Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1983, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1983, Side 16
Ljósmyndin, þessi undragripur, sem franska rithöfundinum Marcel Proust fannst jafn unaðsleg og koss, kemur okkur stöðugt á óvart. þögul, vottar hún eitthvað sem hefur gerst í liðinni tíð. Ljós- myndin er horfið augnablik. Úr þátlð í nutíð Við gleymum því oft að það er ekki svo ýkja langt síðan að ljósmyndavélin var fundin upp. Þó að listamaðurinn og hugvits- maðurinn Leonardo da Vinci hafi rutt brautina á 16. öld með uppgötvun sinni „La camera obscura" til að auðvelda lands- lagsmálverkið, var það ekki fyrr en öldum síðar, árið 1822, að fransmaðurinn Nicéphore Niépce gerði hana að raunveru- leika. Uppgötvun ljósmyndarinnar vakti mikinn úlfaþyt á þeim góðu tímum og miklar umræður spunnust í kringum hana, meðal annars um listrænt gildi henn- ar. Þessar deilur virðast fjar- stæðukenndar í dag þó eflaust hafi verið grundvöllur fyrir þeim þá. En þó að ótrúlegt megi virðast eimir enn dálítið eftir af þessum deilum hjá einstaka að- ilum. Einnig yfirsést mörgum áhrifamáttur ljósmyndarinnar á aðrar listir. Tækniþjóðfélög nútímans eru búin að gera okkur að algjörum ljósmyndaneytendum. Ahuginn fyrir ljósmyndinni hefur aldrei verið meiri og aldrei hafa bið- raðirnar verið lengri fyrir fram- an sýningarnar hér í París. Það má segja að ljósmyndavélin sé orðin skriffæri tuttugustu ald- arinnar. Frétta-, heimilda-, tízku- og list- rænar ljósmyndir Víst er að við köllum „ljós- myndun“ hinn volduga og ört vaxandi iðnað sem framleiðir vélar, filmur og annað slíkt sem notað er til ljósmyndunar. Við tölum einnig um „ljósmyndara" þegar við auðkennum iðju at- vinnumanna jafnt sem áhuga- manna. Þó að Ijósmyndavélin sé öllum aögengileg og tæknileg framleiðsla ljósmyndanna sé mjög lík, (án þess að tala um sérhæfða þekkingu,) samanber auglýsingu Kodak „Ytið á takk- ann, við sjáum um afganginn", — þá er ekki þar með sagt að allar ljósmyndir séu gerðar með sama hugarfari. Prétta- og heimildaljósmynd- un er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að miðla upplýsingum um tiltekna frétt eða atburð til áhorfandans — endurspegla lið- inn atburð á sem raunveru- legastan hátt. Sumir frétta- og heimildaljósmyndarar hafa sér- staklega næmt auga fyrir myndbyggingu og meðferð fyrir- myndar, og tekst þannig oft að Valentino 1978. Eftir Deborah Turbeville. Laufey Helgadóttir París, höfuðborg Ijósmynda- listarinnar. Þannig hefjast flest- ar greinar í Parísarpressunni um „Le Mois de la Photo“, Ijós- myndamánuðinn, sem stendur nú sem hæst. Nafn hátíðarinnar er rangnefni, vegna þess að í raun og veru spannar hún þrjá mánuði, nóvember, desember og janúar. Þessi Ijósmyndamánuður er annar sinnar tegundar í París, hinn fyrri var haldinn árið 1980 og vakti svo mikla athygli, að ráðist var í að halda hann annað hvert ár upp frá því. Fjöldi sýn- inganna hefur þrefaldast frá síð- ustu hátíð. Öll söfn borgarinnar og einkagallerí eru undirlögð Ijósmyndum. Áttatíu Ijósmynda- sýningar á sjötíu mismunandi stöðum. Allar greinar Ijósmynd- arinnar eru sýndar, allt frá gömlum heimildarmyndum frá 19. öld fram til þess allra nýj- asta, þ.e.a.s. þess sem er.að ger- ast í ljósmyndun í dag. Einnig hafa verið skipulagðir umræðu- fundir vítt og breitt um borgina, þar á meöal í Sorbonne-háskól- anum, um sögu, stöðu og framtíð Jjósmyndarinnar. Það er Parísarborg sem stendur að baki þessari veiga- miklu hátíð og skrifar Chirac borgarstjóri inngang í katalóg- inn, sem gefinn var út í tilefni viöburöarins. Persóna 1970. Myndröð um hégóma eftir Duane Michals. Leyndardómar ljósmyndarinnar Ljósmyndin, þessi undragrip- ur, sem franska rithöfundinum Marcel Proust fannst jafn un- aðsleg og koss, kemur okkur stöðugt á óvart. Hún er hvort tveggja í senn, full af yfirnátt- úrulegum leyndardómum og opinskáum skírskotunum. Með uppgötvun ljósmyndavélarinnar tókst manninum loksins að láta hinn aldagamla draum sinn rætast, að stöðva tímann. Ljósmyndin hefur löngum haft það orð á sér að vera sú listgrein eftirmynda, sem stæði næst raunveruleikanum. Ljós- myndin er i eðli sínu „súrreal- ísk“, vegna þess að sá „veru- leiki" sem hún opinberar er aldrei hinn sami og sá sem við upplifum eða sjáum. Hinn 83 ára gamli ljósmyndari Brassai, sá sem Henry Miller kallaði „Auga Parísar" endurtekur sí- fellt þegar hann ráðleggur ung- um ljósmyndurum: „Reynið að vera eins hlutlægir og þið getið, þið verðið hvort sem er alltaf of huglægir.“ Ljósmyndin, þessi nálægi áþreifanlegi hlutur, takmarkað- ur í tíma og rúmi er líka minn- ing um fjarveru. Kyrrstæð og Ljósmyndahátíð í París

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.