Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1961, Side 16
888
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
A 95
V Á 10 4 2
♦ 2
A KG10 964
A Á 7 6 4 3
2
V 5
♦ 954
♦ 852
A KDG
V K D 9 6
♦ G 9 8 6 3
♦ 3
A gaf og sagði 1 tigul, en sögnum
lauk þannig að S átti að spila 3
hjörtu. Tígull kom út og þann slag
fekk A. Hann sló svo út spaða og V
fekk slaginn á ás og sló út spaða
aftur, en þann slag fekk S á drottn-
ingu. Hann tók nú slag á HK og sló
síðan út laufi undir gosann en þann
slag fekk A á drottningu. Nú kom út
TK og hann var trompaður í borði.
Út kom LK og A drap með ás, svo að
S trompaði. Og nú skiftust spilin
þannig á hendur:
A —
V Á 10
♦ -
♦ 10 964
A 7643
V —
♦ 5
A 8
A K
V D 9
♦ G98
A —
S gerði nú ráð fyrir, að trompin
hefði verið 2—3 hjá andstæðingum,
svo að hann sló út HD. En nú kom í
ljós að V hafði ekki átt nema eitt
tromp. Hér var úr vöndu að ráða, en
S tók þann kost að drepa með ásn-
um. Þá kom L10 og fleygði S tígli í
hana, og sló út laufi aftur. A sá ekki
annað ráð vænna en trompa með H8,
svo að S fekk slaginn á H9 og sló út
SK. A mátti ekki trompa hann, því
að þá fekk borðið slagina sem eftir
voru. Og svo fekk S níunda slaginn
með því að trompa tíguL
A 10 8
♦ G 8 7 3
♦ AKD10
A Á D 7
FAGUR STAÐUR. — Kjósin er undrafögur sveit, með fjöllum og fellum, skrúð
-grænum dölum og glitrandi ám og vatni. Öll hefir sveitin verið skógi vaxin
fyrrum, en nú er skógurinn horfinn og aðeins eftir litlar leifar hans í Vindás-
hlíð sunnan við Laxá og vestan undir Sandfelli. Er þetta innarlega í þeim
dal og blasir hlíðin við sól og sumri. Á þessum stað hefir KFUK reist stórt
og glæsilegt félagsheimili og flutt þangað gömlu kirkjuna, sem var á Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd. Kirkjan hefir nú verið endurbætt svo að hún er óþekkj-
anleg hið innra. Allar þessar framkvæmdir hafa verið unnar i sjálfboðavinnu
og einkis styrks notið af opinberu fé. Svo er og um alla innanstokksmuni í
félagsheimilinu, þeir eru handaverk velunnara félagsins. Hér hafa áhugi og
fórnfýsi skapað fagran stað í fögru umhverfi.
Andrarímur
Það er ein sögn um Bergstein
blinda (d. 1635), að hann hafi átt
að yrkja Andrarímur allar á einni
jólanótt fyrir tíðir, en ekki eru þær
rímur til nú, því að Öndrur fornu
eru eftir Sigurð blinda. Þetta athæfi
Bergsteins mæltist illa fyrir, og þótti
það ókristilegt að vanbrúka svo því-
líka dýrðargáfu drottins sem skáld-
skaparlistina, og var um hann gerð
þessi vísa:
Hann í staðinn hafi það,
honum aldrei verði rótt,
sem Andrarímur allar kvað
fyrir embætti á jólanótt.
Ormur í Skorradalsvatni
Ógurlegur ormur var í Skorradals-
vatni og sást fyrir stórtíðindum svo
sem 1495 fyrir pláguna miklu, 1707
fyrir stórubólu og miklu oftar. Skorr-
dælingum stóð mikil ógn af honum.
Fóru þeir þá á fund séra Hallgríms
Péturssonar og báðu hann að kveða
niður orminn. Prestur varð við bón
þeirra og kvað orminn niður á báð-
um endum og í miðjunni. Hefir hann
því sjaldan sést síðan og ekki nema
fyrir óveðrum.
Stafsetning
Dr. Guðbrandur Vigfússon segir i
bréfi til Jóns Árnasonar 1860: Eg vil
ráða yður frá að hafa Fjölnis staf-
setning á handriti yðar'.... Stafsetn-
ing Svb. Egilssonar hefir mér ætíð
þótt góð, og ef vikið er frá henni, þá
er betra að íæra sig nær hinu gamla.