Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1981, Page 15
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
r Tí»»0- 8« ÍLAÐ- A* HLUT 1 r E ** S K***5 op- ftNO
fS 1 AR Æ 5 K 1 R Art hL- í irwfl v R ,-T rz *v- Lí R
'mAl- MIV 5 T A L 1 W u ieufí lok*- ort£> F A R yy A:
áoXT £f)Ll A R T CLCPffí ;»hí T' Æ L A duST MR«C 1« 5 Ú ~á\ F
i m IDUR Æ iló- LIÐ- VCTLAP. I A A R M.VU0- áLT F) o T A <. T
l N D '1 X N 1 tr.r 6, R E F U R T A
nANNS WAFfi N T X L L iiuul-\ /NN I s T b ffo VTuft M X R O N
iþa- u« M r o T A HllCuR D- /Md. T 1 N M l 1 A A A
HlT- Ivibi y L U S 1 fj M ve x DVALl ÚL R Æ R ÍNl'fl- £>«Ð l pc'N- Aft
Ll?- UÍL F l M ÖJRLC ToG - A IZ $ ! N D u R Kflít- nc.. is- rjh1-. o- A ÓL á. A
írtf'l- hlt. L N ht- MUÍfl-i sfcr+o ! H f) vi«e- IWCIN Húfn A L l T t £> írMOilt HÁiKI R U
± U N A rru!Pi m u E A M h R Jriur- o P V Æ f?
P bt r\C- 'o L. A \ M i< iT ImJ|o*0 ÓL R úeoc/j r«uM- í F“ ‘ £. o T A
ff A T A i) u R Sl’ett U1Z T A f! N A ■£> U R
X L A E AR Rí A Kr A R SfldC- /itR A T t R
Ungur Bandaríkjamaður
varð jafn heimsmeistaranum
Margir skákmenn eiga sér sína
uppáhaldskeppnisstaði þar sem þeir
tefla miklum mun betur en venjulega.
Þannig er þaö til dæmis meö Svíann
Ulf Andersson, sem nú fyrir skömmu
sigraði á Hastings-skákmótinu í
þriöja skiptiö í röö. Þá hefur Bent
Larsen náö tveimur sínum beztu
áröngrum undanfarin ár í Buenos
Aires þar sem allt virðist ganga
honum í haginn. Karpov heimsmeist-
ari hefur sigraö á stórmótinu í Tilburg
í hvert skipti sem hann hefur veriö
meö, eöa þrisvar alls. Og nú síðast
bárust fyrir stuttu óvænt tíðindi frá
Linares á Spáni, en þar geröi 25 ára
gamall bandarískur stórmeistari,
Larry Mark Christiansen, sér lítiö fyrir
og deildi efsta sætinu með heims-
meistaranum og skaut m.a. þeim
Spassky, Portisch, Larsen, Ribli og
Ljubojevic aftur fyrir sig. Meö þess-
um sigri sínum hefur Christiansen
endanlega slegiö í gegn í skákheim-
inum, en fram að þessu hefur hann
veriö talinn í hópi miölungsstórmeist-
ara.
Áöur hefur þó athygli skákheimsins
beinst aö honum. Það var fyrir rúmlega ári,
en þá var hann efstur á skákmóti á Spáni,
auðvitað í Linares, og var þá á undan
sjálfum Viktor Korchnoi, áskoranda um
heimsmeistaratitilinn.
Eins og margir aðrir efnilegir bandarískir
skákmenn geröist Christiansen snemma
atvinnumaður í skák. Slíkt er þó heldur
óstööugt lifibrauð þar vestra því þótt
verölaun séu oft há, eiga skákmeistarar
þar auövitaö ekki aögang aö ríkisjötunni
svo sem tíðkast í Austur-Evrópu og víöar.
Hjá bandarísku atvinnumönnunum vill
því ærinn tími fara í öflun tekna meö
kennslu, skriftum og ööru slíku, en þeim
mun minni í rannsóknir og taflmennsku.
Aö þessu leyti stendur Christiansen þó
sérlega vel aö vígi, því þegar hann vinnur
sér inn verölaun á skákmóti, styrkir
kjúklingafyrirtæki nokkurt hann meö ann-
arri eins upphæð. Eigandi fyrirtækisins,
sem ber nafniö Church’s fried chicken, er
Frank Church, sem er mikill skákáhuga-
maöur og forríkur að auki. Hann hefur
gengist fyrir stórmótum auk þess sem fleiri
meistarar eru á svipuöum kjörum og
Christiansen.
Þetta bónuskerfi kjúklingabóndans hef-
ur greinilega mjög hvetjandi áhrif á Christi-
ansen. í skák dagsins leggur hann aö velli
Lajos Portisch, sem er nú næststigahæsti
skákmaöur í heimi ásamt Korchnoi.
_Margeir Pétursson
-----------
SKAK
__________________________✓
Skákin var tefld á mótinu í Linares um
daginn.
Hvítt: Larry Mark Christiansen
Svart: Lajos Portisch
Enski leikurinn
1. c4 — c5,2. Rc3 — Rf6, 3. Rf3 — e6,4. g3
— Rc6, 5. Bg2 — d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7.
0-0 — Be7, 8. d4 — 0-0
Þessi staöa er ein af hornsteinunum í
traustu byrjanakerfi ungverska stórmeist-
arans, bæöi með hvítu og svörtu. Hann
fókk hana t.d. þrisvar sinnum upp í einvígi
sínu við Hiibner í haust.
9. e4 — Rxc3
Þessum leik er Húbner vanur aö leika í
stöðunni, en Portisch kom aftur á móti
meö leikinn 9. — Rdb4!? fram á sjónar-
sviöiö áriö 1978 og hefur beitt honum
mikiö síöan með ágætum árangri. Val hans
í þessari skák kemur því ákaflega mikið á
óvart.
10. bxc3 — cxd4,11. cxd4 — Bf6,12. Bb2
Portisch lék hér 12. Be3 í einvígi sínu viö
Húbner, en komst ekki verulega áleiðis.
Athyglisverö skák Gavrikovs og Tukma-
kovs á Spartak-leikunum í Moskvu 1979
tefldist: 12. Ba3 — He8, 13. He1 — Da5,
14. Bd6 — Dd8, 15. Bc5 — b6, 16. e5! —
Be7, 17. Bxe7 — Hxe7?, 18. Rg5 — Bb7,
19. Bxc6 og svartur gaf, því ef 19. — Bxc6
þá 20. Dc2 og hótar bæöi á c6 og h7.
— b6, 13. Hb1 — Bb7, 14. d5 — exd5, 15.
exd5 — Ra5,16. Re5 — Bxe5?l
Hængurinn á 9. — Rxc3 er þegar
kominn í Ijós, hvítur hefur náö öflugu
frípeði. Þó er sú ákvörðun svarts aö láta
hér af hendi biskupapariö illskiljanleg.
Betra var 16. — Hc8 eða 16. — He8.
17. Bxe5 — Hc8,18. Hc1 — Dd7
En ekki 18. — Hxc1, 19. Dxc1 — Bxd5, 20.
Hd 1 og maður tapast.
19. Bc3! — Ba6
Nú þegar má svartur gæta sín, 19. —
Rc4?, 20. Bxg7! — Kxg7, 21. Dd4+
20. He1 — Rb7, 21. Dd4l — f6, 22. Bb4
Upþskiptin sem nú fara í hönd gera
stöðuyfirburði hvíts enn greinilegri.
— Hxc1, 23. Hxc1 — Hc8, 24. Hxc8+ —
Dxc8, 25. h4 — Bb5, 26. d6 — Rc5, 27.
Dd5+ — Kf8
Ef 27. — Kh8 þá 28. Bxc5 — bxc5, 29.
Bh3!
28. De4l — Kf7
Líklega hefur Portisch þegar veriö búinn
aö gefa upp alla von eftir hinn bráð-
skemmtilega leik hvíts. 28. — Rxe4 gekk
auðvitað ekki vegna 29. d7+ og ekki heldur
28. — Kg8, 29. Bxc5 — bxc5, 30. De7 —
Bd7, 31. Dd5+ — Kh8, 32. Bb7! Viö 28. —
Dd7 er svarið 29. Da8+ — Kf7, 30. Bxc5 —
bxc5, 31. Dd5+ og viö 28. — Dd8, 29. Bxc5
— bxc5, 30. Db7 o.s.frv. Þaö gengur því
allt upp hjá hvíti!
29. De7+ — Kg6, 30. h5+ — Kxh5, 31. Df7+
og svartur gafst upp.