Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 459 -nær sem þeir kölluðu, annaðhvort sjóveg út í Viðey, eða upp á Kjal- arnes, og svo landveg til Skild- inganess. Enn urðu þeir að slá einn dag hvor úti í Viðey og gjalda tvo heyhesta til falkanna, eftir að farið var að flytja þá út í Hólmi. Bessastaðavaldið var sjaldan nærgætið við landseta konungs. Það hafði þó átakanlegast komið í ljós í fardögum 1681. Þá kom maður frá Bessastöðum og krafð- ist þess af einum ábúanda Arnar- hóls, Ásbirni Jóakimssyni (sem líklega hefir búið á Litia-Arnarhóli en var þá að flytja sig búferlum þaðan), að hann ferjaði sig yfir Kollafjörð (eða inn í sund). Ás- björn þóttist ekki skyldugur til þess, þar sem hann var að flytja burt af jörðinni. En fyrir þessa neitun var hann hýddur á Kópa- vogsþingi stórhýðingu, er næst gekk lífi hans. Og aldrei fekk hann leiðrétting sinna mála. Tukthúsið kemur Árið 1759 olli straumhvörfum í sögu Arnarhóls. Þá gaf konungur út skipun um að þar skyldi reisfc tukthús. Er mælt að Skúli Magnús- son landfógeti hafi verið hvata- maður þess, og hafði hann ráðlagt stjórninni að leggja eignir Þing- eyra klausturs til stofnunarinnar. Stjórnin fellst á þetta á þann hátt, að tekjur Þingeyraklausturs og Arnarhóll skyldi lagt tukthúsinu þangað til það gæti séð um sig sjálft. Þótti henni sem tukthúsið væri vel sett þarna, því að það gæti alltaf fengið ull hjá iðnstofn- ununum og látið fangana tæta úr henni, og þar að auki lægi jörðin svo vel við sjó, að ætíð væri hægt að fá fisk handa föngunum. Magnús Gíslason amtmaður fann upp á því snjallræði, að nota skyldi íslenzka afbrotamenn til þess að vinna að byggingu tukt- hússins, og skyldu þeir með því kaupa sig undan Brimarhólmsvist. Þetta þótti stjórninni fyrirtak, því að með þessu móti mundi kostnað- ur við bygginguna verða minni. Var svo byijjað á því 1762 að láta hina sakfelldu grafa fyrir grunni og draga að grjót. Tukthúsið mun hafa verið talið fullsmíðað árið 1764. Þótti þetta furðumikið hús, 44 alna langt og 16 alna breitt. Það hafði líka kost- að 700—800 ríkisdali. Til tukthússins voru ráðnir tveir embættismenn, ráðsmaður (kallað- ur ökonomus) og fangavörður. Skyldu þeir hafa hálfar tekjur hvor af Arnarhóli, auk launa sinna. Fyrsti „ökonomus“ varð Guðmund- ur Vigfússon lögréttumanns Sig- urðssonar í Hjörsey. Hafði hann stundað lögfræðinám við háskól- ann í Kaupmannahöfn í fjögur ár, en ekki lokið prófi. Var talið að hann hefði hlotið þetta embætti vegna þess, að hann var systurson- ur Þórunnar konu Magnúsar amt- manns Gíslasonar. Hann gegndi þessu starfi í 22 ár, eða fram til 1786. Um þessar mundir bjó á Arnar- hóli Gissur Jónsson lögréttumaður. Hann var kvæntur Silfu dóttur Jóns Oddssonar Hjaltalíns sýslu- manns, sem var seinasti ábúandi í Vík (Reykjavík). Gissur var tal- inn meðal fremstu manna hér um slóðir á sinni tíð. Var hann hrepp- stjóri um 25 ára skeið og meðhjálp- ari í 20 ár. Hann var fæddur á Arnarhóli, ólst þar upp og fekk byggingarbréf fyrir jörðinni 1744, líklega lífstíðar ábúð. Vorið 1768 byggði Guðmundur „ökonomus" honum út af jörðinni. Gissuri kom þetta mjög á óvart, og þóttist hart leikinn. Leitaði hann þá á náðir stiftamtmanns, ritaði honum bréf á alþingi við Öxará þá um sumarið og bað hann að styrkja sig til þess að hann fengi haldið jörðinni. En það bar engan árangur. Gissur varð að flæmast þaðan. Fluttist hann þá suður með sjó. Silfa kona hans var enn á lífi 1777 og átti þá heiina í Kirkju- vogi í Höfnum. Arnarhóli hrakar Nú tók Guðmundur „ökonomus'* undir sig túnið á Arnarhóli, sem var stórt og gott og girt með ram- efldum grjótgarði. Náði garður sá utan frá sjó um það bil er Klapp- arstígur kemur nú niður á Skúla- götuna og lá svo skáhalt uppeftir um það bil er nú stendur hús prentarafélagsins við Hverfisgötu, neðan við Traðarholt og að Lauga- vegi 3 sem nú er, en þaðan beint niður að læk, eins og gangstéttin norðan Bankastrætis liggur nú. En tún þetta skiptist í tvennt af tröð- unum miklu, sem náðu frá Traðar- koti niður að lækjarósnum, og voru aldar 120 faðmar á lengd. Eftir að Gissur var hrakin frá Arnarhóli bjuggu þar tómthús- menn, fyrst Sigurður Magnússon smiður frá Skálabrekku. Hann var jafnan kallaður timburmaður, og við hann var kenndur Timbur- mannsbærinn, nú Tjarnargata 5 B. Húsakosti jarðarinnar tók mjög að hnigna upp úr þessu, því að þurrabúðarmenn voru ekki skyld- ugii að sjá um viðhald húsa, og ekki mun Guðmundur „ökonomus“ hafa hugsað um það. Þegar hann lét af ráðsmennsku tukthússins, voru húsin tekin út og voru „í mestu niðurlægingu" Baðstofan þar er þá talin 10 alnir á lengd, en ekki nema 3% alin á breidd. Þetta ár fluttist þangað Ólafur Valdason frá Rauðará og átti þar lengi heima. Hann var faðir Hróbjartar í Traðarkoti, sem var hinn efnileg- asti maður í æsku, heljarmenni að burðum og syndur sem selur. En hann lagðist í óreglu og gat sér það orð, að hann væri mesti brenni -vínsberserkur bæarins. Ólafur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.