Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1959, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
413
Farlð í fallhlíf úr turni.
ur. Sagt var mér, að ef gangandi
maður sést hér á vegum úti, þá sé
talið eflaust að þar fari glæpa-
maður. Þess vegna er bílstjórum
bannað að taka menn upp í bíla
sína á förnum vegi, og liggja sekt-
ir víð.
Frægasti baðstaðurinn er Cliff
House. Sá staður hefir verið nær
eina öld í smíðum, enda eru þar
mörg söfn og veitingahús. Þar rétt
hjá er Selsker og þar hafast enn
' við nokkur sæljón. Sagt er að þau
geti orðið nær 1000 kg. að þyngd,
eða eins og stærstu Alaska-
birnir.
Merkast af öllu fannst mér
Planetarium, eða Himingeimurinn.
Þetta er hringlaga salur og yzt við
sjónhring er líkan af San Francisco
við sólsetur. Svo var slökkt í saln-
um og sást þá himinfestingin, og
var mönnum boðið í geimflug með
spútnikum, Framherja eðá Könn-
uði, eða þá með X-15 flugskeyti,
sem fer með 4000 km. hraða á
klukkustund. Gert var ráð fyrir
viðkomustað einhvers staðar á
sporbraut gerfihnattanna. Var
haldinn langur fyrirlestur um allt
þetta og allt útskýrt. Var mönn-
um sagt, að ekki væri verra að
vera undir það búinn að leggja á
stað út í geiminn, því að mjög
bráðlega kæmi að því, að við jarð-
arbúar færum að ferðast til ann-
ara hnatta.
í Steinhart Aquarium, eða fiska-
safnið, þótti mér og mjög gaman
að koma. Þar sá eg fiskana „pir-
anha“ frá Amazonfljóti. Þetta eru
smákvikindi, ekki nema um 4
þumlungar á lengd, en allra skepna
grimmastir og gráðugastir. Þeir
fara í stórhópum og sagt er að þeir
geti rifið í sig stórgrip á nokkrum
mínútum, og mannskæðir eru þeir
í frekara lagi. Þarna voru líka
sýndir sæhestar, álíka stórir. Karl-
inn er með poka á kviðnum og í
hann hrygnir kerlingin, allt að 600
eggjum.
Norðurleiðin
Eg fór frá San Francisco 29. júlí
og fór nú norðurleiðina, en hún
liggur um Nebraska. Þar hafði
fellibylur farið yfir nokkrum dög-
um áður, og sáust þess merki, því
að líta mátti hrunin hús og önn-
ur þaklaus. Og svo ólmur hafði
bylurinn verið, að sums staðar
hafði hann rifið malbikið upp úr
veginum.
Farið er um borgina Omaha, sem
stendur á bakka Missourifljótsins.
Þar eru 360.0.00 íbúar, en umhverf-
is borgina er mesta landbúnaðar-
hérað í heimi. Farið er á brú yfir
fljótið og þá komið inn í Iowa.
Síðan var haldið til Chicago og
komum við þangað 1. ágúst. Þar
er nú framleitt kynstur af Rambler
Super og Rambler 8, en það eru
bílar af millistærð. En svo á að
framleiða smábíla og hefta alveg
með því smábílasölu Norðurálfu-
þjóða til Bandaríkjanna.
Frá Chicago er farin hraðnJsrt-
Höfundur hjá Frelsisstyttunni.
ursbraut til New York. Þessi
braut var gerð 1956 og er aðeins
fyrir langferðabíla. Þegar til New
York kom fekk eg inni í norsku
sjómannaheimili í Brooklyn (Han-
son Place 62) og dvaldist þar í
viku.
í Brooklyn er hinn kunni
skemmti- og baðstaður Coney Is-
land. Þar fór eg einn daginn í fall-
hlíf ofan úr háum turni. Eg fór
líka út í Frelsisey og þótti gaman
að koma þar. Hér er Frelsisstyttan
sem Frakkar gáfu 1884. Hún er
rúmlega 50 metra há.
Eg kom einnig á sjódýrasafnið á
Coney Island og sá þar rafmagns-
álinn, sem er 8 feta langur og 80
pund á þyngd. Hann gefur frá sér
svo sterkan rafmagnsstraum að
nægir til að drepa mann.
Heimleiðis var haldið með flug-
vélinni Sögu 6. ágúst. Þegar flog-
ið er yfir Bandaríkin, er landið
eins og tíglagolf, átta mismunandi
litir á ökrum, og svo dökkgrænir
skógarteigar. Labrador virðist vera