Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 31
VIÐTAL það auglýsingakostnaði sem ekki verður nýttur áfram.“ Jókst salan á þeim tegundum sem auglýstar voru það mikið að þið bæruð ekki tjón af? „Auglýsingaherferðir þurfa yfirleitt lengri tíma til þess að hafa varanleg áhrif. Það er of skammt liðið til þess að hægt sé að mæla áhriíin. “ Heldur þú að þessi málarekstur hafi haft áhrif á ímynd Ölgerðarinnar? „Nei, ég held að við höfum farið það hóf- stillt í þetta mál að okkar orðstír hafi ekki beðið hnekki af. Ef eitthvað er þá opnar þetta augu manna fyrir þeirri mismunun sem þarna er í gangi og kannski vill fólk láta okkur njóta þess. Eg held að Islending- ar séu á móti misrétti og hræsni.“ Telur þú að þessi dómur og umræðan í kjölfarið verði til þess að lögunum verði breytt? „Ef ekki væru kosningar í vor þá myndi ég búast við að Alþingi setti á stofn vinnu- hóp til þess að ræða þessi mál og reyna að finna flöt á því hvernig mætti komast hjá misréttinu sem beinist að innlendum fram- leiðendum og fjölmiðlum. Mér finnst skammur tími til þingloka og ég reikna ekki með því að þing- menn hafi kjark til þess að gera breyt- ingar. Enda finnst mér að það þurfi meiri tíma og vand- aðri undirbúning. Það er hinsvegar mjög einkennilegt að þetta misræmi skyldi ekki vera leiðrétt þegar áfengislögin voru endur- skoouð í fyrra. Þegar end- urskoðun laganna fór fram í þinginu var þegar kom- in fram kæra á aug- lýsingu okkar á veltiskiltinu sem dómurinn fjallar um.“ ur verið með bjórauglýsingum þar sem er lítíll rammi í horninu þar sem stend- ur: Léttöl, eða 0,00%? „Eg býst við því. Það eru margir innflytj- endur sem eru að auglýsa vörumerki sín sem léttöl þrátt fyrir að léttöl af umræddri tegund sé ekki til í landinu. Eini tilgangur- inn með því að auglýsa umrætt léttöl er því sá að fara í kringum lögin um áfengisaug- lýsingar. Eg býst við að ástandið verði svip- að og menn fari aftur inn á þessa fáránlegu braut þar sem verið var í rauninni að aug- lýsa á dulmáli. En við munum ekki gera það.“ Nú eru dæmi úr okkar samtíð um menn sem töldu sig órétti beitta sam- kvæmt íslenskum lögum, sóttu sitt mál fyrir erlendum dómstólum og fengu þar uppreisn æru samkvæmt alþjóðlegum lögum og lagabreytingar á Islandi fylgdu í kjölfarið. Nærtækt dæmi er Jón Krist- insson á Akureyri sem kærði málsmeð- ferð sína vegna umferðarlagabrots til Evrópudómstóls og í kjölfarið var skilið milh dómsvalds og lögreglu með lögum. Einnig mætti rifja upp málarekstur Þor- geirs Þorgeirssonar rithöfúndar. Finnst þér koma til greina að sækja mál þetta lengra? „Mér sýnist við ekki hafa kost á því og ég reikna ekki með því. Samkvæmt EES samningnum eru heimildir til þess að tak- marka auglýsingar á áfengi í einstökum löndum. Islensk stjórnvöld hafa þannig heim- ild til þess að skyggja eða rugla sjónvarpssendingar frá kappleikjum þar sem áfengi er auglýst á búning- um leikmanna og í bak- grunni. Það hefur hinsveg- ar enginn látið sér detta í hug að gera það.“ Auglýst á dulntáli Mun þá dómurinn hafa þau áhrif að aftur verði farið að fara í kringum lög- j(m Snorri Snorrason leggur áherslu á að íslenskir framleiðendur vilji in eins og gert hef- ekki algert frelsi til þess að auglýsa áfengi. Viljum ekki algert frelsi „Ég vil taka skýrt fram að við erum ekki að biðja um algert frelsi til þess að auglýsa áfengi. I flestum löndum í kringum okkur eru einhverjar hömlur á því og reglur. I því efni mætti styðjast við viðmiðunarregl- ur Evrópuþingsins um sjónvarps- auglýsingar á áfengi. Við sættum okkur við hömlur á auglýsingum en viljum að allir sitji við sama borð, íslenskir framleiðendur og erlendir samkeppnisaðilar, til að koma staðreyndum á framfæri við neytendur. Viðskiptahættir á íslandi hafa breyst mikið en lögin hafa ekki breyst í takt við tímann. í þessum efnum þurfa leikreglur að vera skýrar og ganga jafnt yfir alla þátt- takendur." Œ1 (MECALUX Lagerlausnir eru okkar sérgrein Góðir rekkar tryggja hámarksnýtingu á dýrmætu plássi. Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi. Jafnt rúllurekka sem innkeyrslurekka, jafnvel færanlega rekka. Mjög gott verð! Lyftitæki og trillur færðu einnig hjá okkur. MECALUX - gæði fyrir gott verð UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Sirazsmisr shf SUNDABORG 1 • SÍMI 568-3300 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.