raeð kerru og asna. Við hús þeirra Önnu og Franks í Tucson. Hér er gott að hafa byrgi til að skýla sér fyrir sólarhitanum. Til hægri: Maja og Metta með geitina Trillu. myndskreyttur og hvert sem lit- ið er má sjá styttur skornar í við eða höggnar í grjót innan um pálma, kaktusa og fíkjutré. í þessum sælureit býr geitin Trilla, en Anna var kölluð Trilla á sínum bernskuárum á Akur- eyri. Þarna eru einnig 15 hænsni, tveir hanar og dúfur, sem steypa sér í kollhnís, sér og öðrum til skemmtunar. Frank er listamaður eins og áður sagði, en listfengi er Önnu einnig í blóð borin. Hún er dótt- ir Sverris Haraldssonar listmál- ara og Sigrúnar Gunnlaugs- dóttur listakonu og kennara, en Sigrún rak eina fyrstu og skemmtilegustu listmunaversl- un, sem ég man eftir, Dimma- limm á Skólavörðustíg. „Ég er Bandaríkjamaður og ekkert annað,“ segir Frank þeg- ar ég spyr hann um ætt hans og uppruna. Þegar Bandaríkja- menn eru að gefa út yfirlýsingar um að þeir séu af þessu þjóðar- brotinu eða hinu þá hafa þeir í 99% tilfellum á röngu að standa; flestir vita í raun ekkert hverra ættar þeir eru. Frank er borinn og barnfæddur í Tucson, en bjó í mörg ár í bernsku í Son- ora, sem er sá hluti Mexíkó sem snýr að Arizona. Kynntust á íslandi Hvar rákust svo leiðir Tuc- sonbúans og Akureyringsins saman? „Við hittumst á íslandi, nán- ara tiltekið í Reykjavík og ég held að það hafi verið mitt stóra lán að hafa ekki aðeins kynnst Bandaríkjamanni heldur líka manni frá Tucson,“ segir Anna og brosir hýru brosi. „Allt frá því að ég var unglingur langaði mig að komast burt frá íslandi.“ Svipur Önnu verður alvarlegur: „Ég vissi satt að segja ekki hvert ég vildi fara eða hvað ég vildi gera, ég vildi bara komast burt. Mér fannst mjög gaman að alast upp á Akureyri hjá afa og ömmu, en eftir að ég fór að stálpast og fluttist suður til Reykjavíkur, settist að mér eitthvert vonleysi. Mér fannst tækifærin svo fá fyrir mann- eskju eins og mig og alltof mikið eftirlit með öllu, boð og bönn. Ég gleymi aldrei þeirri frels- istilfinningu, sem fór um mig fyrst eftir að ég kom hingað. Ef mig langaði til dæmis að kaupa mér nýjan kjól síðdegis á laug- ardegi gat ég bara labbað mig í næstu búð. A íslandi voru búðir lokaðar á laugardögum. Sama var að segja um sjónvarpið. Hér var enginn menningarviti eða siðanefnd, sem ákvað fyrir fólk, hvað það ætti að horfa á í sjón- varpinu. Ég gat horft á rusla- myndir er þannig lá á mér og ef mig langaði til. Og aldrei hefði ég getað haft geitur og hænsni inn í miðri Reykjavík. Kannski fannst mér best af öllu, að hér gat ég verið ég sjálf óáreitt. Klætt mig eins og mér sýndist og gert það sem mig langaði til, án þess að fiskisagan væri flogin. Ég man til dæmis alltaf eftir því þegar ég var fjór- tán ára og var að fikta við að reykja með vinum mínum í sjoppu á Akureyri. Amma var búin að frétta af því áður en ég kom heim. Nágrannakonan hafði séð til mín og hringt í ömmu! — Og hér er hver og einn eins og hann er sjálfur en ekki eftir því hverra manna hann er. Ég hegða mér nú sennilega á svipaðan hátt og ég hefði gert á íslandi — lifi siðprúðu og sóma- samlegu lífi,“ bætir Anna við og brosir rétt sem snöggvast, „en það er bara ekki þessi þrúgandi tilfinning; hér geri ég hluti til að þóknast sjálfri mér, fyrst og fremst, en ekki öðrum. Á betri stað hefði ég varla getað lent. Tucson er yndisleg borg. Hér gætir sterkra menn- ingaráhrifa bæði frá Mexíkön- um og indíánum, sem setja sér- stæðan og skemmtilegan svip á mannlífið. Veðurfarið er með eindæmum gott, sól og hiti næstum allt árið og náttúrufeg- urð mikil. Fjallasýnin hér minn- ir mig á einhvern undarlegan hátt á ísland, kannski er það þess vegna, sem ég kann svona vel við þennan berangur og þessar miklu víðáttur." Á valdi Bakkusar „Ég verð þó að viðurkenna að viðhorf mitt til íslands og ís- lensks þjóðfélags mótaðist að sumu leyti af mínum einka- ástæðum. Það var mikil drykkja í kring- um mig; fyrir mér var það næst- um eðlilegt ástand að vera full- ur og ég byrjaði snemma að drekka. Við Frank héldum því áfram allt of lengi eftir að við komum hingað." Anna lyftist í stólnum og það gætti örlítils ákafa í rödd hennar. „Ég vil endilega láta þetta koma fram, það er svo mikilvægt að aðrir sem eiga við drykkjuvandamál að stríða, fái að heyra að hægt er að rífa sig upp úr drykkju- skap með aðstoð annarra og eig- in vilja. Við drukkum viðstöðulaust og vorum andlega, tilfinningalega og fjárhagslega á hausnum, ef svo má að orði komast. Við sáum ekki fram á neitt. Frank 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.