Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1981, Qupperneq 2
Drekalandiö
BHUTAN
Fariö aftur í forneskju
/
Sturia Friöriksson segir frá
ferö til þessa fjarlæga lands.
Hér birtist fyrsti hluti af þremur
Hinn heimsfrægi fjallagarpur Sherpinn
Tenzing var leiðsögumaöur fimmtán
manna hóps, sem feröaöist um fjallahér-
uöin Nepal og Bhutan á vegum Alþjóöa
dýrafriðunarsamtakanna WWF haustiö
1977.
í þessum hópi var ég og Sigrún kona
mín. Vió höfðum dvalizt um vikutíma í
Nepal og notiö leiðsagnar Tenzings á
göngu í hlíöum Mt. Everest og heimsótt
þjóógaröinn í Chittawan, sem er í frum-
skógum undir hlíðum Himalajafjalla.
Síóan höfum viö fiogiö frá höfuöborg-
inni Kathmandu á lítinn flugvöll austur
viö landamæri Indlands, og förum þaöan
akandi eftir hinni frjósömu sléttu, sem
árnar Ganges og Brahmaputra hafa
myndaö. En þœr eiga upptök sín í
Himalajafjöllum, önnur í austri, en hin í
vestri og falla samhlióa suöur um Bangla-
desh út í Bengalflóa.
Mergö af indversku sveitafólki gengur
á vegkantinum og bílstjórinn flautar í
sífellu. Viö ökum framhjá vegamótunum
til Bagdogra og fáum hádegisverö í litlu
veitingahúsi vió þorpió Sidaguri, síðan
endurtekur sama sagan sig, margra tíma
ökuferö í hita og raka austur eftir
sléttunni upp undir fjalllendió í noröri þar
til komið er aó landamærum Bhutan. Þar
er tollskoóun og eftirlit, en ekki sérlega
tafsamt, því við höfum fengiö tilhlýöilega
vegabréfsáritun, vegna þess aö viö erum
í sérstakri nefnd á vegum alþjóóastofn-
unar. En annars er mjög torvelt aö fá leyfi
til ferðar um landiö. Hér er allur annar
bragur á fólki og híbýlum en var bæöi í
Indlandi og Nepal. Fólkiö hefur svolítiö
mongólskan svip, en er mjög myndarlegt
og yfirvegað í bragöi, hreinlegt og
kurteist. Þeir sem hér búa eru kallaöir
Bhuitiar og eru skyldir Tíbetbúum og tala
svipaóa tungu, enda voru áóur mikil
viöskipti milli þessara landa.
Bhutan má
telja lokaö land
Bhutan liggur austast af þremur smáríkj-
um í Himalajafjöllum. Vestan viö þaö er
Sikkim, sem nú lýtur indverskri stjórn, en
vestast er Nepal, sem er sjálfstætt kon-
ungsríki. Öll hafa þessi ríki verið mjög
einangruð vegna legu sinnar hátt í fjöllum.
Á seinni árum hafa Nepal og Sikkim opnað
landamæri sín fyrir feröamönnum, en
Bhutan má enn teljast lokaö land, og fram
á síðustu ár hefur ekki veriö fært inn í
landiö nema á múlösnum um illfæra
fjallaslóöa. Landiö er fremur strjálbýlt. Þar
búa um milljón manns á svæöi, sem er á
stærö viö Sviss. Að noröan iiggja landa-
mæri þess aö Tíbet, sem Kínverjar ráöa
yfir, en aö sunnan liggur þaö aö Indlandi,
sem á þar landræmu noröan við Bangla-
desh.
Þar sem landið liggur í suöurhlíðum
Himalaja er mikill munur á loftslagi ein-
stakra svæða. Suöur viö Indland er
Dura-sléttan, sem er þakin frumskógi og
2
Leiösögumenn klæddir í kho að bhut-
önskum siö.
illræmd fyrir rakt og heitt loftslag. Síöan
taka viö fjallakambar, og aö baki þeim er
miöhálendiö, sem er frjósamasta svæöiö
meö hæfilegri úrkomu, en noröur af því
taka viö brattir dalir og loks hinir hæstu
fjallgarðar og snæviþaktir tindar viö landa-
mæri Tíbet.
Landamærabærinn Phuntsholing er út-
vörður þjóðbrautarinnar, sem liggur inn í
landiö. Hér lá gamall slóöi eöa einstigi, sem
höggviö var í gegnum hinn þétta frumskóg
aö undirhlíðunum. Síöan þræddi vegurinn
gljúfurbotninn og hlykkjaöist upp á milli
fjallanna. Vegfarendur þurftu helzt aö fara
fótgangandi, því víöa var illfært meö hross
á tæpum sneiðingum og klungri gilbotna.
Ekki þótti þaö bæta öryggi eöa ánægju
vegfarenda, aö í skógunum voru tígrisdýr,
og sléttusvæöiö moraöi í moskitóflugum
og blóösugur héngu í hráblautum trjágrein-
um og létu sig falla á þá sem um skóginn
gengu. Leiðin upp aö bæjunum á miöhá-
lendinu var löng og erfiö ferð. Nú er hins
vegar nýlega lokiö viö aö leggja akfæran
veg upp eftir fjöllunum, og hin forna sex til
tíu daga lestarferð er nú ekin á sex til sjö
tímum, en leiöin er um 250 km löng. Ungir
skólapiltar eru komnir til þess aö sækja
okkur feröalanga, og aka nú af staö meö
okkur í nokkrum fólksbílum. Sagt er aö í
landinu séu um 50 bílar, sem allir eru taldir
vera í ríkiseign. Viö ökum skammt upp fyrir
bæinn og aö gistihúsi, sem reist er viö
fjallsræturnar.
Eftir næturdvöl í þessum landamærabæ
Sherpinn Tenzing Norgay, sem ásamt
Hillary kleif fyrstur Mt. Everest 1953.
er lagt af staö í hina löngu fjallaferö. Þessi
nýi vegur er mikiö mannvirki, sem hlykkjast
æ hærra upp í fjöllin, síöan eru þræddar
fjallseggjar og hlíöar, en gapandi gil og
djúpir dalir eru huldir þokuböndum hiö
neðra.
Lágvaxnir hestar
og svört loöin svín
Bændur eru meö kýr í skógi og loðin
svört svín, þeir reka stálpaöa gripi en bera
kiðlinga í strákörfum á baki sér. Þarna eru
einnig lágvaxnir hestar svipaöir íslenzkum
hestum aö stærö en heldur mjóslegnari.
Neöst í fjallinu er hitabeltisgróður, en eftir
því sem ofar dregur fer gróöurfar aö
breytast og ýmsir hitabeltisburknar og
pálmar eru horfnir. Saltró eru alsett
sníkjuplöntum, fjólubláar orkideur vaxa á
trjástofnum og greinum, en hengi- og
klifurplöntur fléttast milli trjábola og gera
ferðir um skóginn ógreiðar.
Þaö er ekið eftir fjallshrygg um stund en
síöan haldið ofan af fjallinu aö noröan
niöur í árgljúfur, þar sem unnið er aö miklu
Chunko-orkuveri. Indverjar hafa lánaö fé í
byggingu þessa orkuvers, og fá í staðinn
mestan hluta rafmagnsins leitt suöur til
Indlands. Viö þræöum meöfram virkjuninni
um stund, þar til enn er lagt á brattann og
komið aö sæluhúsi þar sem snæddur er
hádegisverður. Þetta er nýbyggt hús meö
skála og tveimur gistiherbergjum og upp-
búnum rúmum. Geta vegfarendur átt þar