Lesbók Morgunblaðsins - 28.01.1945, Page 16
LESBÓK MORGUNBLAÐSTNS
T.6
Framh. af bls. 47.
Magnús Stephensen, Sigurður Pjet-
ursson, sr. .Tón Iljaltalín, Pjetur
prófastur á Víðivöllum, Stepán amt-
maður, Jón Espólín, Finnur Magn-
ússon, Ilalldór Iljálmarsson, Geir
biskup, inir síðustu Ilólabisknpar,
Árni stiftprófastur Ilelgason o. m.
íl. — Henderson inn enski beittist
fyrir því, að hnn fjekk fjárfúlgu
nokkra frá Englandi fyrir þyðingar
sínar og annan skáldskap, og eftir
meðma-lum Rasks, sem heimsótti sr.
Jón sumarið 1814, veitti Friðrik
konungur VI. honum árlegan styrk
allríflegan í viðurkenningarskyni
fyrir skálskap hans. Varð hann
góðfrægur í Englandi og Danmörku
meðal ýmissa menntamanna.
Fyrstur íslenskra skálda fær sr.
Jón skáldalaun. Að vísu naut hann
þeirra ekki sjálfur, heldur dánar-
bú hans, en viðnrkenningin var in
sama. Það skáld, er næst eftir hann,
fjekk skáldalaun, mun hafa verið
Matthías Juchumsson, um aldamót-
in 1900.
Sr. Jón Þorláksson var fulltrúi
þeirra manna, sem metur andann
meira en efnið og lætur því ekkert
tímanlegt tjón hrella sig.
áz
SPJÁTRUNOUR nokkur fjekk
lánað eintak af Plato hjá kunningja
sínum. Þegar hann skilaði bókinni
aftur, spurði kunninginn: „Jæja,
líkaði þjer ekki bókin?“
„Jú, mjer líkaði hún ágætlega",
var svarið, „en þessi Plato hefir
fjöldan allan af mínum hugmynd-
um“.
★
— En hvað er gaman að lesa um
friðinn.
Missti embættið
fyrir konuna
ENGUM stjórnarerindreka Egyptalands er leyft að
kvænast erlendri konu. — Dr. Hassan Nachat Pasha, fyr-
verandi sendiherra Egypta í London, varð þvi að láta af
embætti til þess að geta gengið að eiga Patricia Mary
Pansy Priest, 23 ára gamla breska kenslukonu. Dr. Pasha
er sjálfur 55 ára að aldri. — Brúðhjónin sjást hjer á mynd-
inni rjett eftir brúðkaupið í egyptska sendiherrabústaðnum
— Hvað er um hann? Er kominn
friður?
— Já, allsstaðar friður.
— Ekki stendur það í mínu blaði.
— Hvenær var yðar gefið út?
— Árið 1935, það var utan um
morgunmatinn minn.
★
— Fáið þjer yður altaf kalt
steypibað á morgnana.
— Nei, það tók of langan tíma.
— Það cr ómögulegt, maður cr
ckki nema tvær mínútur undir bun-
unni.
— Nei, en svo varð jeg að liggja
klukkutíma í rúminu, svo mjer hitn
aði aftur.
★
Frúin: — Ilafið þjer sópað bak
við hurðina, Jóna?
Vinnustúlkan: — Já, frú, jcg
sópaði öllu bak rið hurðina.