Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 36

Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 36
STJÓRNUN „Ég sinni margvíslegum stjórnarstörfum umfram forsetastarfi KSI og forstjórastarli hjá kexverskmiðjunni Fróni. Ég er einnig stjórnarformaður í Islenskri getspá, Lottó- inu, og sit einnig í nefndum hjá bæði UEFA og FIFA,“ segir EggerL „Þegar ég tók við formennsku í KSÍ árið 1989 var ég búinn að vera formaður í knatt- spyrnufélaginu Val um nokkurn tíma og hafði því um skeið fylgst með málefnum KSI úr fjarlægð. Strax á þeim tíma var ég búinn að gera mér grein fyrir að reka þyrfti sam- band eins og KSI nákvæmlega eins og fyrirtæki. Reksturinn snýst að miklu leytd um að ná inn peningum og virkt aðhald til þess að láta tekjurnar nægja fyrir útgjöldum. Strax eftir að ég tók við formennsku hjá KSÍ var stefnt að öfl- ugu skrifstofuhaldi með góðum framkvæmdastjóra og góðu starfsliði. Þannig hefur starfsemi KSI mótast og vaxið mikið frá þeim tíma þegar ég tók við starfi sem forseti þess. Árið 1989 var velta KSI rúmar 40 milljónir en í dag er hún rúmar 160 miUjónir. Starfsemin hefur aukist gífurlega á þessum tíma.“ Eiga fyrir Útgjöldum „Markmið KSÍ er ekki að skila hagnaði, eins og er markmið fyrirtækja í viðskiptum, heldur fyrst og fremst að eiga fyrir útgjöldum. Það er reyndar mín persónulega skoðun að KSI eigi að safna varasjóðum. Það geta alltaf komið niðursveifl- ur í þessum rekstri og þá er gott að eiga eitthvert handbært fé tíl mögru áranna. Að ná því fram gæti hins vegar orðið erfitt fyrir hreyfinguna og hún gæti átt í vandræðum með að sætta sig við þannig stefiiu. Helstu vandamál KSÍ f dag, jafht sem annarra íþróttasambanda eftir að verkaskiptíng varð milli ríkis og sveitarfélaga um íþrótta- hreyfinguna, eru þau að sérsamböndin voru skilin eftír í einskis- mannslandi. Það er í raun og veru enginn sem hefur áhyggjur af uppbyggingu fyrir sér- samböndin. Hitt vandamálið sem snýr að okkur er að sérsamband eins og KSI getur í raun og veru þanist út í það óendanlega. Við erum í dag komnir með 4 kvennalandslið, en tíl samanburðar má geta þess að ekkert kvennalandslið var hér árið 1990. Karlalands- liðin eru einnig mörg og við erum með marg- víslega þjónustu fyrir hreyfinguna sem er í sjálfu sér af hinu góða. Aðalmálið fyrir KSÍ er að finna réttan flöt tíl þess að afla nægi- legra tekna sem nægja fyrir rekstrinum. Aðhalds er því þörf. Hægt er að halda því ffam að það verkefni hafi gengið allbærilega, en þetta er og verður vandamál. Mikið af mínum tíma á vetrinum hef- ur farið í að afla samstarfssamninga við KSI. Ég gerði mér strax grein fyrir því þegar ég kom til starfa að það dygði ekkert annað en að fyrirtækin fengju verðmæti þeirra peninga til baka sem þau legðu tíl KSÍ. Það er ekki lengur í gildi nein ölmusa fyrir hreyfing- una. Þarna eru hrein viðskiptasjónarmið sem ráða ferðinni og þar kemur að góðum notum að vera með ákveðna tengingu við við- skiptalifið. Ég hef fengið mikið út úr því að vera í starfi forseta KSÍ og vil miklu frekar horfa á þá hlið málsins en þann tíma sem ég eyði í starfið. Ég er að vinna að því áhugamáli sem ég hef haft frá því ég var smáguttí. Ég fæ tækifæri tíl að umgangast ungt fólk og ég hef alltaf haldið þvf ffam að ef maður hefur áhuga á einhveiju þá sé alltaf hægt að finna tíma. Ég tel til dæmis að star f mitt hjá KSÍ hafi ekki truflað mig sem forstjóra Fróns og lít raunar á það sem ákveðna hvíld frá starfi minu. Ég lít einnig á ferðalög, sem ég þarf að takast á hendur fyrir KSÍ, sem minn frítíma þótt ég þurfi að sinna skyldum sem forseti sambandsins,” segir Eggert S9 ENGIN ÖLMUSA í GILDI Það er ekki lengur i gildi nein ölmusa fyrir hreyfinguna - fyrirtækin verða að hafa hag af bví að styrkja KSÍ. Það eru hrein við- skiptasjonarmið sem ráða ferðinni. - Eggert Magnússon, lorseU KSÍ. Rekið eins og fyrirtæki / / Arni Þór Arnason, forstjóri Austurbakka, er formaö- / / ur Fimleikasambands Islands, FSI. □ rni Þór Arnason, forstjóri Austurbakka, sem meðal annars selur hinar þekktu Nike íþróttavörur, tók að sér for- mennsku í Fimleikasambandi Islands árið 1996. í formannstíð hans hefur verið mikill uppgangur hjá FSI, pen- ingamál sambandsins voru tekin traustum tökum og jafnvægi komst á reksturinn. Arni Þór var spurður að því hvernig það hefði atvikast að hann heíði orðið formaður Fimleikasambandsins. „Svona lagað kemur ekki fyrir menn nema þeir séu með ein- hvers konar félagsmálabakteríu. Ef þú hefur ekki bakteríuna, þá sleppur þú alveg við að taka að þér þannig störf. Það endar alltaf með þvf að sá, sem stendur upp og rífur kjaft, er látinn inn í dæm- ið. Menn gleyma þeirri staðreynd í hita leiksins og lenda þannig í súpunni," segirÁrni Þór. „Ég hafði, áður en ég tók að mér formennsku í Fimleikasam- bandi íslands, starfað í 8 ár í framkvæmdastjórn ISI. Málefni Fim- leikasambandsins höfðu eðlilega komið upp á borðið í umræðunni á þeim vettvangi. Ég hafði nokkra reynslu af þessum málum sem formaður Fimleikadeildar KR. Því miður ríkti þá töluverð fjármála- óreiða hjá Fimleikasambandi Islands. Félögin tóku sig saman, settu af eldri stjórn og mynduðu nýja. Ég lenti í því að taka að mér formennskuna án þess að ég hefði ætíað mér það því ég hef ekk- ert vit á tæknilegri hlið fimleika. Hins vegar var komið margt topp- fólk í stjórnina, það vantaði aðeins formann og ég ákvað að slá til.“ Rassvasabókhald ,Á árum áður voru afskaplega litíir peningar til staðar fyrir íþróttahreyfinguna, hún grundvallaðist að mestu á gamla góða sjálfboðaliðastarfinu. Þegar peningarnir fóru að koma inn í hreyfinguna var það oft þannig að forystumenn voru með einn rassvasa þar sem íþróttapeningarnir voru og hinn rassvasinn var fyrir prívat peninga. Það segir sig sjálft að áherslur á bókhald komu mjög seint fram. Ég man eftír því að eitt af mínum fyrstu baráttumálum í stjórn ISI var að bókhaldið færi upp á borðið þannig að allir gætu fylgst með hvað væri að gerast og í hvað pen- ingarnir færu. Þannig er málum háttað nú hjá Fimleikasambandi íslands. Hafsteinn Þórðarson, gjaldkeri FSI, er tilbúinn með bók- haldið fyrir árið 1998 og getur lagt það á borðið. Það er ekkert vit í því að reka sérsamband í íþróttum öðruvísi en sem fyrirtæki. Það er komið mikið betra skipulag á öll fjármál 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.