Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1981, Page 7
Landið okkar
Ljósmynd og texti Björn Rúriksson
Haustkvöld
w
a
Fljótsdalshéraöi
Ljósmyndin er tekin síöla ágústskvölds á Úthéraði.
Framræsluskuröirnir skipta myndinni í fleti, sem
skuggar hnígandi sólar undirstrika kröftuglega. Horft er
í suöur. Gagnheiöi er t.v. viö miöja mynd, þá sér inn á
Fagradal, og hægra megin laugar kvöldsólin ný-
snæviö á Kistufelli og Sandfelli í Skriödal.
Þessar aðgeröir geröu líf þúsunda
Reykvíkinga miklu betra, og væri hag-
kvæmt frá fjárhagslegu sjónarmiöi bæjar-
félagsins.
Ég er á þeirri skoöun, aö tillögur mínar
fari mjög æskilegan meöalveg um verndun
og nýtingu. Þær gera ráö fyrir aö varðveita
og endurbæta flest eöa öll gömul hús á
þessu svæöi — og varðveita svipmót hins
eiginlega Grjótaþorps og neösta hluta
Vesturgötu og Túngötu og endurvekja
myndarlegt svipmót Aöalstrætis vestan
götu. Meö nýbyggingum viö Garöastræti
austan götu er sköpuö sæmilega viðunandi
nýting þessa svæöis milli Aöalstrætis og
Garöastrætis.
Til gamans og fróöleiks má aö lokum
geta þess, aö Lundúnabúar eiga líka sitt
Grjótaþorp. Þaö er kallað Shepherdsmark-
et og er í hjarta Lundúnaborgar, í króknum
milli Piccadilly og Park Lane, en á bak viö
Curzon Street.
Þetta þorp er fyrst og fremst byggt 2—3
hæöa húsum og heldur í svipmóti og meö
notkun sínum gamla blæ og veröur aö telja
aðdáunarvert, hvaö vel hefur tekizt til um
varöveizlu og endurbyggingu þessa hverfis.
Umhverfis þorpiö, út viö aöalgöturnar sem
umlykja þaö, hafa verið byggö glæsileg
5—7 hæða hús og viö vesturhliö hverfisins,
sem veit út aö Park Lane, stendur eitt
hæsta hús borgarinnar: Hiltonhóteliö. Þaö
er 24 hæöa hús og eftir aö búiö er aö
kveikja ijósin, verkar þaö tilsýndar eins og
undraheimur eöa álfaborg og gefur þessu
gamla hverfi vinalegan ævintýrablæ.
Ef okkur tekst jafn vel til um varöveizlu
og endurbyggingu Grjótaþorps og Bretum
hefur tekizt meö Shepherdsmarket, mætt-
um viö vel viö una. Þá yröi nýting þessa
svæöis mjög aukin frá því sem nú er og
Grjótaþorpið yröi í senn vinsælt og nota-
drjúgt, bæöi til íbúöar fyrir hundruö manna
og sem viðskipta- og skemmtihverfi fyrir
borgarbúa alla og feröamenn.
Þannig geta margir hugsað sér
að Grjótaþorpið liti út.
i