Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Page 63

Eimreiðin - 01.05.1903, Page 63
143 við Manítóba-háskóla og gert þar jafnhátt undir höfði sem þýzku og frönsku. V. G. AXEL. Kvæði eftir Esaias Tegnér. Steingrímur 1 horsteinsson þýddi. Önnur útgáfa. Reykjavík. Prentsmiðja ísafoldar xgo2. Þeg- ar mér barst í hendur þessi nýja útgáfa Axels, varð mér hugsað til þess, hve mikið einn unglingur sem ég þekki varð að hafa fyrir því að eignast eldri útgáfuna. Vinnukona ein sagði honum fyrst frá kvæð- inu og kendi honum það, sem hún kunni af því. Hann óskaði sér einskis fremur en að fá kverið í hendur og helzt að eignast það. Eft- ir margar fyrirspurnir hitti hann bónda, sem átti Axel og það tvö ein- tök; en annað þeirra var skrifað. Það fékk hann og þóttist ríkur. Mörgum árum seinna, þegar pilturinn var að læra undir skóla, fékk hann gamlan mann, sem átti prentað eintak, til að skifta við sig, með því skilyrði að lofa honum í milligjöf fyrstu bókinni, sem hann skrif- aði sjálfur! Gamli maðurinn er dáinn og bókin er ekki komin út enn þá. — Það er gott að sá æskulýður. sem nú vex upp, þarf ekki að hafa eins mikið fyrir að eignast Axel, því hann á eflaust erindi við hverja óspilta unglingssál. Sagan sjálf er yndislega einföld og átakanleg, og Tegnér hefir búið hana í gull og skart skáldlegrar íþróttar og leiftrandi hugsjóna. En svo fagurt sem kvæðið er á sænsku, þá virðist íslenzka þýðingin engu síðri. Þýðandinn hefir með sinni alkunnu snild þrætt frumritið nálega orði til orðs, og þó er málið alstaðar þýtt og yndislegt. Flestir mundu hafa ætlað, að fyrri útgáfunni yrði naumast breytt til bóta. en þó hefir þýðandinn ekki sparað sér ómakið — og tekist það. Sem dæmi skal ég nefna: Fyrsta útgáfa: Hann stóð sem turninn hvelfdur undir hrynjandi báli í brendum stað, eins og marmara mynd á gröf, sem meginbjarg er stöðvar höf. Önnur útgáfa: Hann stóð sem skotheld hvelfing undir bálhnattahríð í brendum stað, sem meginbjarg, er heftir höf, sem hugþreks mynd á dáins gröf. Síðari þýðingin kemst nær frumtekstanum og lýsingin sjálf er snjallari. Sumstaðar finst mér þýðingin betri en frumkvæðið. Þegar ég var í Svíþjóð, flaug mér oft í hug lýsingin á Axel: Vænn var hann sýnum sem á foldu Norðurheims stundum alast enn hávaxnir, grannir 'glæsimenn sem grenitrén á Svíamoldu. Ég sló svo upp sænska tekstanum. Éar stóð: Det var en skön gestalt, som Norden dem föder ánnu nágon gáng, frisk som en ros, men smárt och láng som tallar i den svenska jorden.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.