Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1959, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
411
og kom til Jackson. Það er lítill
bær með nokkrum hundruðum
íbúa, en þar er nafntoguð tvöföld
skíðalyfta upp í svonefnd Snjó-
kóngafjöll. Þetta er hluti af nær
50 km löngum fjallrana, sem nær
norður í þjóðgarðinn og nefnist
Teton-fjallgarður. Eru á honum
margir snævi þaktir tindar, en
mestur er Grand Teton, um 4580
metrar á hæð.
Yellowstone Park
Þessi þjóðgarður hér í Wyoming-
ríki er talinn einhver fegursti stað-
ur í öllum Bandaríkjunum, enda
verður enginn fyrir vonbrigðum er
þangað kemur. Þetta er dýrleg vin
í eyðimörk. Skógurinn hér líkist
barrskógum Evrópu. Eg hefi
hvergi séð jafn mörg litbrigði og
hér, þar sem eru rauð gljúfur með
grænum skógum. Og þó er skógur-
inn ekki alltaf grænn, stundum eru
grá linditré innan um og gulur
víðir, en á milli blikar á blá vötn.
Hér er friðland og unaðsreitur ótal
dýra. Hér eru vísundar, bufflar og
elgir á beit, hér eru fálkar og ernir
á flugi, hér eru antilópur og fjalla-
fé, gaupur og brúnir og svartir
birnir. Ferðamenn geta fengið leyfi
til þess að skjóta birni, undir eftir-
liti.
Hér eru miklir fossar og er sá
merkastur er nefnist Lower Falls
(Neðrifoss). Hann fellur niður í
Eiturslangan
og
myndavélin.
rauðgult gljúfur og er mjög tign-
arlegur, því að hæðin er 100 metr-
ar og er hann því helmingi hærri
en Niagarafossarnir.
Hér er einnig jarðhiti og gos-
hverir. Kunnastur er goshverinn
Old Faithful (Gamli Tryggur).
Hann gýs alltaf á 63 mínútna fresti
og hærra en Geysir í Haukadal, en
hvert gos stendur ekki nema fjór-
ar mínútur. Þá er annar, sem heit-
ir Riverside-geysir. Hann er vatns-
mikill og gýs á 8 klukkustunda
fresti og stendur hvert gos í 15
mínútur, en þau eru ekki nema um
30 metra há.
Annars er það ekki á mínu færi
að lýsa öllum þeim undrum, sem
hér er að sjá, og verður þetta því
að nægja.
í Mormónaríkinu
Frá Rock Springs var haldið með
langferðabílnum til Buffalo í Utah.
Þar eru enn nokkrir bufflar og við
þá er borgin kennd. Hér er mjög
fagurt. Síðan er haldið niður í
gljúfrin Castle Rock, þar sem Indí-
ánar vörðust forðum framsókn
hvítra manna, og víðar hér í Utah
veittu þeir öflugt viðnám.
Satt er það, að langt er frá hafi
til „Rómar Klettafjallanna" eins og
Saltvatnsborgin er stundum nefnd.
Heyrt hefi eg að fyrstu landnem-
arnir, sem ferðuðust þetta fótgang-
andi, hafi verið tvö ár og tvo mán-
uði á leiðinni og komist í ótrúlegar
þrautir. Eg kom þangað á 7. degi
og þótti hægt farið, því að nú er
hægt að komast þessa leið á þrem-
ur sólarhringum frá New York með
því móti að ferðast nótt og dag.
Hjá Saltvatnsborg fannst mér
undarlegt landslag, en vegna þess
að þar blasir við víður fjallahring-
ur, er ekki hægt að segja að hér
sé ljótt, enda hafa landnemarnir
kunnað vel við sig. Hér eru góð
slægjulönd víða og beitilönd, eins
og t. d. í Lambagljúfrum. Hrika-
leg náttúrufegurð er hér víða í
fjöllunum. Saltvatnið er um 25
km. fyrir vestan borgina. Það er
2140 fermílur enskar og svo salt,
að menn geta ekki sokkið í því.
Þar eru 9 eyar og er mest þeirra
Fugley (Birds Island). Þar verpa
hegrar og pelikanar. Einu lífverur
í vatninu eru rækjur, sem eru
veiddar og seldar sem fóður. Ann-
ars er mikið líf á vatninu, þar eru
margir bátar á siglingu og þar eru
menn á sjóskíðum.
Skíðalyftan í Jackson.