Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1978, Blaðsíða 7
Svo er bættum samgöngum,
listahátíðum og einstökum áhuga-
mönnum fyrir aö þakka, aö viö
þekkjum nú oröiö ýmsa heims-
fræga tónlistarmenn ekki aöeins af
afspurn ellegar hljómplötum. Á
þessu ári hafa til dæmis úrvals-
menn eins og Emil Gilels og
Rostropovits látið sjá sig og heyra
og enn er von á hvalreka: Söng-
konan Anna Moffo er væntanleg
frá Bandaríkjunum og mun hún
efna til tvennra tónleika í tilefni af
tvítugsafmæli Fulbright-stofnunar-
innar á íslandi.
En hver er Anna Moffo? Fyrir
áhugafólki um sönglist þarf
naumast að kynna hana, en til
upplýsingar til handa þeim, sem
minna þekkja til í músíkheiminum,
má nefna aö hún er talin hvorki
meira né minna en ein allra
fjölhæfasta söngkona heimsins um
þessar mundir. I því felst, aö hún er
jafnvíg í óperum og á einsöngs-
sviöi, í útvarpi, í sjónvarpi, á
hljómplötum og í kvikmyndum.
Óperur hefur Anna Moffó sungiö
viö Metropolitan-óperuna í New
York, í San Francisco, Chicago, La
Scala, Vínarborg, Budapest, í
Stokkhólmi, Berlín og Múnchen.
Sem konsertsöngvari hefur hún
komiö fram um öll Bandaríkin og
Evrópu. Hún haföi sinn eigin
sjónvarpsþátt í ítalska sjónvarpinu,
sem fylgzt var meö í allri sunnan-
veröri Evrópu í 35 vikur á ári og
hún hefur komiö fram í bandarísku
sjónvarpi. Fyrir hljóðritun sína hjá
RCA á „Söngvum frá Auvergne"
undir stjórn Leopolds Stokowskis,
hlaut hún heiðursverðlaunin
„Grand Prix du Disque", og fyrir
„Kvenhetjur" Verdis hlaut hún
„Orfée d’Or". Hjá Stereo Review
hlaut „Hans og Greta" verðlaun
sem „Plata ársins" og Record
World valdi hana einnig sem
„Óperu ársins". Anna Moffo hefur
auk þess komiö fram í meira en
tylft kvikmynda. Til dæmis má þar
nefna óperurnar „La Traviata” og
„Lucia di Lammermoor", sem
kvikmyndaöar voru í Evrópu, en
sýndar víöa um veröld og meðal
annars í íslenzka sjónvarpinu. í
viðurkenningarskyni hefur ítalska
stjórnin sæmt Önnu Moffo heiðurs-
oröu ítalska lýöveldisins sem er
æösta heiöursmerki þar (landi.
Anna Moffo er fædd í Phila-
delphia í Bandaríkjunum, en for-
eldrar hennar eru ítalskir. Hún
hlaut snemma á listamannsferli
sínum Fulbright-styrk til söngnáms
á ítalíu. Fyrir utan sönghæfileikann
vakti hún snemma athygli fyrir
framúrskarandi fegurö og gerir
raunar enn. Hér á landi ætti hún að
vera kunn fyrir söng sinn af
hljómplötum, sem til dæmis hafa
heyrst í útvarpinu og fyrir hlutverk
sitt í óperunni „La Traviata" eftir
Verdi, sem sýnt var í sjónvarpinu
ekki alls fyrir löngu.
Anna Moffo mun vera liðlega
fertug aö aldri og hún er gift David
Sarnoff yngra, sem stjórnar Radio
Corporation of America. Þau búa í
New York.
Þeir sem gerst þekkja til söng-
mála eru sammála um, að koma
Önnu Moffo til íslands sé verulegur
tónlistarviðburður og er gert ráö
fyrir aö efna til tvennra frekar en
einna tónleika svo að sem flestum
gefist tækifæri til aö sjá og heyra
þessa glæsilegu söngkonu. Hún
hefur ekki fyrr komið til íslands og
aö sögn Frank Ponzis, formanns
Fulbright-nefndar og Guölaugs
Þorvaldssonar háskólarektors,
gerir söngkonan sér sérstaka ferö
til íslands vegna þessa. Tón-
leikarnir verða haldnir í Háskóla-
ein fjölhæfasta söngkona
heimsins syngur
í fyrsta skipti
á Islandi
\ hlutverki Mimi í La Boheme.
Anna Moffo í hlutverki sínu í Tosca.
í Madame Butterfly.
bíói fimmtudaginn 26. október kl.
20.30 og sunnudaginn 29. október
kl. 14.30. Þaö skal tekið fram, að
miöasala veröur einungis á skrif-
stofu Happdrættis Háskóla íslands
í Tjarnargötu 4.
W I I
í hlutverki Violettu
í La Traviata.