Þjóðviljinn - 31.08.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 31.08.1986, Blaðsíða 8
 Fréttamynd ársins „Þjáningar Omairu Sanchez", tekin af Frank Fournier. Dauðastríö hennar stóð yfir í 60 klukkutíma og var Fournier við hlið hennar allan tímann. Fjöldi manns gerði allt til að bjarga henni en hún lést að lokum úr hjartaáfalli. Frá Nicaragua. í felum í stríði heitir myndin. Ljósmyndari Jam- es Nachtwey. Loksins rigndi í Eþíópíu en rign- ingin færði líka með sér ný vanda- mál fyrir klæðlitla flóttamenn. Mynd Alain Keler Winnie Mandela og Desmond Tutu faðmast. Ljósmyndin tekin af David Turnley. Um þessa helgi verður fréttaljósmyndasýningin „World Press Photo“ opnuð í Listasafni ASÍ, Grensásvegi 16. Opnunin verður laugardaginn 30. ágúst, kl. 14. Sýningin samanstendur af 180 Ijósmyndum sem fengu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni fréttaljósmyndara í Amsterdam. Hefur þessi keppni verið haldin árlega frá 1956 og bárust að þessu sinni um 5500 myndir frá rúmlega 900 Ijósmyndurum frá um 50 þjóðlöndum. Fréttaljósmynd ársins var valin myndin „Þjáningar Omairu Sanc- hez“ úr samnefndri myndaröð. Það var bandaríski Ijósmyndarinn Fournier sem tók myndirnar af dauðastríði þessarar kólombísku stúlku sem ásamt þúsundum varð fórnarlamb leðjugossins úr Nevado del Ruiz, sem lagði þorpið Armero í rúst. Sýningin verður opin daglega til 14. september og er opnunartími virka daga frá 16-20 og um helgar frá 14-22. (tengslum við sýninguna verða fyrirlestrar og tónleikar. Guðmundur Sigvaldason, jarðfræðingur, mun halda erindi um náttúruhamfarirnar í Kólombíu kl. 16 á sunnudaq. -Sáf Forsíðumyndin var tekin af David Parker, Ijómyndara á bæjarblaði í Mary- sville í Kaliforníu. Faðir hélt fjórum börnum sínum sem gíslum þvi eiginkon- an hafði yfirgefið hann. Eftir sex tíma umsátur tókst að bjarga börnunum án blóðsúthellinga. Á myndinni má sjá lögreglumann bjarga hinum sjö ára Shannon. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.