Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 45

Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 45
125 efstu röddina með hug og sál og sleppa öllum tökum á hinum, þó ab þær séu ef til vill engu lakari en sú efsta hver um sig eða í sambandi hver við aðra. Á þessu er engin furða, því til þess að heyra og njóta fullkomlega margra radda í einu, þarf æft og mentað söngeyra. Pað er ekki ætlun mín, að í skólum eigi að kenna tónfræði, en það er mitt álit, að kennarinn eigi að nota hvert tækifæri, sem gefst, til að vekja athygli nemendanna á því, sem fallegt er og vel gert í lagsmíði, raddsetningu (jafnvel þó að margraddaður söngur sé ekki beinlínis kendur) o. fl., og gera sitt til að bæta og skerpa smekk þeirra og dómgreind í þessu efni. Eg á hér sér- staklega við hærri skóla, því þar, sem nemendurnir eru á lágu þroskastigi, verður því tæplega komið við. Ef lögð væri meiri álúð við þessa kenslu, þá er ég sannfærður um, að menn hætta að gleypa við hverjum húsgangi, sem gengur mann frá manni, og þætti meiri ánægja að listmætum ljóðum. Pað var ekki ætlun mín með þessum línum, að semja full- nægjandi reglur eða gera ýtarlega grein fyrir því, hvernig ég hugsa mér söngkenslu í skólum háttað í öllum smáatriðum. Eg vildi aðeins gera mitt til að leiða athygli manna, sem um kenslu og kenslumál eiga að sjá, að gagnsemi sönglistarinnar og tónlistarinn- ar yfir höfuð að tala, benda á aðalókosti núverandi kensluaðferða og leiðir til að koma betra skipulagi á þær, til leiðbeiningar þeim mönnum, sem hafa átt enn þá minni kost á að kynnast þessum málum heldur en ég. Sprengisandur. Höfuðsmaður Daniel Bruun hefir í >Geografisk Tidsskrift« ritað langa ritgerð um rannsóknir þær á Sprengisandsveginum, sem hann gerði sumarið 1902 eftir tilmælum amtmanns Páls Briems, sem ásett hafði sér að láta varða þennan veg, eins og áður var gert við Kjalveg (1898—99). Herra Bruun hefir farið þess á leit við Eimreiðina, að hún flytti útdrátt úr þessari ritgerð, og viljum vér verða við þeim til- mælum, þar sem ætla má, að slíkt mundi geta komið ýmsum að liði, sem kynnu að vilja nota þennan veg. En rúmsins vegna verðum vér

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.