Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Page 25

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Page 25
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 417 Börn Jens Sigurðssonar rektors. TaliÖ frá vinstri: ÞórÖur stjórnarráÖsfulltrúi, Björn Mentaskólakennari, sr. SigurSur í Flatey, Jón yfirdómari, Bjarni lœknir. Systurnar: Talið frá vinstri: Ingibjörg, GuÖlaug, kona Sigurðar sýslumanns Jónssonar í Stykkishólmi, Þórdís kona sr. Þorvaldar Jónssonar aÖ Setbergi, síÖar á ísafirði, og Ragnhei'Sur. stólinn sinn. En síðasta morgun- inn fór hann inn í læsta herberg- ið sitt, en þar geymdi hann pen- ingana sína. Þegar við vorum komin út í forstofuna á leiðinni inn 1 dagstofuna stakk hann að mjer specíu. — Á jeg að færa mömmu þetta, sagði jeg. — Nei, sagði hann, þú átt að eiga þetta sjálf, því þú hefir verið svo alúðleg við mig. Þá kom móðir mín fram í forstof- una og kystum við hann báðar fyrir specíuna. Það var fastur siður afa alla tíð, á meðan hann var ferðafær um bæinn, að hann fór þann fyrsta hvers mánaðar til landfó- geta að taka út launin sín, og síðan í tvær verslanir, Hav- steensverslun og Thomsens og lagði 40 dali inn í reikning sinn á hverjum stað. Sömu upphæðina lagði hann inn mánaðarlega, alt árið, hvað sem úttektinni leið, og átti þar mikið inni þegar hann dó. Á hverjum miðvikudiegi og laugardegi fjekk móðir mín spe- cíu hjá afa, til þess að kaupa fyrir mjólk og brauð til heimil- isins. Sjaldan sá jeg afa lesa, þar sem hann sat á daginn í stólnum sínum. En þegar hann leit í blað eða bók notaði hann aldrei gler- augu, en altaf stækkunargler, er hann hafði hjá sjer. Heyrnin var mikið farin að bila, og átti hann erfitt með að heyra hvað sagt var í kringum hann. En annað var það, þegar menn komu beinlínis til að heim- sækja hann og töluðu við hann einan. Þessir komu oftast til hans, Hannes Árnason, Hall- grímur Sveinsson og Bergur Thorberg. „Verði Guðs iÐ vorum þrjú ár hjá afa. Eftir tveggja ára veru þar dó móðir okkar. — Vestur í Sauðagerði dó hálfsystir hennar. Börn hennar vildu endilega að mamma væri við þegar hún yrði kistulögð, svo hún fór vestur eftir — Það var frost- stormur af norðri, og mömmu varð kalt á leiðinni. Hún lagðist í lungnabólgu og dó eftir nokkra daga. Afi var altaf að koma inn til hennar og spyrja hvernig henni liði. Þegar hún hafði skil- ið við var Ingibjörg Petersen látin segja honum frá því, að Drottinn hefði tekið dóttur hans til sín. Verði guðs vilji, sagði hann. Svo sagði hann ekki meira. Þegar mamma var jörðuð, hjelt Hallgrímur Sveinsson hús- kveðjuna. Afi stóð við hliðina á prestinum meðan hann flutti ræðuna. Jeg man vel eftir því, hvernig hann var. Hann var klæddur í „diplomat“-frakkann sinn og hafði orðurnar á brjóst- inu. Hann studdist við stóran

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.