Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.1979, Blaðsíða 10
Ivan og Olga eru
sííellt í mannmergð
og þrengslum og
Stóri Bróðir viður-
kennir ekki kyn-
hvötina.
Kynferðismál í
Sovétríkjunum undir
forsjá Stóra Bróður
Náttúran
er lamin
með lurk
Maöur er nefndur Mikhail Stern og er
einn þeirra Rússa, sem snúizt hafa gegn
kerfinu þar í landi meö þeim afleiöingum,
aö hann býr nú í útlegö í Frakklandi. Nú
eru liöin tvö ár síöan þessi andófsmaöur
yfirgaf fööurland sitt og hefur hann nú
komiö fram í dagsljósið meö því aö skrifa
bók um kynlíf í Sovétríkjunum. Raunar er
Stern læknir aö menntun og hefur unnið
um rúmlega þrjátíu ára skeiö sem
sérfræöingur í kynlífsmálum á stofnun í
Vinnitsa, rétt hjá Kiev í Úkraínu. Hann
hefur getiö sér orðstír sem rússneskur
Kinsey og bókin er talin bera meö sér
mjög yfirgripsmikla þekkingu á þessum
þætti mannlífsins í Sovétríkjunum.
Enda þótt Kremlverjar séu ötulir viö að
opinbera tölur um aöskiljanlega þætti
mannlífsins í Sovétríkjunum, hefur einn
verið undanskilinn. Sá er þáttur kynlífsins
og má undarlegt kalla, þegar látiö er svo
sem mannleg náttúra sé ekki til, ellegar
skipti aungvu máli. Sannast ugglaust þar,
aö þótt náttúran sé lamin meö lurk, leitar
hún út um síöir. Vegna þeirrar þagnar
sem ríkt hefur um kynlíf sovézkra borg-
ara, hefur næsta fátt veriö vitaö meö fullri
vissu um þá hluti, en Mikhail Stern hefur
nú bætt úr því. Bók hans mun koma út í
Bandaríkjunum á næstunni og er þegar
konin út á frönsku undir heitinu „La vie
sexuelle en U.R.S.S."
Hvort tveggja er, aö Stern lýsir kynlífi
karla og kvenna austur þar og einnig
aöstæöum og siövenjum, sem tengjast
kynlífi. Og þaö er dapurleg iýsing vægast
sagt. Vegna ofboöslegra þrengsla og
margmennis í íbúöum og vegna ævagam-
alla fordóma á þessu sviði, eru tækifærin
til blómlegs ástalífs næsta bágborin.
Þrátt fyrir hátt hlutfall af háskólamennt-
uöu fólki, er sovézkur elskhugi furöulega
fáfróöur um tilbrigði ástalífsins. Stern
haföi meö höndum ráöleggingastarf, sem
sannarlega virtist vera þörf á. Samskipti
kynjanna eru ennþá mótuö af eldgömlum
hugmyndum um vald og undirgefri.
Söngvar og sagnir frá gamalli tíö grei.'d
frá kvenhetjum undir oki karlveldisins, og
mæöur hafa löngum sagt dætrum sínum,
aö „ef hann lemur þig ekki, þá elskar
hann þig ekki".
Stern telur aö kvalalosti og drykkju-
skapur setji oft svip sinn á kynferöisleg
samskipti karla og kvenna. „Ofbeldi,
alkóhóiismi og kynlíf eru eldfimur kokk-
teill", segir Stern og bilið verður mjótt
milli birtu og éls, eða milli þess sem kalla
má normalt líf annarsvegar og glæpsam-
legt athæfi hinsvegar.
Misheppnuö kynferöisleg samskipti
hafa markað svo djúpstæö sálræn spor
meöal fjölda kvenna, aö þær hafa týnt
eölilegri náttúru og löngun til kynlífs.
Enda þótt opinberar tölur frá Sovétríkj-
unum hermi, aö aöeins 18% sovézkra
kvenna séu kynferðislega kaldar, telur
Stern aö samkvæmt sínum rannsóknum
sé sú tala nær því aö vera 45%.
Stjórnvöld virðast afneita kynlífinu sem
þörf og litla eöa enga hjálp er aö fá,
þegar illa gengur, nema kannski hjá
einstaka læknum eins og Stern. Að vísu
eru til opinberir leiöarvísar og þar geta
fáfróö brúöhjón fjett upp á nokkrum
atriöum, en svörin eru öllu fremur
furöuleg en að þau komi aö gagni. í
leiöarvísi frá 1974 er taliö gott aö ráöa
bót á kynkulda meöal kvenna meö því aö
úöa yfir sig ölkelduvatni og dvelja í
heitara loftslagi í sumarleyfinu.
Stern segir aö sovézkir karlar hafi
áhyggjur af karlmennsku sinni og sumir
komu til hans vegna ótta um, aö limur
þeirra hefði minnkað meö aldrinum, en
aðrir komu vegna þess aö þeir voru svo
mjög vaxnir niöur, aö þeir máttu ekki
þýöast konur fremur en Hrútur í frásögn
Njálu. Stern kveöst þá aðeins hafa
ráöiagt vítamín til aö létta á áhyggjunum.
Þegar sovézk hjón hafa samfarir, segir
Stern í bók sinni, þá er þaö hrist af í flýti,
alltaf á sama hátt, skömmustulega og án
fullnægju. Hann segir ennfremur: „Sam-
farir eiga sér staö í náttmyrkri undir
sængurfötum og meö lokuöum augum.
Forleikur til örvunar þekkist nálega ekki.
Hin venjubundna stelling er sú, aö konan
hvílir á hnjám og brjósti, en maðurinn
nálgast hana aftan frá og hverfur frá
henni jafnskjótt og hann hefur lokiö sér
af. Aö teygja á tímanum viö samfarir,
konunni til fullnægingar, er talið ósiöur,
sem geti haft alvarlegar sálrænar og
líkamlegar afleiöingar. Afleiöingin er sú,
segir Stern, aö kynferðisleg fullnæging er
næstum eingöngu forréttindi karlmanns-
ins. „Fáfræöi karlmanna er svo alger aö
þeir vita ekkert um kynferðisleg örvun-
arsvæöi á líkama konunnar og halda
aöeins, aö konan veröi alsæl um leiö og
hún kennir lim þeirra," segir Stern
ennfremur.
Vændi viögengst í Sovétríkjunum þrátt
fyrir tilraunir valdhafanna til að útmá baö.
Leiötogarnir hafa aungva þolinmæöi
gagnvart „djarfri" eöa ögrandi hegðun og
klám sést ekki aö heitiö geti. Svo mjög er
litiö niður á kynvillu aö yfir kynvillinga er
einfaldlega slegiö striki.
Samt eru hliöar á sovézku kynlífi, sem
koma á óvart og Stern nefnir m.a. það
sérstæöa sport aö stofna til samfara í
mannþröng, t.d. í yfirfullum sporvagni
eöa neöanjaröarlest. Þaö útheimtir
nokkra lipurö og aö sögn Sterns eru
þarna einnig gildandi óskráö lög, sem
ekki veröa brotin. Því var þaö, aö maður
nokkur reyndi aö stofna til frekari kynna
viö konu eftir samfarir í lest, en hún brást
ókvæöa viö og ásakaöi manninn um
„algert siöleysi".
Myndablöö eins og Playboy og önnur
álíka eru ekki á boöstólum. Aftur á móti
er neðanjaröarpressa á þessu sviöi,
kölluö „sexizdat" samanber samizdat,
sem er eins og kunnugt er neöanjarðar-
hreyfing á bókmenntasviöi. Ekki spáir
Stern neinni þýöu á sviöi ástalífs í
Sovétríkjunum og óttast jafnvel, aö
kuldinn gæti farið vaxandi. Allt styöur
þaö gamla staöhæfingu, aö byltingin náöi
aldrei innúr svefnherbergisdyrunum.
Byggt á Time.
Pétur Svarfaðardal
ÞEGAR ÁSTIN KEMUR Þegar ástin kemur mun ég fagna henni, bjóða henni að ganga í bæinn og spyrja hana hvort hún vilji ekki piggja hjá mér smá kaffísopa.
Og biðji hún um tíu dropa í viðbót, skal ég fúslega gefa henni tuttugu.
Þegar ástin fer mun ég sakna hennar, sérstaklega ef hún segir að sér hafi Þótt kaffið mitt gott.
( 10 )
i t i.l
iiiii
iiiii
m imuitmiiimMHMmtmmimmiimmmtiimiiiiiimmmmmmimm
t
)