Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Qupperneq 79

Eimreiðin - 01.05.1903, Qupperneq 79
159 hina íslenzku konu sína, barónessu Ástu, í skautbúningnum íslenzka, því þá urðu allir stórkostlega hrifnir bæði af fegurð hennar sjálfrar og búningi hennar. Um þetta fer blaðið svofeldum orðum: »í*egar fyrirlestrinum var lokið, leiddi baróninn hina ungu frú sína, sem er inn- borin íslenzk kona, inn í salinn, til þess að sýna áheyrendunum hinn íslenzka þjóð- búning. Hún gekk að ræðustólnum og las upp kvæði á íslenzku, og á einu auga- bragði urðu allir viðstaddir sem frá sér numdir. Póttust menn á pallinum í hátíða- salnum alt í einu sjá eina af hinum þjóðkunnu kóngsdætrum æfintýranna í lifanda líki. í^að var ekki hinn fallegi búningur einn, sem hafði þessi áhrif, hinn dökki kyrtill, prýddur fögru saumskrauti, sem lét hálsinn skína óhulinn, og haldið var sam- an með silfurbelti einu, hið ljómandi höfuðdjásn: breitt gullhlað, sem hinn hvíti skautfaldur hóf sig upp frá, og frá toppi hans féll aftur fíngerður motur eða slæða til beggja handa niður á herðarnar. fað var hin álfkenda vera sjálf, sem vakti að- dáun allra, sem við vóru, — hárið, eins og það væri spunnið úr gullþráðum, hin óviðjafnanlega fínu litbrigði í andlitinu og þar á ofan augun, sem eru blá eins og heiðavötn. Menn spurðu sjálfa sig undrandi, hvort slíkar æfintýramyndir væru virki- lega enn þá til í heiminum, og gleymdu því, að þessi fagra íslenzka kona mælti á tungu, sem öllum var svo gagnókunn, að menn gátu ekki einu sinni ráðið í þýð- ingu á einu einasta orði. Hve innilegum tilfinningum þessi ókunna tunga getur lýst, sýna kvæði þau, sem í gærkveldi vóru gripin af handahófi úr hinum auðuga ljóð- mælasjóði íslendinga, og sem ekki höfðu mist neitt af frumleik sínum og andríki í þýðingu Poestions. Að lokum söng söngflokkur söngskólans margraddað lofsöng eftir Matth. Jochumsson (»ó, guð vors lands«), sem íslenzka tónskáldið Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefir samið lagið við, og sem kórónaði þá mynd, er menn höfðu fengið af ástandi hinna fögru lista á íslandi«. ERAMFARIR ÍSLANDS Á 19. ÖLDINNI, ritgerð dr. Valtýs Guðmundssonar í Eimr. VI., hefir í hinni þýzku þýðingu eftir yfirkennara K. Palleske vakið mikla eftirtekt og margir ritdómar verið um hana ritaðir í þýzkum blöðum og tímaritum, og eru sumir þeirra alllangir með yfirgripsmiklum útdrætti úr ritgerðinni. Til dæmis má nefna þessi blöð og tímarit: »Deutsche Zeitung« (Berlín), nr. 222 (21. sept. 1902); »Vossische Zeitung« (Berlín), nr. 391 (22. ág. 1902); »Neue Freie Presse« (Vín), 11. sept. 1902; »Globus« (Braunschweig), LXXXI, 16 (24. apr. 1902); »Allgemeines Litteraturblatt« (Vín), XI, 12 (15. júní 1902; »Literarisches Central- blatt fur Deutschland« LIII, 39 (27. sept. 1902). fað er vonandi að þetta leiði til þess, að menn fari nú í útlöndum að fá dá- lítið réttari hugmyndir um ísland og þjóðmenning þess en hingað til. FREGNBRÉF FRÁ ÍSLANDI hefir Éjóðverji nokkur, Karl Eugen Schmidt, sem ferðaðist heima á íslandi síðastliðið sumar, ritað í blaðið »Berliner Lokal-An- zeiger« fyrir júlí, ágúst og september, og er það allmikill bréfabálkur, enda ber þar margt á góma Lætur hann mjög illa af landbúnaði íslendinga og segir, að þar megi með lítilli fyrirhöfn kippa mörgu í liðinn, með betri ræktun og fleiru. Lýsing hans á hýbýlaháttum og þrifnaði er og alt annað en glæsileg, og verst er, að margt af því, sem hann segir í því efni, er satt, þó sumt sé mjog orðum aukið og ekki fært á betra veg. Ymsar allgóðar athugasemdir eru í bréfum þessum, en aftur er þar líka eigi allfátt, sem er beinlínis rangt og líklega að nokkru leyti lapið upp úr gömlum ferðabókum. Einna skemtilegust er frásaga hans um fund hans og nokk- urra alþingismanna við. Geysi, þegar hann hélt að Klemens sýslumaður Jónsson vær'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.