Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 54
STJÓRNUN „Barnalækn avaktin er rekin sem einkafyrirtæki þeirra lækna sem þar starfa án opinberra styrkja annarra en mótframlags Trygginarstofnunar í komugjaldi, þar sem aftur á móti Lækna- vaktin og sjúkrahúsin eru fjármögnuð með tugmilljóna framlagi úr ríkissjóði á ári til að veita í mörgum tilfellum sambærilega þjón- ustu,“ segir Kristleifur. „Við höfum velt því fyrir okkur hvort opinberir aðilar ættu að koma inn í reksturinn með einhveijum hætti þar sem þjónustan hefúr fyrir löngu sannað sig. Þegar verkfall heimilislækna vofði yfir fengum við bréf frá borgarlækni um það að búast mætti við auknu álagi á Barnalæknaþjónustunni. Það út af fyrir sig er viður- kenning á þörfinni fyrir þjónustuna. Tilkoma vaktarinnar hefur einnig létt á barnadeildum sjúkrahúsanna. Fyrir utan þjónustu á stofu sækir fjöldi foreldra ráðleggingar í síma hjá Barnalækna- þjónustunni. Þrátt fyrir þetta er það vilji okkar eða vera óháðir hinu opinbera um reksturinn svo lengi sem þess er nokkur kost- ur en niðurgreiðsla annarrar vaktþjónustu vekur að sjálfsögðu upp spurningar um jafnræði gagnvart samkeppnislögum." Innbyggð samkeppni Varðandi samkeppni milli læknanna al- mennt segir hann að hún sé að mestu leyti innbyggð. „Þar sem verðið er hið sama hjá læknum með sömu sérgrein er samkeppni helst að finna í betri þjónustu sem skilar sér til lengri tíma. Nú er það einu sinni þannig að hver og einn leitar til þess læknis sem honum líkar við og því má segja að samkeppnin sé innbyggð," segir Kristleifur. Bannað að auglýsa Læknar mega ekki auglýsa starfsemi sína nema með tilkynningum um opnun stofu, breyttan stofutíma og flutning stofu. „Það er eðlilegt að læknar geti ekki auglýst kosti sína á kostnað annarra lækna. Hins vegar ættu þeir að geta aug- lýst meira í formi tilkynninga um þjónustu. Barnalæknaþjónustan gæti þá tilkynnt t.d. með auglýsingu að hún sé opin alla daga árs- ins nema jóladag og nýársdag og minnt á tilvist þjónustunnar með reglubundnum hætti. Einnig er þróun í vísindum og tækr.i það ör að almenningur getur ekki fylgst með nema hann sjái um það fjall- að, Ld. í formi tilkynninga. Varðandi framtíðina býst Kristleifur við aukningu á einkarekn- um læknafyrirtækjum. „Það er tómt mál að tala eingöngu um ríkisfyrirtæki í lækning- um. Þótt Islendingar séu fáir er grundvöllur fyrir einkarekstri og aukinni samkeppni. Það gefur sjúklingum meira val og þeir læra hvað felst í hugtakinu góð læknisþjónusta. Við sjáum það á barna- læknavaktinni að fólk kann að meta það sem þar er boði,“ segir Kristleifur Kristjánsson, barnalæknir og sérfræðingur í erfðasjúk- dómum. [E flðstaða upp á það besta Jens Kjartansson lýtalæknir er bæði hluthafi í Læknahúsinu hf. og Laser-lœkningu ehf í Domus Medica en Laser-lækningar tóku til starfa um síðustu áramót. æknahúsið hf. var stofnað fyrir fimmtán árum og var meðal fyrstu einkareknu handlæknastöðvanna. Hluthaf- ar eru nú 13 læknar og starfa þeir allir við stöðina. Læknahúsið flutti nýverið í nýtt og glæsilegt 300 fermetra hús- næði á 6. hæð í Domus Medica. Domus Medica er almennings- hlutafélag og á Læknahúsið hf. hlut í félaginu. Hlutafélag Domus Medica á þetta nýja húsnæði en eigendur Læknahússins eiga all- ar innréttingar og tæki. í húsnæði Domus Medica er rekin alhliða læknastarfsemi með læknastofum, bæði heimilislækna og sér- fræðinga, röntgengreiningu, rannsóknarstofum, apóteki og nú síðast bættust við skurðstofur Læknahússins þar sem starfa sér- TVfi ÞÚSUND AÐGERÐIR Á ÁRI Tvö þúsund aðgerðir eru framkvæmdar hjá Læknahúsinu á ári og kosta þær frá 2 þús. kr. upp i um 85 þús. kr. Meginreglan er sú að Tryggingastofnun greiði 60% af kostnaðinum og sjúklingur 40% en fari hlutur sjúklings ytir 12 þús. kr. fær hann afsláttarkort þannig að Tryggingastofnun greiðir enn stærri hluta kostnaðarins. fræðingar í svæfingum, almennum skurðlækningum, bæklunar- skurðlækningum, barnaskurðlækningum, lýtalækningum, þvag- færaskurðlækningum og æðaskurðlækningum. A sömu hæð er líka starfsemi Laser-lækninga ehf. sem tók til starfa um síðustu áramót, og hafa þessi tvö fyrirtæki sameiginlega móttöku. Sex lýtalæknar og einn æðaskurðlæknir eiga og reka Laser-lækningu. Fyrir utan lækna starfa þrír hjúkrunarfræðingar og einn ritari hjá Læknahúsinu og Laserlækningu. Jens Kjartansson lýtalæknir er einn hluthafa í Læknahúsinu en hann á einnig hlut í Laser-lækningu. Hann starfar í stjórnum beggja félaga, sem ritari í stjórn Læknahússins og stjórnarformað- ur Laser-lækninga. Að auki er hann yfirlæknir handlæknisdeildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. „Stjórnarstörfin eru alls ekki tímafrek enda hittast hluthafar nær daglega við vinnu sína. Stjórn er kosin til tveggja ára í senn og oft endurkjörin ef menn nenna að starfa áfram innan hennar. Ég hef gaman af þessu og sérstaklega af því við getum stjórnað þeirri umgjörð sem við vinnum í,“ segir Jens. Fullkomin aðstaða Læknahúsið hf. var áður til húsa í Síðumúl- anum. Þar var orðið mjög þröngt um starfsemina og þegar félagið jók hlutaféð á síðasta ári var ráðist í byggja upp nýja starfsemi í Domus Medica. Jens segir að skurðstofurnar séu ekki fullnýttar og hugsanlegt sé að fjölga hluthöfum til að fá betri nýtingu. í hús- næðinu eru tvær fullkomnar skurðstofur með einu stóru „vöknun- arherbergi" þar sem sex geta verið í einu. Þess utan eru tvö mót- tökuherbergi sem allir læknar hafa aðgang að, búningsherbergi fyrir sjúklinga, kaffistofa, þvottaherbergi með dauðhreinsitækjum og aðstaða til að pakka þeim. „Þessi aðstaða er með því besta sem fáanlegt er í dag að sjúkra- húsum meðtöldum,“ segir Jens. Laser-lækning er aðskilin starf- semi Læknahússins og hefur hún tvö herbergi til umráða: Mót- töku og svo herbergi inn af henni þar sem laserlækningatækið er. m 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.