Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 43 Útsýn frá Tacoma. lensku bergi brotnar, þó ekki sje um neinn sjerstakan íslenskan fje- lagsskap að ræða, svo kunnugt sje. Þarna á heima kona, sem á það fyllilega skilið að frá henni sje sagt „úti á íslandi“ — svo oft og víða hefur hún sungið íslenska söngva og sagt frá ættlandi sínu hjer „í vestrinu fjarst“, Hennar hefur að vísu verið getið í samkomufrjett- um í vestur-ísl. blöðum, því hún er á hverju ári fengin til að syngja á ísl.dögum og öðrum samkomum, í Seattle, Blaine eða Vancouver B. C. Canada. En þar fyrir utan hefur hún leyst af hendi mikið verk í þágu sönglistar og fjelagslegra samtaka í Tacoma, þar sem hún hef ur verið búsett ásamt manni sín- um síðan 1935. Ninna Stevens er íædd 7. febr. 1903 í svonefndri Hallson bygð í N.-Dakota ríki. Foreldrar hennar (bæði dáin) voru þau Ingibjörg og Halldór B. Johnson bændafólk í íslenska landnáminu í N. D. Hall- dór var fæddur að Sleitubjarnar- stöðum í Kolbeinsdal í Skagafirði. Faðir hans, Björn Jónsson var frá Ilaga í Aðaldal í S.-Þingeyjarsýslu. Móðir Halldors var Sigriður Þor- láksdóttir, alsystir Gísla hrepp- stjóra á Frostastöðum og Guðmund ar málfræðings. — Ingibjörg, kona Halldórs, var fædd í Winnipeg, Canada. Faðir hennar hjet Pjetur Ó. Hansen, sonur Hansens faktors og konu hans Önnu Sigríðar Þor- leifsdóttur. Pjetur var frá Saurum á Skagaströnd í Húnaþingi. Kotia Pjeturs hjet Guðlaug og var dóttir Jóns ívarssonar smiðs frá Skaga- strönd. Ninna Stevens heitir fullu nafni Jónína Guðlaug — en hún hefur frá barnæsku verið kölluð Ninna, og þekkist því undir þessu stutta og viðfeldna nai'ni. — Frá því fyrst að hún man eftir sjer var „sungið og spilað“ á heimili hennar. Móðir hennar átti lítið stofuorgel, og fað- ir hennar fiðlu. — Móðir hennar dó þegar Ninna var 10 ára gömul. Eftir það ólst hún upp hjá móður- foreldrum sínum, sem bæði voru gefin fyrir söng. Árið 1912 flutti fjölskyldan vest- ur á Kyrrahafsströnd — settist að í Blaine, Washington. Þar lauk Ninna barnaskóla og „High School“ námi, og lærði að spila á píanó. Strax sem því varð viðkomið stund aði hún söngnám hjá góðum kenn- urum og hefur haldið sjer við það jafnan síðan. Rödd hennar vakti snemma eftirtekt — há og þrótt- mikil — með fögrum hreim og blæ- brigðum. Þar með fylgir persónu- leiki sem er hlýr og laðandi í túlk- un söngvanna. Áhugi hennar og dugnaður í að afla sjer mentunar á þessu sviði er sívakandi. Hún hef- ur notið kenslu hjá ágætum kenn- urum. — Jafnframt hefur hún sjálf kent ungu fólki á píanó, og til söngs. — Þar að auki hefur hún lagt fyrir sig að stjórna og æfa söngflokka. Hún hefur stjórnað ýmsum kirkjukórum og karlakór Norðmanna í Tacoma stýrði hún í 4 ár. Fyrir 7 árum stofnaði hún kvennakór, sem syngur sjerstak- lega skandinavisk lög. Síðan hún var unglingur í skóla hefur hún verið sólósöngvari. Hún hefur komið fram á fleiri söng- samkomum og mótum, smáum og stórum en nokkur tök eru að hafa tölu á. — Til þess að geta eignast íslenska music hefur hún orðið að skrifa upp heilar syrpur. Hjer vest- ur á strönd mun varla nokkur hafa safnað jafn miklu. Hún syngur ís- lensku uppáhalds þjóðlögin oft og oft á amerískum samkomum — út- skýrir þau stuttlega fyrst. Á mörg- um samkomum í Tacoma hefur hún sagt frá íslandi og svo sungið söngvana líka til að kynna ættland sitt, þessi glæsilega og vinalega kona. Hvar sem liennar nýtur við í fjelagslegum samtökum cr hún ó- metanleg stoð í listrænum efnum. Heimili hennar er gestrisið og með gleðiblæ, enda er hún gift ágætum íslendingi, A. Marchall Stevens, sem fylgist með af mikilli samúð í öllu er lýtur að söng. Jakobína Johnson. ^ >W

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.