Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 74

Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 74
154 Og hugur minn varð þreyttur og sála mín varð sjúk — mjög sjúk. Mér fanst þekking þessara tíma verða afarlítils virði og framfarir þeirra hafa gert afarlítið að því, að létta byrði mann- kynsins. Og lífið misti birtu sína og yl, og hvíldin flýði mig. En ég hætti þó ekki að leita; hvíldarlaust leitaði ég. Því inst í sálu minni — innar allri gleði og öllum vonum — heyrði ég rödd hins mikla höfundar — í sjálfs mín rómi: Eg skal! — -— Svo fann ég einu sinni lítið blóm. Pað var ekki uppi á fjöll- um og ekki heldur á eyðimörku. Pað óx skamt frá veginum í þéttum gróðri. — jþað var blómið: Gleym — mér — ei. Og ég settist niður og fór að hugsa: Hvað var það, sem maðurinn átti allra sízt að gleyma? Pá varð mér ósjálfrátt að minnast hinna fylstu fagnaðarstunda, sem ég hafði lifað — minnast þess, er hugur minn faðmaði hina víðu veröld og rann í eitt við alt hið lifandi líf. Hverju skyldi maðurinn eiga síður að gleyma en lífinu sjálfu — hinu fylsta og fegursta lífi? —• — Og ég fór aftur að hugsa um lífið, en á annan hátt. Og ég fann, að vissulega er þekkingin mikils virði, en ég fann það líka, að gildi hennar er afarmismunandi. Og ég fann, að »eitt er nauðsynlegt« —• að þekkja sjálfan sig og lögmál síns eigin lífs. Og ég fann, að það er önnur þekking næst hinni fyrstu —: þekkingin á hinu samþýðanlegasta í sálarlífi mannanna; því þar verða þeir að rétta hver öðrum bróðurhönd.--------------- ------IJú ert þreyttur, vinur minn. Komdu með mér út í lundinn og hvíldu þig stundarkorn. En dagurinn er þegar nærri. — — III. «Eitt er nauðsynlegt« — að þekkja sjálfan sig og lögmál síns eigin lífs. Pegar þú hefir lært að þekkja sjálfan þig og komist til fullrar viðurkenningar á þinni eigin smædd — þá roðar fyrir degi hins sanna lífs. —-------- Hver ert þú, sem ert fullur af hroka og reigingi? — Hver ert þú, sem telur orð og gerðir meðbræðra þinna sprottin af

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.