Þjóðviljinn - 31.08.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 31.08.1986, Blaðsíða 7
Daginn sem einvígið um heimsmeistaratitilinn í skák hófst í London. voruþeir Helgi Ólafsson og Friðrik Ólafsson stórmeistarar beðnir um að spá fyrir um hvor þeirra Kasparov eða Karopv ntyndi sigra. Friðrik spáði heimsmeistaranum Kasparov sigri en Helgi veðjaði á Karpov. Núereinvígið hálfnað ogflyst það nú til Leníngraðog við báðum þá Helga og Friðrik og Jón Torfason skákskýranda Þjóðviljans að spá aftur í spilin. Helgi Ólafsson Breyti ekki áœtiun Helgi Ólafsson, stórmeistari: Spái Karpov áfram sigri. Ég breyti ekki áætlun og held mig við fyrri spá um að Karpov sigri. I þessurn 12 fyrstu skákum hefur verið nokkuð jafnræði með þeim Karpov og Kasparov og mér hefur ekki þótt jafn mikill kraftur í taflmennsku þeirra og í fyrra einvíginu þegar Kasparov náði heimsmeistaratitlinum. Kasparov hafði frumkvæðið í 4 fyrstu skákunum, en svo fór Karpov í gang og tefldi mjög vel í næstu skákum. Ef til vill var það áfall fyrir hann að ná ekki að sigra í 7. skákinni, þar sem hann var með unnið tafl alveg þar til í lok- in. Má vera að úrslitin hafi orðið til þess að hann gaf eftir í næstu skákunt. Sigur Kasparovs í 8. skákinni var verðskuldaður, en samt er ljóst að Karpov á betra með að mæta byrjunum Kasparovs nú en áður. Skemmtilegasta skákin af þessum 12 er án nokkurs vafa sú 11. Hún var frábær. En sem sé ég breyti ekki fyrri spá, sagði Helgi Ólafsson. -S.dór Helgi og Friðrik harðir á sínu Stórmeistararnir Helgi Ólafsson og Friðrik Ólafsson halda fast við upphafsspána um úrslit í heimsmeistaraeinvíginu í skák. Jón Torfason skákskýrandi Þjóðviljans mjög varfærinn Friðrik Ólafsson, stórmeistari: Kasparov sigrar. Friðrik Ólafsson Engin ástœða til að breyta Hafi verið ástæða fyrir því að spá Kasparov sigri í upphafi ein- vígsins, þá væri síst af öllu ástæða til að breyta henni nú eftir 12 fyrstu skákirnar. Hann hefur vinnings forskot og Karpov verð- ur að vinna tveimur skákum fleira en Kasparov í síðari 12 skákunum til að ná af honum heimsmeistaratitlinum. Þess vegna held ég mig við upphafs- spána um að Kasparov sigri í ein- víginu. Mér sýnist að þetta einvígi sé nokkuð svipað því fyrra, allavega það sem af er. Þeir virðast tefla varfærnislega fyrir utan örfáar skákir inní milli, þar sem mikil barátta hefur átt sér stað. Mér þykir 11. skákin bera af og sýna vel hvílíkir snillingar þessir tveir menn eru. Þótt Leníngrað sé heimaborg Karpovs, hann er fæddur þar, þá held ég að það hafi ekkert að segja í síðari hluta einvígisins. Aftur á móti fer nú að reyna meira á úthaldið og má til gamans skjóta því inní að Kasparov, sem hefur líkamlega meira úthald, mótmælti viku stoppi nú, sem hann taldi koma Karpov til góða, sagði Friðrik Ólafsson. -S.dór Heimsmeistarinn Kasparov í þungum þönkum til hægri en fyrrverandi heimsmeistara og núverandi áskoranda Karpov virðist leiðast biöin. HM í skák Jón Torfason, skákskýrandi: Enginn skyldi vanmeta Karpov. Jón Torfason Frumkvœðið er hjá Kasparov Ég fer varlega í allar spár, en hitt liggur ljóst fyrir að í þessum fyrrihluta einvígisins hefur Kasp- arov haft frumkvæðið. Og haldi svo fram sem horfir ætti hann að sigra, en engin skyldi vanmeta Karpov. Skákirnar í fyrri hlutanum hafa að sjálfsögðu verið misjafnar eins og gengur, sumar hafa verið skemmtilegar og sú 11. bar af, hreint afbragð, þar sem allt lék á reiðiskjálfi fram að síðasta leik. Ég er á því að fyrra einvígi þeirra hafi verið öllu bragðmeira en þetta. Það gekk meira á í því en í fyrrihluta þessa. Einnig voru skákirnar í fyrra einvíginu efn- ismeiri en nú, hvað sem svo verð- ur í síðari hlutanum, sagði Jón Torfason. -S.dór ÚTBOÐ Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli óskar eftir tilboðum í hljóðkerfi fyrir nýju flugstöð- ina á Keflavíkurflugvelli og nefnist verkið FLUGSTÖÐÁ KEFLAVÍKURFLUGVELLI HLJÓÐKERFI FK - 15 Verkið nær til: Hönnunar, smíði, uppsetningar, prófunarog við- halds hljóðkerfis í flugstöðvarbyggingunni í sam- ræmi við útboðsgögn. Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. mars 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Rafhönnun hf., Ár- múla 42, 108 Reykjavík, gegn 10.000.- króna skilatryggingu, frá og með föstudeginum 29. ág- úst 1986. Tilboðum skal skila til: Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins Skúlagötu 63 105 REYKJAVÍK eigi síðar en 10. október 1986, kl. 14.00. Reykjavík, 28. ágúst 1986 Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. St. Jósefsspítali Landakoti vantar starfsfólk! Vantar ykkur vinnu? ★ Hjúkrunarfræðinga vantar á eftirtaldar deildir: - Lyflæknisdeild l-A og ll-A. - Hafnarbúðir. - Handlæknisdeild l-B og ll-B. ★ Sjúkraliða á allar deildir. ★ Starfsfólk til ræstinga. ★ Einnig óskum við eftir hjúkrunarfræðing- um og sjúkraliðum á aukavaktir. Við bjóðum nú betri starfsaðstöðu á nýuppgerð- um deildum, góðan starfsanda og aðlögunartíma eftir þörfum hvers og eins. Sveigjanlegur vinnutími kemur til greina. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600-300 kl. 11:00-12:00 og 13:00-14:00 alla virka daga. Nánari upplýsingar um læknaritarastarfið veitir yfirlæknaritari í síma 19600-261. Reykjavík 27. ágúst 1986 Hjúkrunarstjórn fFrá Grunnskólum Reykjavíkur Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 4. september n.k., sem hér segir: 9. bekkur komi kl. 9. 8. bekkur komi kl. 10. 7. bekkur komi kl. 11. 6. bekkur komi kl. 13. 5. bekkur komi kl. 13.30. 4. bekkur komi kl. 14. 3. bekkur komi kl. 14.30. 2. bekkur komi kl. 15. 1. bekkur komi kl. 15.30. Fornámsnemendur í Réttarholtsskóla komi k. 13. Forskólabörn (5 og 6 ára), sem hafa verið innrituð, verða boðið í skólana símleiðis. Sunnudagur 31. ágúst 1986 þjóÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.