Eimreiðin - 01.05.1903, Qupperneq 51
i3i
varð fólkið þar hissa að sjá þá koma ofan úr óbygðtmum. Þaðan riðu
þeir svo sem leið liggur til Akureyrar. Á Tjörnum hittu þeir Kristin
Jónsson, sem 1893 (22 ára gamall) viltist úr
eftirleit suður fjöll og komst loks til bygða
suður í Árnessýslu nær dauða en lífi, og svo
skaðkalinn á fótum, að höggva varð af honum
allar tærnar. Segir herra Bruun aila sögu hans
í alllöngu máli, en henni er hér slept, þótt
fróðleg sé, með því hún héfir áður staðið í ís-
lenzkum blöðum.
Þá kemur í ritgerð Bruuns alllöng náttúru-
lýsing á Sprengisandssvæðinu, bæði landslagi,
jurtagróðri (sá kafli er eftir Stefán kennara
Stefánsson á Möðruvöllum) og dýralífi, og
að lokum er lýsing á afréttum þeim, sem liggja
upp í óbygðirnar bæði að norðan og sunnan,
fjallgöngum o. fl. En öllu þessu verðum vér
að sleppa rúmsins vegna, til þess að geta tek-
ið síðasta kaflann orðréttan, með því oss virð-
ist hann hafa mesta þýðingu fyrir íslenzka lesendur.
LEIÐIR AÐ OG FRÁ SPRENGISANDI.
I. Aðalleiðin yflr Sprengisand liggur úr Suðurþingeyjarsýslu, frá
efsta bœnum í Bárðardal, Mýri (vestan Skjálfandafljóts), í útsuður yfir
sandinn og að vaðinu við Sóleyjarhöfða; en þar skiftist vegurinn í
tvent, og liggur önnur leiðin austan Þjórsár, en hin vestan.
Frá Mýri er riðið £ suður, að íshólsvatni [i1/* stundar reið),
og er þar góð beit sunnanvert við vatnið, þar sem eyðijörðin íshóll
liggur.
Frá íshóli er riðið í vestur yfir fjallið niður í Mjófadal og eftir
honum í útsuður til áningarstaðanna Fremri- eða Ytrimosa (2 stunda
reið) Þaðan er '/2 stundar reið til annars góðs áningarstaðar, Innri-
mosa. Þaðan er enn
haldið í sömu átt fram
með ánni yfir hrjóstrugt
hæðaland suður undir KIÐAGIÍ.SHNÚKUR (1). í suðri.
Kiðagilshnúk (2 St. Á bak við hann Tungnafellsjökull (3).
reið). Svo er farið yfir Vegurinn liggur fyrir vestan hnúkipn (2).
Kiðagil hérumbil -^/2
mílu fyrir vestan ármót Kiðagilsár og Skjálfandafljóts, og stöðugt hald-
ið í útsuður. (Þaðan og niður að ármótunum verður ekki komist yfir
gilið, en við ármótin má komast yfir það).
Vilji menn nota annanhvorn hinna lélegu áningarstaða við Kiða-
gil, verða menn að sveigja út af aðalleiðinni í austur, annaðhvort í
grastó norðan gilsins eða £ Áfangatorfur sunnan þess, og er til
hvorttveggja x/2 stundar reið. Nota má og áningarstaðinn Fljótsdal
(við Skjálfandafljót) nokkru sunnar, en á öllum þessum þremur stöðum
er léleg beit.
Frá vesturhluta Kiðagils, þar sem aðalleiðin liggur yfir það, er
9*
KRISTINN TÓNSSON.