Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1959, Blaðsíða 1
28. tbl.
JltiifgmirlaMiti
Sunnudagur 27. septgmber 1959
XXXIV. árí.
Eggert Magnusson;
MEÐ LANGFERDABÍLUM
jbverf yfir Bandarikin fram og aftur
HINN víðförli íslendingur, Egg-
ert Magnússon, sem skrifað hefir
nokkrar greinir í Lesbók um
ferðir sínar, brá sér núna(í sum-
arleyfinu með flugvél til New
York, og þaðan með langferða-
bílum þvert yfir meginlandið til
San Francisco og til baka. Segir
hann hér i stuttu máli frá þeirri
skemmtiför.
EG HEFI hvergi rekið mig á frá-
sagnir af því, að íslendingar hafi
farið með langferðabílum þvert
yfir Bandaríkin, fram og aftur, og
þess vegna langar mig til þess að
vekja athygli á þessum bílferðum,
sem eru tiltölulega ódýrar, en
þægilegar og hentugar fyrir þá,
sem vilja sjá sem mest og kynnast
ýmsum stöðum. Leiðin frá New
York til San Francisco mun vera
álíka löng og leiðin frá íslandi til
New York. En farið með lang-
ferðabílunum kostar ekki nema 83
dollara, og er þar stór munur á og
fargjaldinu vestur yfir hafið.
Vagnarnir, sem halda uppi þess-
um áætlunarferðum þvert yfir
Bandaríkin, eru kallaðir Gráhund-
ar (Greyhounds). Þeir eru mjög
þægilegir, og loftið í þeim er kælt,
svo það er ámóta notalegt og í
Reykjavík, enda þótt óþolandi hiti
sé úti. Farmiðinn gildir um fjög-
urra mánaða skeið, svo að menn
geta haft viðdvöl á ýmsum stöðum
á leiðinni, og tekið svo næsta bíl.
Með þessu móti verður ferðalagið
að meira gagni fyrir þá, sem ó-
kunnugir eru, en langar til að skoða
sig um.
Mun eg nú í stuttu máli segja
frá ferðalaginu og því, sem mér bar
fyrir augu.
Fyrsti áfanginn
Að kvöldi þjóðhátíðardags
Frakka, 14. júlí, var lagt á stað
héðan með leiguflugvél Loftleiða,
og gert ráð fyrir 13% klukkustund-
ar ferð yfir hafið. Rétt fyrir mið-
nætti sjáum við Grænlandstinda,
snævi þakkta, en baðaða í nætursól.
Þarna er landslag mjög hrikalegt
og hættulegir eru þessir tindar fyr-
ir flugvélar.
Morguninn eftir komum við til
New York, en þar ætlaði eg að hafa
litla viðdvöl og gat því fátt skoð-
að. Þó fór eg upp í hæsta hús borg-
arinnar, Empire State Building,
sem er 102 hæðir. Einnig skoðaði
eg nokkur söfn. En um þessar
mundir var ekki um annað meira
talað í borginni en rússnesku sým
Þannig eru
Gráhundarnir,
sem eru í förum
þvert yfir
Bandaríkin.