Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1953, Side 1
28. tbl.
Sunnudagur 19. júlí 1953
XXVIII. árg.
Eggert Magnússon;
Endunniniiingtir frá Afríku
Höfundur þessarar greinar, Eggert Magnússon að Engjabæ við
Reykjavík, er lesendum að góðu kunnur áður fyrir greinar, um
ævintýraleg ferðalög sín. í Jóla-Lesbók 1950 sagði hann frá veru
sinni í Gambíu í Mið-Afríku og lýsti þar landi og háttum. Hér
kemur nú grein til viðbótar þeirri frásögn og segir frá nokkrum
ævintýrum, sem hann lenti í þar.
DÚDÚSEN var ættaður frá Bissa-
gos-eyum, sem teljast til portu-
gölsku Afríku. Sagt er að Kartagó-
maðurinn Hanno hafi fundið eyar
þessar fyrstur manna árið 480.
Hann gekk þar á land með mönn-
um sínum og hittu þeir þar fyrir
kafloðna menn, sem voru algjör-
lega viltir og bitu frá sér eins og
óargadýr þegar þeir Hanno reyndu
að hanasama þá. Það var nú reynd-
ar ekki undarlegt, því að þetta
voru Gorilla-apar.
Dúdúsen var mjög svipaður
Gorilla, ákaflega herðabreiður og
hálsstuttur, og kom þetta bezt i
Ijós þegar hann sat og horft var
á baksvipinn á honum. Hann var
ramur að afli og kunni lítt að hræð
-ast. Báru því allir óttablandna
virðingu fyrir honum, því að það
var einkis eins manns færi að fást
við hann.
Hann var alltaf kallaður vaktari,
vegna þess að hann helt vörð um
veiðarfæri og útgerðarvörur, sem
geymt var, bæði í tjaldi hjá Gunjur
og í flugskála hjá Yundum. Auk
þess átti hann að saga niður sterk-
ar bambusstengur og laga þær
þannig til að hægt væri að nota
þær við túnfisk-veiðarnar. Þessar
stengur voru bundnar þrjár og
þrjár á borðstokka bátsins og voru
endarnir, er inn í bátinn sneru,
festir við sterka gorma, sem gáfu
eftir þegar túnfiskarnir byrjuðu
átökin. Á ytri endunum er 18
faðma langur taumur og sérstakur
túnfisköngull á endanum. Þessi
veiðiaðferð var tekin upp þegar
herpinótarveiði hafði mistekist,
3' » 5
S r/ to to ii, ^ q £,* <
o* > a,
' Xr fc O- & 2 t)
n:
S S: