Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1953, Page 6
428
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
er ekki um dropsteina að ræða,
heldur er skrautið líkast því að
það sé úr tærum krystalli. Hér hef-
ir vatnið frosið, er það hafði sigið
í gegn um berglögin fyrir ofan, og
myndað hinar furðulegustu súlur
og „kerti“, gljáþil og hríslur, sem
líkjast kóröllum. Sums staðar eru
tjarnir með glærum ís, og þegar
ljósi er brugðið upp, brotna geisl-
arnir margfaldlega, svo að það er
eins og menn séu komnir í ein-
hverja töfrahöll.
'——<
— Dúdúsen
Frh. af bls. 425
run sælgæti. Hann átti líka ljúf-
feng vín og veitti óspart. Varð
Spánverjinn brátt svo hreyfur að
hann vildi fara að dansa og eins
Keba. Og svo dönsuðum við þarna
um allt húsið þangað til við vorum
komnir að niðurfalli.
Á eftir sýndi Dúdúsen okkur
kirkjugarðinn. Eru þar nokkrir
steinkrossar á leiðum Evrópu-
manna. Sagði Dúdúsen að 12 þess-
ara manna hefði druknað í Fajara
á stríðsárunum. Á steinana var
skráð á ensku: Hann lét lífið fyrir
konung sinn og föðurland. Þá kom-
ust Rómverjar hinir fornu betur að
orði: Dulce et decorum pro patria
mori (Það er fagurt að falla fyrir
föðurlandið).
Annars getur varla dásamlegri
stað en þennan kirkjugarð, þar
sem allt er um vaíið hinum stóru
dökkrauðu rósum og þar sem enn
skrautlegri smáfuglar eru á
sveimi og syngja fegurðinni og
skaparanum lof yfir moldum hinna
framandi manna.
í Bandaríkjunum eru 900 útvarps-
stöðvar og þær útvarpa daglega
65.000 dagskrárliðum.
Skygnst inn
MEÐ hinum stóru fjarsjám skyggn
ast menn nú út í geiminn og hafa
fundið þar milljónir vetrarbrauta,
er enginn vissi neitt um fyrir
nokkrum áratugum. Með þessu hef
-ir hinn kunni heimur stækkað svo
óskaplega að menn sjá stjörnuþok-
ur sem eru í allt að 1000 millj. ljós-
ára fjarlægð frá jörðinni. Og vegna
þessa hafa menn orði'ð að breyta
hugmyndum sínum um heiminn og
mikilleik hans, sem er svo furðu-
legur, að hann yfirgengur allan
mannlegan skilning.
Á hinn bóginn hafa menn með
smásjánni skygnst inn í annan
heim, sem kalla má nýan heim, og
er ekki síður furðulegur. Þar hef-
ir hver uppgötvunin tekið við af
annari, og alltaf er skygnst lengra
og lengra inn í þennan nýa heim,
sem er ósýnilegur berum augum
og menn höfðu ekki hugmynd um
að til væri fyrr en Leeuwenhoek
fann upp smásjána. Að vísu höfðu
menn fundið upp stækkunargler
áður. í rústum Nineve-borgar hafa
menn fundið stækkunargler, gert
úr bergkrystalli rúmum 700 árum
áður en Kristur fæddist. Þess er
og getið um Nero keisara, að hann
setti gegnsæan stein fyrir auga
sér til þess að geta séð betur til
„Gladiatoranna“ þegar þeir voru
að berjast. Síðar fundu menn upp
betri stækkunargler, en þau gátu
aðeins stækkað og skýrt það, sem
augað sá, en ekki birt það, er aug-
að sá ekki, þangað til Leeuwen-
hoek fann upp á því að slípa gler
og setja þau í sjónpípu. En það var
fremur að þakka forvitni hans en
vísindamennsku — því að vísinda-
maður var hann ekki í þess orðs
skilningi — að hinn ósýnilegi líf-
í furðuheima
heimur opnaðist sjónum manna.
Leeuwenhoek fór með sjónpípu
sina eins og krakki mundi fard með
leikfang. Hann þurfti að skoða alla
skapaða hluti í henni og sjá hvað
þeir breyttust. Og meðal annars
skoðaði hann vatnsdropa, til þess
að vita hvernig hann mundi líta
út í smásjánni. Og þá skeði undrið
mikla. í hinum tæra vatnsdropa sá
hann óteljandi lífverur, sem varu
þar á þönum fram og aftur. Hann
hafði fundið gerlana, þessar furðu-
legu verur, sem hafa svo stórkost-
leg áhrif á annað líf á jörðunni,
bæði til hins betra og hins verra.
Eftir daga Leeuwenhoeks var
farið að gera endurbætur á smásjá
hans og tókst mönnum að gera
hana furðulega fullkomna. En
lengi vel voru henni þó takmörk
sett. Og þau takmörk setti birtan.
Það er ekki unnt að sjá neinn hlut,
nema hann sé svo stór, að hann
geti endurkastað ljósi. Lengi vel
gátu menn ekki greint í smásjá
það, sem styttra var en hálf bylgju-
lengd ljósgeislans. En það þótti vís-
indamönnunum ekki nóg. Hvað er
þar fyrir handan? spurðu þeir
sjálfa sig. Þess vegna var það að
Ernest Abbe táraðist út af því á
síðustu öld, að mannkyninu jnundi
aldrei takast að sjá það sem minna
væri en fermiljónasti hlutinn úr
þumlung.
Þó hefir þetta tekizt. Louis de
Broglie tókst 1924 að mæla út-
geislan frumeindanna og fann þá
birtu, sem hefir miklu minni
sveifluhraða heldur en dagsljósið.
Upp úr þessu kom svo rafeinda-
sjáin. Og með tilstyrk hennar hefir
tekizt að skygnast miklu lengra inn
í ósýnisheiminn, heldur en áður
i