Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 2
 LESBÓK MOROUNBLAÐSINS 1' ' „Jesús Kristur er friðarhöfðinginn og heimsins skærasta Ijós ... Og Ijósið skín í myrkrinu ... (Jóh. 1, 5.) EGAR jólahátíðin er hringd inn að þessu sinni og helgi jólanna færist yfir, þá er það án efa sameiginleg ósk kristinna manna um gjörvallan heim, að rödd friðar- höfðingjans megni að hafa víðtæk og sterk áhrif og þá sjerstaklega á þá, sem heiminum stjórna, valdhafana, sem segja úrslitaorðin, og að nýr skUningur glæðist á því, að frið- ur á jörðu er hið fyrsta skilyrði fyrir vel- líðan og farsæld einstaklinga og þjóða. Friðvana jörð er og verður altaf heimur þjáninga og óhamingju. Á þessari hátíð ætti því engin bæn að vera oss ríkari í huga en bænin um f rið. Því að núlifandi mönnum getur ekki dulist bölvun ófriðgrins og allar þær meinsemdir og alt það böl, sem af honum leiðir. Og það eru margir, sem finna sárt til þess nú, um þessi jól. Kristi, hugsjónum hans og boðskap, hefir svo oft verið úthýst í þessum heimi, líkt og honum sjálfum var úthýst hina fyrstu jóla- nótt. Friðarhugsjpn Krists hefir verið úthýst. Þess vegna er mannkynið flak- andi í sárum. "y^iER minnumst öll frásagnanna um hætt- urnar, sem vofðu yfir hinni helgu móð- ur og barninu forðum. Móðirin og barnið eru ekki óhult í heim- inum um þessar mundir. Hún á það altof víða á hættu, þar sem hún situr í ást sinni og umhyggju með barnið í faðmi sjer, að ógurlegir atburðir gerist, að heimilið hennar verði brent upp og hún ásamt barninu sínu verði grafin undir rústunum. . .Ekkert er trygt eða örugt í þessum heimi. Mennirnir höfnuðu því, sem gerir lífið örugt — þeirri lífsskoðun, sem sagði: „Slíðra þú sverð þitt“. — En mundi nú ekki reynslan kenna oss — spyrja margir — þessi reynsla, sem er átakanlegri og sárari, en nokkrum tárum taki. Einhverntíma opnar reynslan augu mannanna fyrir sannleikanum. Vjer skulum vona að hún sje að gera það um þessar mundir, og að nú taki bráðum að birta upp. Og jafnvel þótt skuggalegt sje nú um- horfs og bjartsýnir menn hafi beðið mikið áfall í andlegum skilningi, þá er eins og von- irnar hækki, þegar Jólin koma. Frá Kristi stafar birta inn í skammdegismyrkrið. Hann kemur með sannleikann og býður mannkyn- inu hann að gjöf. Hann hefir gefið sjálfan sig — og staðfest þann boðskap, sem hann flutti heiminum með því að fórna lífi sínu á Golgata. Krossinn er heilagt sannleiks- og sigurmerki. Ef nokkurt afl getur sætt stríðandi mann- kyn, þá er það Kristur og kristindómurinn. Ekkert annað afl getur komið á friði og ein- ingu á jörðu. AÐ var nýlega haldin fögur og einkenni- leg guðsþjónusta í Englandi — ensk- þýsk guðsþjónusta er hún nefnd í erlendu blaði, sem mjer barst alveg nýlega. Það var enska flóttamannanefndin, sem efndi til hennar. Ritualið var flutt bæði á ensku og þýsku og beðið fyrir friði, á báðum málun- um. Sjerstaklega áhrifaríkt var, segir einn þeirra, er þátt tóku í þessari guðsþjónustu, er hvorir fyrir sig báðu fyrir óvinum sínum. Kristindómurinn og sú tilfinning, sem hann vekur, um andlegan skyldleika allra ma ma, er einasta bandið, sem tengir, í innra skiln- ingi, andstæðar, stríðandi þjóðir. í síðasta heimsófriði skeði ýmislegt fallegt á helgri jólanótt, sem sýndi mátt Krists í hjörtum mannanna. Svo mun enn verða á þessum jól- um. Og fyrir hans mátt mun sú stund nálg- ast, er hugsjónin rætist um „nýja jörð“, „nýjan heim“. Þess vegna fögnum vjer jólum, fögnum komu Krists — því að hann er í sann- leika Fr elsari heimsins. GLEÐILEG JÓL! Sigurgeir Sigurðsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.