Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1944, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1944, Blaðsíða 5
LESBÓK MORG'UNBLAÐSINS fp, f'"W w w 469 í skógarfurulundinum að Hallormsstað. Gildari trjen á myndinni eru gróðursett árið 1906. Hin grennri gróðursctt 1922. Myndin tekin 1944. Hæstu fururnar eru 7 inetrar. . eí slíkt þætti æskilegt, en auk þil- platua mætti vinna úr birkiviðnum ýmis konar búsáböld, smámuni og jafnvel húsgögn, svo sem stóla, smáborð o. fl. Á slíkan hátt má gera viðinn úr skógum Fnjóska- dals og nágrennis mjög verðmætan án þess að nokkur kvistur fari til einskis. Þarna er líka auðvelt að fá afl með samkomulagi við Lax- árvirkjunina. Að vísu er enn of snemmt að hefja annan undirbúning að slíku máli og þessu en þann, að friða og rækta sem mest skóg- lcndi á þessum slóðiun. En að 30 árum liðnum, og ef til viil fyrr, má vel vera, að þetta verði orðin knýjandi nauðsyn, Þess vegna verð- ur að muna eftir slíkum skóglcnd- um þegar gerð er áætlun um friðun skóglenda. Að endingu má benda á, að kom- ið gæti til mála á næstu árum að friða skóglendi á þeim slóðum, sem crlendar barrviðartegundir væri liklegar til að ná góðum þroska. í því sambandi má benda á hraun- in um neðanvert Grímsnes, sem nú b’era mjög ljelegt beitikjarr, en væri að öllum líkindum mjög vel failin til þess að gróðursetja í þeim sitkagreni, undir eins og kjarrið hefir náð nokkurum þroska. Yerður því á næstu árum að taka saman greinilegt yfirlit um skóglendi landsins og flokka það niður eftir þeirri nauðsyn, sem er á að friða þau. Tilraunastarfsemi og kynbætur Framkvæmd þessa þátts skóg- ræktarstarfsins hlýtur að bíða um nokkurra ára skeið, uns út hafa komið menn þeir, sem léggja stund á kynbætur plantna og tilrauna- starfsemi. En það eru mörg vanda- mál, sem úrlausnar bíða viðvíkj- andi ræktun trjáa. Af þeim má t. d. nefna sundurgreining hinna, ým- issu bjarkaafbrigða eða tegunda. sem vaxa hjer á l.-mdi, og úrval góðra stofna.eða afbrigða til rækt- unar og kynbóta. Á þann hátt má fá .hraðvaxta og beinvaxnar bjark- artégundii’, sém væri hvort tveggja í senn, nógu harðgerðar til að vaxa hjer án þess að kala eða kræklast af völdum yéðráttu, og gefa því langtum betri við en* skógar uú gera. Ermfremur þyrfti að finna góðar aðferðir við kynlausa æxlun. sem flestra trjátegunda, sem lík- legar væri til að gefa góða raun hjer á landi. Með því móti má oft fá góða stofna, sem taka foreldr- unum franí, og loks má skapa nýj- ar tegundir trjáa með kynbótum eða með litningafjölgun. Ýms Hnn. ur verkefni en þessi, er hjer voru nefnd, krefjast úrlausnar manna, er hafa sjerþekkingu á ýmsum, sviðum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.