Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 15
Þættir úr íslenzkri skáksögu eftir JÓN Þ. ÞÓR I Stokkhólmi fyrsta Ólymplu- skákmótið, er haldið var á Norðurlöndum. islendingar voru meðal þátttakenda og gekk nú öllu betur en f Miinchen árið áður, höfnuðu I 16. sæti af 19. Bandarlkjamenn sigruðu f mótinu, hlutu 54,5 v., Ungverjar urðu I 2. sæti með 48.5 v., Pólverjar og Argentfnumenn f 3.—4. með 47. íslenzku keppendurnir voru: á 1. borði Eggert Gilfer, sem hlaut 3 v. úr 15 skákum. 2. borð Jón Guðmundsson 6.5 v, af 16, 3. borð Ásmundur Ásgeirsson 8 v. af 16, 4. borð Baldur Möller 4 v. af 16. Varamaður var Stúla Pétursson og hlaut hann 1,5 v. úr 9 skákum. Ásmundur Ásgeirsson stóð sig bezt íslendinganna, og hérá eftir fer ein af skákum hans úr mótinu. Þessi skák er gott dæmi um vamarseiglu Ásmundar. Hann brestur aldrei þolin- mæði, þótt vömin sé erfið, en gerir svo út um skákina með snaggaralegri gagnsókn. Hvltt: T.D. van Scheltinga (Holland) Svart: Ásmundur Ásgeirsson Nimzoindversk vöm 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4, 4. e3 — 0-0, 5. Rge2 — d5, 6. a3 — Be7, 7. cxd5 — exd5. 8. Rg3 — He8, 9 Bd3 — c6, 10. 0-0 — Rbd7, 11. Rf5 — Rf8, 12. Rxe7 — Dxe7. 13. f3 — Be6, 14. He1 — Had8, 15. Ra4 — Bc8, 16. Bd2 — Rh5, 17. Rc5 — Re6, 18. Hacl — Dh4, 19. He2 — Rxc5 — 20. Hxc5 — f5, 21. Dc2 — g6, 22. b4 — a6. 23. Be1 — De7, 24. a4 — Hd6, 25. b5 — axb5, 26. axb5 — Bd7, 27. Bf2 — Hde6, 28. g3 — f4, 29. e4 — fxg3, 30. hxg3 — Dg5, 31. Dd2 — De7, 32. bxc6 — bxc6, 33. e5 — Df7, 34. f4 — Rg7, 35. Ha5 — Hee7, 36. He1 — De6, 37. Hb1 — Hf7, 38. Hb7 — Rh5 39. Haa7 — Rxf4. 40. gxf4 — Dg4, 41. Kf 1 — Dh3, 42. Kg1 —Dg4, 43. Kf1 — Dh3. 44. Kel — Dh1, 45. Bf1 — Bh3, 46. Dd3 — Hxb7, 47. Hxb7 — Bg2 48. Bg3? — Ha8. 49. Kf2 — Bxf1. 50. Dxfl — Ha2 og hvftur gafst upp. Um mitt sumar 1 937 fór fram / Maríus Olafsson Sumar- dagur Mig langar út í sumarið og sólskinið og setjast þar sem : ngar til min blóðbergið. Og koma inn í sóleyjanna geislaglóð og gleðja mig við fíflana og lokasjóð. A Eyrarbakka uxu forðum fjölmörg blóm, og fuglasöngsins heyri ég ennþá gleðihljóm. Eg þarf hér ekki að vera að spyrja neinn um neitt, — hve nýt ég þess að minningin er ekki breytt. En samt er eins og þurfi ég að þreifa á, já þar svo mörgu og llka fá að heyra og sjá hvort þarna mfnir sumarvinir séu enn. — Við sjávarniðinn kveðja allt þar, land og menn. Getum afgreitt nú þegar, eóa me6 mjög skömmum afgreióslufresfi CATERPILLAR aflvélar og rafstöövar í eftirtöldum stæröum: D- 398 - 12 strokka - 850 hö vió 1225 sn/mín D-379 - 8 —"— - 565-"- -"- —" — D-353 - 6 —"— - 425-"- -»- -»- —" — D-343 - 6—"— - 365------ 1800 — »— D-334 - 6—»— - 220-"--'— 200Ö—— rafstöó / D-3306 - 6 —»— - 185|-»- -»- 1500—"— D-3304— 4—»— - 75-» »-----------» — ' < \ aflvélar< D 353 425 hö 1225 siVmín 'Prir^ i: Einnig bjóóum vió hinn vióurkennda ULSTEI!s|^skiptiskrúfubúnaó. Sölu-, viógeróa- og varahlutaþjónusta í sérflokki HEKLA HF Laugavegi 170-172, - Sími 21240 Caterpillar, Cat, og CB eru skrósett vörumerki Átökin í Ingólfi Framhald af bls. 7 Einar Hjörleifsson forseti. Ekki var fjörið minna þetta ár. Félags- menn sömdu samtals rúmlega 150 rit og héldu liðlega 20 fundi. Jón Þorkelsson samdi langmest og kom eitt sinn með 12 verk á fund. Næstir komu Einar og Hannes, en Bertel var nú orðinn stúdent. Helzt bar það til tiðinda þetta ár, að nokkur skjöl höfðu komizt í hendur erkifjendanna, Banda- manna, vegna vangæzlu Einars. Vildi Ólafur Finsen reka Einar úr félaginu, en Hannes bar í bæti- fláka fyrir hann. Varð loks úr að Einar slapp með áminningu. Um vorið var Einar svo endur- kjörinn forseti. Hannes braut- skráðist þá um vorið (1880), og er hann var farinn, var sem allur vindur væri rokinn úr Ingólfi. Ritum fækkaði, og fundir urðu strjálli. Mest skrifuðu Jön, Sig- urður Hjörleifsson (bróðir Einars) og Hannes Þorsteinsson. Tók nú mjög að versna allur ~ vinskapur í félaginu. Sú saga komst á kreik, að Einar og Þor- leifur Jónsson hefðu boðið Banda- mönnum að láta Ingólf ganga í Bandamannafélagið. Olli þetta þegar miklum deilum, og var sem olíu væri skvett á eld, er Einar bar málið upp á fundi. Jón Þor- kelsson kvað Einar auðmýkja sjálfan sig og taldi undarlegt, að hann vildi nú vinna með þeim mönnum, sem hefðu rekið hann með háðung úr félagsskap sínum. Hlyti meira en litill náungakær- leikur að ráða, ef menn hygðu betra að vinna með fjandmönnum sinum en vinum. Var tillaga Einars þvi næst felld með 11 at- kvæðum gegn 5. Skömmu síðar flutti Jón sjálfur erindi um, hve dauft félagið væri orðið. Ræddu menn mikið um, hvað mætti verða til úrbóta. Einar vildi að tekið yrði upp á þvi að ,,kritisera“ rit félagsmanna. Hlaut málið misjafnar undir- tektir, en þó var ð úr, að Einar skyldi „kritisera“ rit Árna Fin- sens á næsta fundi. Gerði Einar það svikalaust, og sárnaði Árna mjög. Á aðalfundi stóð Árni svo upp og kvað Einar hafa verið lé- legan forseta, duglítinn og fram- takslausan. Samþykkti fundurinn þennan dóm við atkvæöagreiöslu. Brá nú svo viö, að Þorleifur og Sigurður Hjörleifsson neituöu að taka viö verólaunum, er dóm- nefnd hafði veitt þeim, vegna þess að Einar hafði ekki hlotið náð fyrir augum hennar. Endaði vetur þessi þannig í mesta sundurlyndi og enginn „soilur" haldinn á sumardaginn fyrsta, eins og venja hafði verið. Reið Einar því heldur mögrum klár frá seinni forsetatíð sinni. Tók Jón Þorkelsson nú við for- ystu í félaginu. Lifnaði nokkuð I glæðum, deilur hjöðnuðu, en skáldskapur óx. Jón skrifaði mikið sem fyrr, en auk hans bar talsvert á Sigurði, Bjarna Páls- syni, Pétri Þorsteinssyni og Nielsi Finsen. Þó komst starfið ekki í hálfkvisti við það, sem það var fyrstu tvö árin, enda var Einar riú líka orðinn stúdent (1881). Um vorið skildust menn þó sáttir “og héldu „soll“ á sumardaginn fyrsta. Um haustið var mjög tekið að gæta deyfðar í félaginu. For- seti var Sigurður Hjörleifsson. Framhald á Ibls. 16

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.