Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1973, Page 16
GÆÐI
FEGURÐ - ENDING
Gólfteppi yfir allt gólfið
Innréttingabúöin býöur úrval gólfteppa í fimmtíu mismunandi
tegundum og litum. Ný véltækni sem viö höfum komið
okkur upp, gerir nú kleift að breiöa á svipstundu úr heilum
rúllum á stóran gólfflöt svo aö viðskiptavinir geti afráöið
kaup sín viö æskilegustu aöstööu.
Sérhæft starfsfólk annast teppalagningar fljótt og vel,
hvort sem um er að ræöa íbúðir, stigaganga, skrifstofur,
eöa samkvæmissali, o.fl. o. fl.
Viö kostum kapps um, aö veita mönnum upplýsingar og ráö,
sem þeir geta örugglega treyst.
Munið, að beztu og vönduðustu teppin þurfa ekki endilega
að vera hin dýrustu.
SÉRVERZLUN MEÐ GÓLFTEPPI OG VEGGFÓÐUR
Sveinn frá Elivogum
Framhald af bls. 14
Stefán var góður kennari og
kenndi hann unglingum á heimili
sínu. Hann var gagnfræðingur frá
Möðruvöllum. Því miður varð
Stefán skammlífur mjög, aðeins
hálffertugur. Eftir lát hans
fluttist ekkjan með börnin norður
f Eyjafjörð. Meðal barna Stefáns
og konu hans, Svanfríður Bjarna-
dóttur frá Vöglum í Glæsibæjar-
hreppi, eru hinirkunnu kennarar
Eiríkur, Marinó og Svava Fells.
A Sneis bjó Sveinn, eins og
áður sagði, í 9 ár. Þar fæddist
þeim hjónum barn, Þóra Kristfn,
sem dvalizt hefur í Vesturheimi
frá unga aldri. Áður en Sveinn
kvæntist, eignaðist hann tvö börn
með Sigríði Önundardóttur frá
Dæli í Sæmundarhlíð, Maríu og
Þórarin. Eru þau bæði á lífi.
Maria býr á Sauðárkróki, en
Þórarinn í Reykjavík. Hann er
kvæntur Halldóru Nellý Páls-
dóttur og eiga þau þrjú börn, tvær
dætur og einn son. Eftir að börnin
tvö voru fædd, orti Sveinn:
Eg úr læðing leyst hef snák,
Iátið fæðast næturgaman,
smfðað bæði stelpu og strák,
stöku og kvæði bundið saman.
Sveinn gerði ekki víðreist
meðan hann bjó á Sneis. Þá fór
hann einu sinni til Reykjavíkur, i
nóvember 1932. Hann las upp ljóð
eftir sig — og kvað. Hann hafði
sterka rödd og heldur hrjúfa. Að
hann hafði svo sterka rödd og
raun bar vitni, stafaði sjálfsagt af
því, að hann heyrði illa. Agerðist
sá kvilli með aldrinum, og undir
ævilokin var hann næstum
heyrnarlaus. Oft var Sveinn að
því spurður, hvort honum félli
ekki heyrnardeyfan þungt. Sagði
hann þá jafnan, að hann væri
búinn að heyra það margt um
dagana, að hann langaði ekki til
að heyra mikið meira. Um það
orti hann:
Þó að mitt sé ófrjótt eyra,
eldinn mun ég geyma f hjarta.
Sælla er að sjá en heyra,
sæmir ei um slíkt að kvarta.
Að Refsstöðum kom sr. Gunnar
að húsvitja, eins og áður er getið.
Eitt sinn, er hann var í slíkri
heimsókn, las hann að venju úr
Biblfunni. Er síra Gunnar hóf
lesturinn úr hinni helgu bók, brá
svo við, að Sveinn fór út. Þetta
líkaði síra Gunnari miður, og
hann kallaði: Sveinn, Sveinn,
hvers vegna ferðu út? Þetta
heyrði Sveinn, og varpaði fram
vísu:
Heyrnardeyfan hamlar mér
að hlusta á Drottins orðið.
En allir leyfa að óska sér
einhvers góðs á borðið.
Það var aðeins heyrnardeyfan,
sem olli því, að Sveinn fór út, en
hvorki andúð á síra Gunnari né
sjálfri Biblíunni. Vel að merkja
var 'þó Sveinn enginn presta- né
kirkjuvinur, eins og áður hefur
verið getið.
Sumarið 1934, fluttist Sveinn
frá Sneis að Móum á Skagaströnd.
Komið var fram að slætti. En
hvað olli því, að svo skjótlega var
við brugðið? Því held ég sé óhætt
^ að svara nú, þegar þetta Iangt er
nfa liðið. Sveinn hafði orðið fyrir
ónæði og árásum af grönnum í
dalnum. Þeir komu ölvaðir um
nætur og létu mjög ófriðlega,
brutu glugga og hótuðu að drepa
Svein. Við slfkt var ekki hægt að
una. Var ekki uni annað að gera
en flytja sem skjótast burt af
dalnum. Þá var það, að húsnæði
fékkst í Móum á Skagaströnd, ein
stofa og aðgangur að eldhúsi.
Sneis var seld Engihlíðarhreppi
fyrir sáralítið verð, enda varla við
miklu að búast fyrir kot, illa hýst
og með litla ræktun. Sveini var
ekki umhugsað um miklar um-
bætur á jörðum þeim, er hann sat
um dagana. Hugur ’hans var við
annað bundinn lengstaf. En hey-
skaparmaður var hann dágóður.
Að vfsu beit aldrei verulega vel
hjá honum. Hann notaði bakka-
ljái framan af og klappaði þá á
steðja. En eftir að Eylandsljáirnir
komu, einjárnungar, notaði hann
þá og dró þá á hverfisteini.
Til Skagastrandar var komið f
sláttarbyrjun. Nú þurfti Sveinn
að fara að vinna hjá öðrum, undir
annarra stjórn, en það hafði hann
ekki gert lengi og líkaði allt
annað en vel, eins og eftirfarandi
vfsa ber með sér:
Löngum er ég ófarsæll
yfir að vera sjálfs infn herra.
En að gerast þrælsins þræll
þykir mér þó hálfu verra.
Niðurlag f næsta blaði.