Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1983, Side 13
Þóra Jónsdóttir
ÁSTRÖND
Éggeng í íjörunni
innan um rekann.
Eitt sinn kom fley nærri ströndinni
það var kallast á kveðjum
ég var að handleika
mjólkurhvítan glerhall
græn seglin hurfu hratt
við kúptan hafflötinn.
Með aðfalli kom hafáttin.
Hvítfextar bárur hrópuðu til mín
ekki koma fleiri skip
út
flöskuskeyti
kann brimið að færa á land
eftir höfuðdag.
Elísabet Jökulsdóttir
Á ÍSAFIRÐI
sumir dagar eru betri en aðrir dagar
sérstaklega þeir dagar sem mér eru færð
önnur eins björg í bú
og í dag
mér var færður saltfiskur og kinnar
jólakaka
og rækjur
nú er saltfiskurinn soðinn
jólakakan komin á disk
rækjurnar í salat
og ég er að bíða eftir léttvínsflöskunni
ÓÐURINN TIL
VINNUNNAR
stend uppá endann
allan daginn
vex ásmegin
hægra megin
þorskur karfi lúða koli
langa keila steinbítur
ýsa var það heillin
og dagurinn líður við syrpurnar
leiðara tilkynningar
storm fyrir vestfjörðum
og tunglskin í trjánum í indlandi
hver dagurinn af öðrum
stundum gerist eitthvað
sem kryddar hverdaginn
eftilvill kviknar í ruslafötunni
inní smókherbergi
eða einhver er með óvenjustóran
sogblett á öðrum fæti
eða einhver sker sig ífingurinn
dettur á gólfinu og
hryggbrýtur sig
eða lendir í roðflettivélinni
og síðan í hausunarvélinni
Þóra er frá Laxamýri í S.-Þingeyjarsýslu, en hefur lengst af búið í
Reykjavík. Hún hefur gefiö út 3 ljóðabækur og sú fjórða kemur út f
bráðlega. Ljóð hefur einu sinni birst eftir Þóru í Lesbók.
Elísabet Jökulsdóttir (Jakobssonar) er ung Reykjavíkurstúlka, en býr
nú á ísafirði. Ljóð hafa oft birzt eftir hana í Lesbók. j
Mót-
mælt
á
Lækjar-
torgi
Snemma í júlímánuði kom til íslands í
opinbera heimsókn varaforseti Bandaríkj-
anna, George Bush. ísland var áttunda og
síðasta landið sem hann heimsótti í
Evrópuferð sinni að þessu sinni. Ferðin var
farin til að treysta vináttubönd við þjóðir í
Vestur-Evrópu og að kanna afstöðu ríkis-
stjórna til hugmynda Bandaríkjamanna um
varnir Vesturlanda.
Varaforseti Bandaríkjanna var ekki fyrr
kominn til íslands að nokkur samtök
kommúnista með Alþýðubandalagið í far-
arbroddi efndu til útifundar á Lækjartorgi
oggöngu að loknum fundi um Lækjargötu
að Laufásvegi með ályktun frá fundinum. í
ályktuninni, sem afhent var í bandaríska
sendiráðinu, var heimsókninni mótmælt.
Doktor Ólafur Ragnar Grímsson, prófessor
hélt aðalræðuna á útifundinum og var stór-
orður ígarð Bandaríkjamanna. Auk hans
komu fram á útifundinum nokkrir ræðu-
menn og hópur söngvara, sem oftast er
mættur þegar þarf að hvetja liðið til dáða.
Þarna var samankominn sá hópur manna
sem aldrei lætur sig vanta í mótmæla-
aðgerðir er beinastgegn Atlantshafsbanda-
laginu og bandaríska herliðinu á íslandi og
er jafnan í felum eða hreinlega týndur þeg-
ar sovésku heimsvaldasinnarnir ráðast
gegn alþýðu Afghanistan, PóIIands eða
annarra landa þar sem sovéskt hernám er
við lýði.
Þögn Alþýðubandalagsins, Fylkingarinn-
ar, Samtaka herstöðvaandstæðinga, EI
Salvador-nefndarinnar á íslandi og ann-
arra skildra samtaka um glæpi Sovét-
manna í Afghanistan, Póllandi og Austur-
Evrópu er hávær og sker í eyru. Sú þögn
þarf ekki að koma neinum á óvart. Greini-
lega er ekki sama hvort stórveldið á hlut að
máli og áróðurinn gegn Bandaríkjunum er
áberandi í öllu starfi fyrrnefndra samtaka.
Það heyrir til undantekninga ef fram kem-
ur einhver gagnrýni á Sovétríkin og það
skelfilega stjórnkerfi sem þar ríkir og
traðkar á grundvallarmannréttindum.
Margt fer aflaga í lýðræðisríkjum Vest-
urlanda. Efnahagslegt misrétti er því mið-
ur víða áberandi ásamt atvinnuleysi og
margskonar glæpir tíðir. Gagnstætt því
sem gerist í Sovétríkjunum, kommúnista-
ríkjum í Austur-Evrópu, Asíu og Kúbu þá
eru þó öll helstu mannréttindi virt á Vest-
urlöndum og þar eru frjálsir fjölmiðlar,
frjáls gagnrýni í blöðum, útvarpi og sjón-
varpi. Slíkt frelsi í Sovétríkjunum og
Austur-Evrópu myndi þýða ósigur flokks-
ins, ósigur sósíalismans, afnám kerfisins,
RAI3I3
fall einræðisaflanna. Á Vesturlöndum eru
útifundir og kröfugöngur daglegur viðburð-
ur. Kommúnistar hafa kunnað að notfæra
sér áróðursgildi útifunda og kröfugangna.
Þeir samræmdu aðgerðir í Vestur-Evrópu
vegna heimsóknar George Bush og víða
kom til alvarlegra átaka milli vopnaðra
fylkinga mótmælanda og lögreglu. Það fara
ekki sögur af slíkum mótmælaaðgerðum
þegar sovéskir ráðamenn eru í heimsókn á
Vesturlöndum og líklegt að mótmælahreyf-
ingarnar séu þá inní skógi eða upp til fjalla
í náttúruskoðun.
Án styrks og forystu Bandaríkjanna
fyrir lýðræðisríkjum Vesturlanda nú á tím-
um er heimsbyggðin í mikilli hættu vegna
yfirgangs og útþenslustefnu Sovétríkjanna.
Það er staðreynd sem vert er að hafa í
huga. Fjölmargir heimskunnir sovéskir
listamenn sem flúið hafa til Vesturlanda á
siðustu árum hafa kvatt stjórnmálamenn
og almenning til að halda vöku sinni og láta
ekki blekkjast af friðartali sovéskra vald-
hafa. Margir listamannanna hafa dvalið ár-
um saman í fangaklefum í Gulageyjaklas-
anum vegna andstöðu sinnar við einræðið
og þeir þekkja af eigin raun það kerfi lyga
og svika sem einkennir hið sósíaliska þjóð-
félag.
Mótmælaaðgerðirnar á Lækjartorgi og
við Laufásveg 5. júlí síðastliðinn fengu
dræmar undirtektir. Samstarf ogsamvinna
Islands og Bandaríkjanna í öryggis- og
varnarmálum innan Atlantshafsbanda-
lagsins hefur frá fyrstu tíð reynst farsælt
og báðar þjóðirnar hafa notið góðs af. Mót-
mælahópurinn sem kemur reglulega saman
og hrópar vígorð gegn Bandaríkjunum fær
lítinn hljómgrunn meðal íslendinga. Aðild
Islands að Atlantshafsbandalaginu og vera
bandaríska herliðsins á íslandi á stuðning
meðal meginþorra þjóðarinnar. Það eru
blikur á lofti. Sovétríkin hafa komið upp
neti kafbáta við íslandsstrendur og hafa
mjögaukið hernaðarumsvif á hafinu kring-
um landið og gegn slíkri ógnun er ekki vit-
urlegt að gera ísland varnarlaust. Sú tíð
kann að koma að Sovétríkin verði til viðtals
um að láta af árásarstefnu sinni. Þá en ekki
fyrr kemur til mála að mínu áliti að endur-
skoða stefnu okkar í öryggis- og varnarmál-
um. Það horfir ekki friðvænlega í heiminum
nú á tímum, samt vona menn að þeir tímar
komi að hér á landi verði ekki þörf erlends
varnarliðs. Framtíð heimsins er undir því
komin að hernaðarbrjálæðinu Ijúki sem
fyrst.
Ólafur Ormsson
13