Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Qupperneq 55

Eimreiðin - 01.09.1896, Qupperneq 55
215 Islands og annara landa, og með ströndum fram, aðrar en fáeinar póst- skipsferðir milli Kaupmannahafnar og Reykjavíkur, sem um hefur verið samið fyrir löngu. Svipað afskiptaleysi held jeg að sje með öllu dæma- laust i öðrum löndum á þessari öld. Svo kom ekki heldur til þingsins neitt tilboð, sem það gat sinnt — ekki einu sinni frá sameinaða gufu- skipafjelaginu danska. Allt það, verk ógert, sem landstjórn mundi hafa gert annars staðar í samskonar máli, málið með öllu undirbúningslaust, engin skilríki fyrir hendi, sem að því lúta, og engin þekking hjá þing- mönnum yfirleitt, sem ekki er heldur von, og hvergi mundi til ætlazt. Sama er að segja um öll framfaramál landsins. I öðrum löndum er það eitt af hinum helztu störfum stjórnanna, að kom^st að niður- stöðu um, hvað næst verði gert landinu til framfara, og svo búa sig undir að gera hlutaðeigandi þingi niðurstöðu sína skiljanlega og aðgengi- lega. Hjá stjórninni er allra skilríkja að leita. Hjer á landi aptur á mót er það þingið, sem á 6—8 vikum annaðhvort ár verður að eiga upp- tökin til alls og ráða fram úr öllu, og flest er óundirbúið, órætt og óhugsað, þegar það berst því í hendur. Til þessa skorts á forgöngu finna menn auðvitað, og það er jáfn- vel farið að bóla á tilraunum til að bæta úr honum dálítið. I sumar var veitt allmikið fje til stofnunar búnaðarfjelags fyrir allt landið,1 og að minnsta kosti vakti það fyrir framsögumanni fjárlaganefndarinnar, f’órh. Bjarnarsyni lector, að stjórn þess fjelags skyldi hafa með höndum yfir- stjórn búnaðarmálanna. Væntanlega gæti töluvert gagn að því orð- ið, þó að hætt sje við, að nokkurt hjáverkasnið yrði á fram- kvæmdum slíkrar stjórnar. En mjer finnst undarlega lítið bera á því, að mönnum sje það ljóst, að öll slík forganga framfaramálanna er heimt- andi af stjórn landsins. Skorturinn á þeirri forgöngu er i mínum aug- urn miklu þýðingarmeiri en það, sem stjórninni stöðugt er fundið til for- áttu. Og jeg hef enga von um, að sú forganga fáist, fyr en æðsta stjórn landsins er orðin innlend. Það er af þeirri ástæðu fremur en öllu öðru, að mjer virðist stjórnarskrárbreyting óhjákvæmileg, svo framarlega sem þjóðin á að ná þeim þrifum, sem vjer allir, austan hafs og vestan, ósk- um að hún nái..................... . Jeg hef opt hugsað um Irann, sem kom til Ameriku, og spurði, um leið og hann steig af skipsfjöl, hvort nokkur stjórn væri þar i landi og tjáði sig tafarlaust ætla að verða i andstæðingaflokki hennar. Það er kunnugt, að þessu er nokkuð líkt varið með Islendinga. Þeií hafa einkennilega sterka tilhneiging, almennt, til að vera móti sinni stjórn, móti öllum, sem einhver völd hafa. Þetta kveld, sem jeg hef minnzt á (3; kveldið, sem Skúlamálið var rætt i neðri deild), fannst mjer jeg, skilja betur en áður, hvernig stæði á þessu atriði i lunderniseinkunn Islend- inga.................... Hann (o: landshöfðingi) er maður vel máli far- inn, ekki eiginlega mælskur, en talar ljóst, skipulega og sannfærandi, og þreytir áheyrendurna aldrei, þvi að hann er einkennilega stuttorður og gagnorður. Pó að mælskari menn sjeu á þingi en hann, er enginn 1 Hinn heiðraða höfund misminnir. Fjárlaganefnd neðri deildar stakk upp á að veita þetta fje, en uppástunga hennar var felli. Ritstj.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.