Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1967, Side 15
Ný L.
MEÐ
Eins og flestum mun kunn-
ugt er væntanleg á markaðinn
ný 12 laga plata með hinum sí-
vinsælu Hljómum frá Kefla-
vik. Platan er tekin upp í
Chappels Studio i London og
gefin út af S. G. hljómplötu-
fyrirtækinu, en ráðgert er að
hún kami út um mánaðamót-
in okt.—nóv. Plötualbúmið,
sem er sérstaklega vel unnið,
gerði ungur og efnilegur lista-
maður hér i borg Hilmar
Helgason.
Á þessari nýju hljómplötu
kennir mangra graisa en Hljóm-
ar leika þarna af sinni al-
kunnu snilld bæði innlend og
erlend lög og má segja að
------------------------------
P PLATA
HLJÓMUM
ERJC BURDON
Það eru ekki mörg ár síðan
að The Animals voru í hópi
beztu og vinsælustu hljóm-
sveita heims. Plötur þeirra
runnu út og skipuðu ávallt
efstu sæti vinsældalistanna. Má
þar m. a. nefna lög eins og
„House of the rising Sun“, „I’ts
my Life“, „I’m crying“ o. fL
En svo fór að syrta í álinn
hjá þeim félögum. Eftir að Alan
Price hætti í hljómsveitinni
fóru vinsældir hennar sífellt
rénandi og að lokum var svo
komið að varla heyrðist nokkuð
til þeirra. En þá tók söngvarinn
Eric Burdon til sinna ráða og
stofnaði nýja Animals sem nú
nýtur sívaxandi vinsælda, bæði
í Englandi og Ameríku, þó að
ennþá sé það ekkert á vi'ð það
sem áður var.
Eric hefur um langt skeið
verið talinn einn bezti blues
söngvari Englands og þótt víð-
ar væri leitað og virðist sem
hann hafi verið sérlega hepp-
inn með val þeirra sem nú
skipa hljómsveitina því að
þarna eru komnir menn sem
líklegir eru til mikilla afreka
á sviði blues-tónlistar í fram-
tíðinni. Þess má geta að þegar
tíðindamaður síðunnar var í
Englandi ekki alls fyrir löngu,
sá hann tvenna hljómleika með
hljómsveitinni og minnist hann
þess ekki a'ð hafa heyrt í ann-
arri betri.
Á myndinni sjáum við Eric
Burdon og hans nýju Animals
og er ekki annað að sjá en að
kappinn sé þarna virkilega í
essinu sínu, eins og hann er
reyndar oftast þegar hann kem-
ur fram.
sjaldan eða aldrei hefur þeim
tekizt betur upp er. einmitt á
þessari plötu, og geta menn þá
sagt sér til um hvað hér er
á ferðinni. íslenzku lögin eru
eftir Gunnar Þórðarson, Rúnar
Gunnarsson og Þóri Baldurs-
son en textana sömdu þeir
lendan markað sem innlendan.
Lögin á þessari plötu nefnast
„Show me you like me“ en
það lag sömdu piltarnir allir
í sameiningu og „Stay“ sem er
eftir Gunnar Þórðarson.
Það er ekki að efa að marg-
ir munu bíða óþreyjufullir
eftir þessum piötum, sem er
ekki nema eðlilegt þar sem
Hljómar hafa sýnt það og
sannað undanfarið, að þeir
bjóða upp á það bezta sem völ
er á hérlendis.
Ómar Ragnarsson, Ólafur
Gaukur og Þorsteinn Eggerts-
son.
Aðspurðir kvaðust Hljómar
vera mjög ánægðir með upp-
tökuna sem rók um 15 kl.st.
En ekki er öll sagan sögð
enn, því að 24. október kemur
út í Bandaríkunum tveggja
laga plata með þeim félögum
sem ætluð er jafnt fyrir er-
ÍSLAND:
1. San Francisco .............. Scott McKinsey
2. Even the Bad Times are Good . Tremeloes
3. Glókollur ...........Póló og Bjarki
4. Deth of a Clown .................Dave Davis
5. The House that Jack Built ......... Animals
7. She’d Rather be with me ............ Turtles
8. Lási Skó . Póló og Bjarki
9. Sælt er sinni kellu að kúra hjá . Þorvaldur og
Ingimar Eydal
10. Itchycoo Park .................. Small Faces
ENGLAND:
1. The Last Waltz ...... Engelbert Humperdinck
2. IIolc in My Shoe .................. Traffic
3. Massachusetts ..................... Bee Gees
4. Flowers in the Rain .................. Move
5. Reflec Diana Ross og The Supremes
6. There Must Be a Way .......Frankie Vaughan
7. The Letter Box Tops
8. Excerpts From a Teenage Opera .... Keith West
9. Itchycoo Park ............. Small Faces
10. The Day I Met Mary ............ Cliff Richard
AMERÍKA:
1. To Sir With Love ...................... Lulu
2. The Letter Box Tops
3. Never My Love .................. Association
4. How Can I Be Sure ............ Young Rascals
5. It Must Be Him .................. Vikci Carr
Keith Moon, trommuleikari
í hijómsveitinni WHO, hefur
sannarlega ástæðu til að vera
í gó*ðu skapi þessa dagana því
að hann hefur nú eignazt eitt
glæsilegasta og nýstárlegasta
trommusett sem sögur fara af.
Settið er af gerðinni Premier
og eru trommurnar 10 talsins
en á hverri þeirra eru listi-
lega gerðar myndir í öllum
regnbogans litum. Pete Towns-
hend varð yfir sig hrifinn af
settinu þegar hann sá það í
fyrsta sinn og lét svo um mælt
að fleiri trommuleikarar ættu
eftir að fylgja í kjölfarið í
framtíðinni. Ekki fara sögur af
því, hvað settið muni hafa
kostað, en ef að líkum lætur
hefur það ekki verið nein smá
upphæð sem Keith hefur odðið
að gefa fyrir það.
22. október 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15