Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 403 þrjú andvörp og burtsofnaði sæt lega nokkru fyrir dagmál“. Það er róleg tign yfir þessari frásögn. Og það er tign yfir hin- um mikla kirkjuhöfðingja á bana- sænginni. Hann var þó ekki nema rúmlega 54 ára að aldri. Fáeinum dögum áður hafði hann látið í ljósi í brjefi til Rabens, að sig langaði ekki svo mjög til þess að lifa langa æfi, enda tók hann þá og andláti sínu með mikilli tign og hugarró. Jeg heyrði í æsku minni, að Vídalín hefði átt að kveða þessa vísu áður en hann lagði af stað frá Skálholti; Herra Guð í himnasal haltu mjer við trúna. Kvíði jeg fyrir Kaldadal, kvölda tekur núna. Hver reisir minnisvarðann? IPrestafjelagsritinu 1920 skrif- ar dr. Hannes Þorsteinsson þetta: „Þá er Ludvig Harboe fór úr Skálholti sumarið 1745 í eftirlits- ferð til Vestfjarða ásamt ritara sínum, Jóni Þorkelssyni, fyrrum skólameistara, tjölduðu þeir við Sæluhús, þar sem Jón biskup Vídalín hafði andast, og eins á leiðinni að vestan aftur. Voru þá liðin 25 ár frá láti biskups, og barst þá í tal milli Harboe og Jóns, að vel ætti við, að Jóm biskupi væri reistur minnisvarði á þessum dánarstað hans við Sæluhús. Mun Jón Þorkelsson hafa átt frumkvæði að þeirri uppá- stungu, og fól Harboe honum að semja áletranina (grafskriftina). Frá þessu skýrir J. Þ. í brjefi til síra Hjalta prófasts Þorsteinsson- ar í Vatnsfirði, ds. í Khöfn 8. maí 1748, sendir honum sýnishorn, er hann hafði samið, af grafskrift- inni1) og spyr hann um, hvers- konar minnismerki ætti að reisa yfir biskup“. Dr. Hannes skýrir svo nokkru nánar frá bollalegg- ingum þeirra um þetta, og segir svo að lokum: „Ekki er mjer kunnugt um, að þessi hugmynd — um minnismerki við Sæluhús yfir Jón biskup — hafi síðar verið tekin upp“. Nú er liðið á þriðja hundrað ára frá því er Jón Vídalín gaf upp öndina.við Sæluhús. Og ald- irnar hafa leitt í ljós það, sem þeir Harboe og Jón Þorkelsson gátu ekki sjeð jafnglögt, að Vída- lín gnæfir hátt yfir kennimenn *) Þetta grafletur þekkist nú ekki. H. Þ. þá, sem þjóð vor hefir eignast. Nú eru ekki heldur þeir eymd- artímar í fjárhagsefnum, sem þá hlutu að kyrkja í fæðingu allar framkvæmdir, sem nokkra fjár- muni þurfti til. Vill nú ekki einhver, sem þetta les, og Guð hefir blessað með góðum efnahag, láta svo sem 5-- 10 þúsund krónur í einfaldan stöpul á þessum stað? Áletrunina þarf ekki að sækja langt njc „dikta“ hana á latinu. Þar ætti ekkert að standa annað en nafu Vídalíns og það, að hann andað ist hjer 30. ág. 1720. Og svo síð- ustu orðin, sem þessi mikli kenni- maður mælti sjálfur. Þau sóma sjer vel: Jeg á góða heimvon. VÍDALÍNSMYNDIN (Sjá forsíðumyncL). ]i/f yndin af Jóni Vídalín biskup, sem birtist á 1. síðu í þessu tölublaði Lesbókar, er eftir teikningu. sem geymd er á Þjóðminjasafninu. Er hún nefnd „frummynd“ vegna þess, að þjóð- minjavörður lítur svo á, að þetta sje sú frummynd, sem hin alkunna mynd af Vídalín hafi verið gerð eftir, og sýnir hann nokkuð eldri, en hann er sýndur á þessari mynd. Þjóðminjavörður telur víst, að þessi mynd sje gerð af samtíðarmanni Vída- líns. og sje því mest á henni að græða, þó hún 'sje viðvaningslega gerð, um svip og útlit þessa merkilega manns. En engin tök eru á því, að vita um það, hver er höfundur myndarinnar. Um það verða gerðar ágiskanir einar. Smælki. Piltur, sem var ekki meiri maður en hann þóttist vera, og máske ekkert svipað því, var trúlofaður stúlku. Var "hann mjög hrifnin af unnustu sinni, eins og lög gera ráð fyrir. En hainn var ekki í neinum vafa um, að hún hefði valið hann vegna þeirra miklu yfirburða sem hann hafði fram yfir alla aðra menn í veröldinni. En einn góðan veðurdag sagði hann skilið við unnustuna. Vinir hans undr- uðust hvernig á þessu gat staðið, og spurðu hann hvað hefði komið fyrir. Hann sagði þeim þá upp alla sögu. Eitt sinn er þau sátu í einrúmi, spurði hann hana að því, hvernig á því stæði að hún lokaði altaff augunum þegar hann kysti hana. Því svaraði hún: ,,Ef jeg hef augun lokuð, get jeg vel látið mig dreyma, að það sje Clark Gable, sem kyssir mig“. Þá var unnustanum nóg boðið. ★ Flokkur trúðleikara hafði reist sýningartjald í þorpi einu, er feitur og búlduleitur maður kom að máli við íorstjórann og spurði hann að því, hvort hann vildi ekki ráða sig til að sýna átlist sína. Hann gæti borðað 25 linsoðin egg í einu og drukkið 3 lítra af vatni. Forstjóranum leist vel á þetta og kvaðst skyldi ráða rnanninn í 3 vikur. — En eruð þjer alveg viss um, sagði hann svo, að þjer getið þettaí Hann var í engum vafa. — Já, en á sunnudögum, sagði for- stjórinn, þá höldum við sex sýningar san.a daginn, svo þjer þurfið að sýna þessa list yðar hvað eftir annað, frá morgni til kvölds. Þá varð maðurinn hugsi. Síðan seg- ir hann. Ef jeg á að halda svona á- fram allan daginn, þá áskil jeg mjer rjett til að hafa klukkustundar mat- arhlje um miðjan daginn, til þess að rreta fengið mjer almennilegan mið- dagsmat. ★ Maður gekk á götunni í þungum þönkum. Utanbæjarmaður mætti hon- um og sýndist þar fara gamall kunn- ingi sinn en var þó ekki alveg viss. Hann beindi skrefum sínum til bæjar- mannsins og sagði: — Fyrirgefið. Þjer eruð vænti jeg ekki Hannes Hannesson ? — Nei, þajð er mjer alveg ljóst, sagði hinn. ★ Skoskur leikari kom að máli við leikhússtjóra. Leikstjórinn bað um að fá að sjá nafnspjaldið hans. Leikarinn: Má jeg þá fyrst sjá hvort þjer eruð hreinn um hendurnarf

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.