Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.1945, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.1945, Blaðsíða 8
432 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS inörgum bílnum, sem rennur yfir Þorskafjarðarheiði, eigi eftir að verða ónytjungsháttur kaupstaðar- skrílsins, og bili bíllinn, munu far- þegarnir í flestum tilfellum veigra sjer við að fara út — vegna veðurs! Þessir verkamenn hljóta ]jó að fá hærra kaup heldur en þeir, sem vinna niður í bygð, gætu menn hald ið. En sannleikurinn er samt sá, að fyrir sömu vinnu er greitt í kaup- stöðunum, sem þessir vegamenn eru frá nærri 100 krónum meira á viku — eitt hundrað krónum meira á viku! Þeir fá þó að vinna 60 stuiid- ir á viku en í kaupstöðunum 48. En enga eftirvinnu má þó borga með eftirvinnukaupi. Og tímakaupið er það miklu lægra á þessu kaups- svæði, að vegamenu á Þorskafjarð- arheiði fá heldur lægra kaup fyrir daginn þótt þeir vinni klukkutíma. lengur en verkamenn heima hjá þeim. En hvað er það þá, sem dregur þá til Þorskafjarðarheiðar? Um flesta er það svo, að þeim finnst ekkert sumar vera, nema þeir sjeu úti á landi — komist út úr bænum. Þeir vilja brevta til eftir inniset- ima um veturinn, enda flestir í skól- um á veturna. Svo koma þeir hress- ir og endurnæðrir heim um haustið og kunna vel að meta kaupstaðinn eða borgina eftir langa útilegu. — Það er altaf gaman að koma heim eítir langa fjarvist. Það er emnig skemtilegt að búa í tjöldum, þótt það sje oft kalt, og það er oft fjör- ugí ' r.vona flokkum, ef menn eru '1 i orr uthvað fjör er í þeim 1 ’ ð vantar ekki fjörið í flokk- : Þorskafjarðarheiði, hvorki í vinnutíma nje utan. Það er ýmis- legt gert og hugsað — menn fara jafnvel að vrkja. Einn þeirra skrapp r.jett sem snöggyast út í þokuna, og þegar hann kom aftur var hann orðinn skáld. Sönnúnargagnið er á þessa leið: Ekki má hjá mönnum spillast máttur, vit nje hyggni. Iljer er ekki vandi að villast, varla meters skyggni. Og vegamenn yrkja sjálfir og syngja: Loftslagið er fiilt og frekt, fýla ,þoka, rosi. Umhverfið er eyðilegt, urðir. sandar, mosi. Það er nauðsynlegt að hat’a eitt- hvert viðfangsefni, og einn tekur að glíhia við mikla rímþraut, að þvi er honnm finnst. lllaupland kalla þcir það land, sem auðvelt er að rvð.ja. Ilamast þeir á hlauplandi, halda s.jer í raup-standi. Strákur hver er staupfjandi. stendur slemmu í kaup-grandi. Annar lýsir döpru dapurlega : Iljer er gras, sem hvergi slæst. Iljer er vatn, sem ekki næst, nokkrar sálir, sem að leiðist, og silungur. sem ekki veiðist, Já, þau eru mörg viðfangsefnin og áhugámálin þeirra vegamanna. Eitt er ])ó æðst og mest — að tengja saman veginn að norðan og sunnan hið allra fyrsta. Nú vinnur annar flokkur á móti þessum að því að ryð.ja þann spotta, sem enn er ó- ruddur. Þegar þeir hafa mætst og bilið á milli þeirr styttist óðum, þá geíur þú lesadi gúður. farið á bílnuin þínúm til Isaf.jarðardjúps, og jeg var beðinn að óska þ.jer góðrar ferðar frá vegamönnum á Þorsk a fja rða rheið i. Sveinn Ásgeirsson. Gamall skoti kom inn í fornversl- „t’að er .jú innkaupsverðið" svar- un og stóð lengi og athugaði gamalt aði fornsalinn. sígilt skáldverk. sem hann sá þar. wm Loksins vogaði hann að spyrja: „Hvað kostar hún þessi'?“ „Eitt pund og tíu shillinga", svar aði fornsalinn. Skotinn kastaði bókinni reiður á borðið og rauk á dyr. En viku seinna kom hann samt inn í versl- unina at’tur og lagði peningana á borðið. „Nú kostar hún tvö pund og 10 shillinga", sagði kaupmaðurinn. . Skotinn varð bálvondur og þaut út í bræði. Enn kom hann aftur eftir eina viku. ,,1'erðið er núna þrjú pund og 10 shillingar“, var honum sagt. En nú sneri hann ckki aftur. Jlann henti peningunum á borðið, en gat ekki stillt sig um að spyr.ja. „llvað ertu að gera með þessa 10 shillinga, fvrst þú selur bókina orðið svona dýrt V‘ — llvernig gastu fengið konuna þína til ])ess að hætta við að safna forngripum ? — Ilún var altaf að suða í m.jer að gefa sjer bíl, og jeg keypti handa henni Ford. módel 1910. ■Ar „llvað er að sjá þetta“, sagði presturinn, þegar hann hitti Jóa sífulla á götu, ..þ.jer eruð ennþá drukknir. Jeg hjelt að þjer væruð gengnir í stúku.“ „Já, en t’innst yður það ekki stórmerkilegt, herra prestur, að síð- an jeg gerðist bindindismaður, þoli jeg svo miklu minna en áður“. ★ Teskeiðar þekktust ekki í Aber- deen fyrr en fyrsta veitingahúsið var reist þar árið 1885.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.