Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1951, Síða 12
. 200
LESBÓK MORGUNBLADSINS
höfðingjans, sem aðrir verða að
þola,“ segir Gröndal. Stiftamtmað-
ur bjó að vísu í húsinu, þegar bakk-
inn var hlaðinn, svo að það hefur
þá verið gert til heiðurs við hann.
Jaí'nhliða þessum framkvæmd-
um var sú kvöð lögð á þá, sem
áttu heima í Lækjargötu, að þeir
settu laglegar grindur meðfram
læknum, hver fyrir sinni lóð og
heldi þeim við. Var þetta gert til
þess að afstýra því að menn hröt-
uðu þar ofan í lækinn í myrkri.
Þetta var gert, en lítið var um við-
hald og grotnuðu grindurnar niður
og brotnuðu. Því var það sumarið
1874, þegar farið var að búa undir
konungskomuna, að húseigendum
þarna var gcrt að skyldu að setja
grindur meðfram læknum, alla leið
frá Bakarabrúnni suður að Skóla-
brú, því að lengra náði gatan þá
ekki. Var húseigendum og skipað
að mála þessar grindur fagurlega,
því að um þessa götu átti konungur
og fylgdarlið hans að ganga. En ef
húseigendur vildu ekki værða við
þessu skyldi bærinn láta gera það
á þeirra kostnað. Grindurnar komu
og voru fagurlega málaðar, en um
viðhald þeirra fór líkt og áður, að
þær grotnuðu niður og brotnuðu og
voru seinast teknar burtu.
Árið eftir konungskomuna voru
lækjarbakkarnir hlaðnir upp frá
Skólabrú suður að tjörn og á næsta
ári var Lækjargatan iengd að tjörn
-inni. Sama árið gerðist merkis-
atburður hjer í bænum. Þá var
byrjað að koma upp götuljósum.
Var fyrsta ljóskerið sett við lækinn
hjá Bakarabrú og kveikt á því 2.
september um haustið. Að vísu
voru þetta aðeins steinolíuljós, og
þótt þau fengi seinna nafnið „grút-
artýrur“, þegar menn fóru að venj-
ast betri Ijósum, þá þóttu þau fyr-
irrriynd á sinni tíð og vöktu al-
mennan fögnuð bæarmanna. Með
þrím kom allur annar og hlýrn
svipur a baÉinn a dnrunum kvold-
um. Enn muna margir eftir þessum
Ijóskerum og manni, sem gekk um
bæinn þegar rökkva tók, og tendr-
aði ljósin hvert af öðru.
LÆKURINN tók sjálfkrafa og fyr-
irhafnarlaust við öllu leysingavatni
og rensli úr holtinu. En niðri í Mið •
bænum var öðru máli að gegna.
Var þar lengi örðugt um frárensli.
Fyrsta göturennan var gerð í miðju
Aðalstræti frá Klúbbnum niður að
sjó. Ut af því mannvirki urðu heit-
ar deilur, sem skiftu mönnum í tvo
flokka. Brátt fór þó svo, að allir
sáu að rennur voru nauðsynlegar.
Var þá lögð renna eftir endilöngu
Austurstræti og henni ætlað að
flytja alt skolp og leysingavatn
austur í læk. Á þessu vildu þó
verða misbrestir. Hallinn var lítill
og rennan var ekki hreinsuð nema
stöku sinnum, og þá ef til vill ekki
af mikilli vandvirkni. „Þeir, sem
á seinast liðnum vetri áttu að
hreinsa þessa rennu, þóttust aldrei
betur fullnægja skyldu sinni við
bæinn en þegar þeim tókst að
dyngja sem mestum óhroða og for-
arhaugum upp að húsum manna“,
sagði Hannes kennari Árnason í
ágúst 1858, er hann kærði fyrir
bæarstjórn að rennan væri bæði
hættuleg og daunill. Gengu svo
kvartanir um þessa rennu í mörg
ár, ýmist fyrir það hvað illur daunn
væri af henni ,eða þá fyrir það að
hún stíflaðist í frostum á vetrum.
Bæarstjórn ljet byrgja rennuna (og
aðrar rennur) með fjölum, svo að
þær væri ekki hættulegar fótgang-
andi mönnum. En daunninn varð
hinn sami. Þá kom bæarstjórn það
eitt sinn til hugar að láta lækinn
hreinsa rennuna í Austurstræti.
veita honum upp í hana og láta
strauminn skola rennuna að Widi-
löngu. Þetta var hið mesta snjall-
ræði, en því miður reyndist það
óíramkvæm.anlegt.
Undir aldamotm var svo gerd ný
renna í Austurstræíl rarðanmegin,
miklu stærri en h'n var. Átti hún
að geta tekið við ölh; leysingavatni
og flóðum. Varð þetr.a til talsverðra
bóta, en almenningi var yfirleitt
illa við rennuna vcg.ra þess hvað
hún hafði orðið dýr og kallaði hana
„gullrennuna“ í gremju sinni.
HJER má geta um citt mál, sem
komst á gang 1884. Þá gerði Luders
múrmeistari bænum það tilboð að
þurka tjörnina, og vildi hann fá
kr. 7112.50 fyrir snúð sinn. Var þaö
í sjálfu sjer lítið fyrir svo mikið
verk. Með því að þurka upp tjörn-
ina átti lækurinn að hverfa og aldr-
ei framar vera hætt við flóðum í
bænum. En auk þess fengi bærinn
víðáttumikið byggingarland þar
sem tjörnin hafði verið. Bæar-
stjórn tók þetta mál alvarlega og
kaus nefnd til þess að athuga það.
Voru í henni þeir Magnús Stephen-
sen, Eiríkur- Briem og L. E. Svein-
björnsson. Þeir munu haía lagt til
að tilboðinu yrði hafnað, og sje
þeim þökk fyrir það. Þeir, sem nú
byggja þennan bæ, munu síst af
öllu vilja missa tjörnina, enda þótt
hún geti nú tæpast kallast nema
svipur hjá s.jón frá því sem fyrr
var. En mnhyggja manna fyrir
tjörninni kemur fram í því, að nú
á að íara að sýna henni sóma.
Þegar fram yfir aldamótin kem-
ur, er hleðslan í læknum mjög far-
in að gefa sig og þurfti mikið við-
hald. Var lækurinn þá oft á dag-
skrá og hvernig ætti að fara með
hann. Seinast var afráðið að gera
heljar mikið holræsi sunnan frá
tjörn til sjávar, hleypa honum þar
í og byrgja svo yfir alt. Því verkl
var lokið 1911 og síðan rennur læk-
urinn neðanjarðar, en götur komn-
ar þar sem hann var áður.
—oOo—■
Andspænis Lækjartorgi stend-
ur annað elsta hús bæ-
anns. l'lestir hafa gleymt, að