Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1953, Side 8
430
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
sent til Rússlands og svaraði Gorki
með því, að hætta að senda greinar til
rússneskra blaða.
í lok ársins 1923 flýði Gorki frá
Beilín — já, beinlínis flýði, vegna
þess að hann var dauðhræddur um að
kommúnistar mundu ná völdum í
Þýzkalandi. f bréfi, sem hann ritaði
Chodasjewicz daginn áður en hann fór
þaðan, segir hann á þessa leið: -
— Mér berast svo hryllilegar fréttir
frá Rússlandi, að hárin rísa á höfði
mér. Meðal annars er þetta, að nú hafa
þeir fordæmt og bannað bækur þess-
ara rithöfunda: Platons, Kants, Schop-
enhauers, Wi, Solowjow, Mark Twains,
Ruskins, Nietzsches, Dostojewskij,
Tolstojs, Lasskows og margra annarra
siíkra .,afvegaleiðara" .... Láttu þér
ekki koma til hugar að þetta sé upp-
spuni. Það stendur allt í þykkri bók,
sem heitir: Leiðarvísir um að hreinsa
úr bókasöfnum lélegar og andkommún-
istiskar bækur. Og meira get ég sagt
þér. í sömu bók stendur: „í þeim
deildum, þar sem eru guðfræðibækur
og bækur um trúarbragðasögu, mega
hér eftir aðeins vera bækur, sem
kenna mönnum trúleysi“.
Þetta framferði blöskrar Gorki svo,
að hann kallar það andlegan hyenuhátt
og villimennsku. Og svo segir hann:
„Ég var kominn á fremsta hlunn að
rita stjórninni í Moskvu og segja mig
úr sovét þjóðfélaginu ....“.
En hann gerði það þó ekki. Hann
flæktist til Tékkóslóvakiu og þaðan til
ítaliu. Stjórnin í Moskvu heimtaði að
hann kæmi heim, og Stalin lofaði hon-
um öllu fögru. Hann lét undan og fór
heim til Rússlands 1928. Hann andaðist
1938, einmitt í þann mund er ofsókn-
irnar hófust gegn hinum gömlu bylt-
ingarmönnum. Tveimur árum seinna
voru þrír helztu læknarnir í Kreml
ákærðir og dæmdir til dauða fyrir það
að hafa myrt Gorki.
Veiztu þetta
NEW YORK skiftist í fimm megin-
hverfi og þess vegna eru fimm stjörn-
U” í skjaldarmerki borgarinnar. í einu
hverfinu, Manhattan, eru göturnar
samtals 490 enskar mílur á lengd. í
5>»>5>!>5>«>5>£>5>*>5>!^5>S>S*S>5>S>5>S>5>£>5>£>5>Í>5>£>5>£>5>S>5>£>5>£>5>£>5
J4eÍ
ma
Brosir vor um bæjarhól,
bernsku minnar unaðsreit,
yfir flosið gult og grænt
geislar flæða, júnísól
hátt í dagsins heiði skín.
Sæll og ugglaus eins og barn
út í varpann ber ég þá
gömlu gullin mín.
Lít ég yfir vorsins vang,
við mér hlæja grös og blóm.
Gömlu vinir, þekktuð þið,
þennan hljóða ferðalang.
Þökk fyrir sönginn, þröstur kær.
Ungan hreif mig óðsnilld þín,
enn sem fyrr í brjósti mér
hljóðlát gleði hlær.
Man ég fyrr, að margt eitt sinn,
meðan vorið glaðast hló
bar ég út í bjartan dag
bláa gullastokkinn minn,
gæddi legginn lífi og sál,
gerði að hesti, hörpudisk,
hverri skel og völu gaf
skyn og mannamál.
Þegar lífsins hönd var hörð
og hryggði mína ungu sál
gott var hér að hjúfra sig
að hjarta þínu, móðir jörð.
Aldrei brást mér ástúð þín.
Þökk skal gjalda þina tryggð,
þér til dýrðar, móðir góð,
hljómi harpan míri.
Hér er enn hið sama svið,
sem ég forðum unni mest.
Heil og sæl, ó, sóley góð,
sú var tíð, að þekktumst við.
Enn er ferskur ilmur þinn,
geislar baða gulan koll.
Gott er nú að koma á
fund þinn, fífill minn.
Heill þér, æskuvillta vor!
Varpans græna, mjúka flos
geymir enn, ef gáð er vel
gáskafull og óræð spor.
Heill þér, æskudraumur dýr!
Meðal blóms og barnagulls
bernskan grunlaus orti hér
öll sín ævintýr.
Samúð yðar átti ég
áður fyrr í hverri raun.
Heil og sæl, ó, baldursbrá,
blómadrottning tíguleg.
Ljósið teyga litfríð blöð.
Yfir veröld barns og blóms
brosir sínum hæðum frá
geislamóðir glöð.
Gömlu vinir, vekið mér
von og trú á ljóssins mátt,
styrkið draums mins þrek og þor,^
þegar yfir heiminn fer
nótt af grimmum galdri full.
Haldið þið í hennar vá
helgan vörð um gullin min,
brothætt barnagull.
Böðvar Guðlaugsson.
borginni eru 733 barnaskólar og í þeim
850.000 börn og 33.000 kennarar. Sam-
anlögð lengd á skolpræsunum á Man-
hattan er 560 enskar mílur. Götu-
hreinsun í borginni er mikið verk, því
á hverjum degi verður að koma á brott
3400 bílhlössum af sorpi.
HEYRNARLEYSI stafar venjulegast af
meinsemdum í nefi og koki. Börn, sem
hafa þráláta kverkabólgu, heyra ver
en áður. Kveður svo ramt að þessu,
að svo er talið að 2—3 miljónir barna
í Bandaríkjunum heyri illa af þessum
orsökum.
C* w Q A Q. n C vV J3. 3 Q, 5. > C CP