Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1959, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
419
Landsþing Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga (15, 16, 17).
Biskupinn lýkur visitazíu á Norð-
urlandi (16).
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða
(16).
Landsþing Verkstjórasambands Is-
lands (18).
Þing Héraðssambands Austur-Hún-
vetninga (21).
Kirkjuvígsla í Vindáshlíð (22).
Fjorstjórar erlendra ferðaskrifstofa
hér í boði Flugfélags íslands (23).
Kristilegt æskulýðsmót að Löngu-
mýri í Skagafirði (27).
Prófessor F. Dannmeyer heimsækir
ísland (27).
Vígslubiskup Hólastiftis vígður að
Hólum í Hjaltadal (27).
Landsmót ungtemplara að Jaðri (22,
27).
LISTIR OG ÍÞRÓTTIR
íslenzka liðið vann úrval Þórshafnar
í knattspyrnu 5:1 (1).
Níu íslenzk Ijóð birtast í einu víð-
lesnasta riti heims, New World
Writing (5).
Færeyingar unnu þriðja leik við B-
landslið íslendinga 1:0 (6).
Fjögur íslenzk börh fengu verðlaun
í Japan fyrir teikningar (7).
Ágústa Þorsteinsdóttir synti 100 m.
skriðsund á mettíma sínum á sund-
meistaramóti Norðurlanda (11).
Ingi R. Jóhannsson í 4.—5. sæti á
skákmóti Norðurlanda í Örebro (11).
Valur vann Fram í knattspyrnu i
1. deild íslandsmótsins (11).
Pólsk graflistarsýning í Reykjavík
(12).
Vilhjálmur Einarsson og Svavar
Markússon unnu beztu afrekin á
meistaramótinu í frjálsíþróttum (12).
Meistaramóti í frjálsíþróttum lokið.
Guðiaug Kristinsdóttir setti Islands-
met í spjótkasti kvenna (14).
Eyólfur Jónsson gafst upp eftir
13 klukkustunda sund á Ermarsundi
(14).
Miklir vatnavextlr
á Mýrdalssandi
tepptu samgöngur.