Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 42

Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 42
202 sorgleika skáldskapnum á skakka leið. fað voru þá einkum þessir tveir menn, Klopstock og Lessing, sem höfðu hafið hina nýju stefnu og vak- ið hugmyndina um nýtt »ídeal«, nýtt hugsjónarmark, sem eptir bæri að keppa, en það var sjerstaklega fólgið í frumlegum nýjum skáldskap, sem segði skilið við allt úrelt og útslitið og byggði aðallega á þjóðlegri undir- stöðu með Hómer og Shakespeare fyrir augum eins og hinar beztu fyrirmyndir. Upp úr þessu hefst nú i bókmenntalífi Ljóðverja tímabil það, er nefnist »Sturm und Drangperiode«, og er það heppilegt nafn, því »Sturm« táknar áhlaupin og framsóknina, en »Drang« hina áköfu innri þröng og þörf til að ryðja sjer til rúms. fessi mikla framsóknar hreyf- ing varð til þess að skáld nokkur á Norður-Pýzkalandi (í Göttingen) gerðu bandalag með sjer (»Göttinger Dichterbund« eða »Hainbund«). Voru í því meðal annara Voss (-f- 1826), Hölty (-j- 1776), Claudius (-j- 1815) og Biirger (-j- 1794). I augum þessara skálda var Klopstock hið þjóð- lega fyrirmyndarskáld og höfðu þau mestan hug á lýriskum kveðskap. Jafnframt var suður á Þýzkalandi annar flokkur samrýndra skálda, kall- aður hinn Rín-lenzki og Main-lenzki og var hjá þeim skáldum hugur- inn mestur á hinu »dramatiska«, á því að koma upp þjóðlegum leik- rita skáldskap. I þeim flokki var Goethe sjálfur, Klinger (17.51—1831), Lenz (-j- 1792) o. fl. Klinger hafði skáldgáfu mikla, en kunni ekki sem bezt stjórn á henni, og eru skáldrit hans, einkum leikritin, full af jötun- móði, fljugandi imyndunarafli, fimbulmálum og geysingi, en fegurðina vantar, og eru þau engin listaverk, þó þau væru þýðingarmikil fyrir sinn tíma. Eitt af þeim heitir »Sturm und Drang«, og af því hefir tímabilið fengið nafn sitt. Telja menn, að tímabil þetta hafi staðið frá 1772 til 1785. Meðal hinna fremstu manna þessarar stefnu má og telja J. G. Herder, sem bæði var guðfræðingur, sagnfræðingur, heimspekingur og þess utan skáld, andlegt mikilmenni og hinn frjálslyndasti í skoðunum sínum og gagntekinn af allsherjarlegum mannúðaranda. Hann hafði með sínum andríku og snildarlegu ritgjörðum í áður nefndum greinum afar- mikil áhrif á bókmenntalífið, og þótt ekki kvæði svo mjög mikið að honum sem frumskáldi, þá vann hann samt skáldmenntinni ómetanlegt gagn með því að leiða hugi manna að hinum sönnu frumlindum skáld- skaparins í biblíunni, Hómer, Shakespeare og þjóðskáldskap (Volkspoesie) hinna ýmsu Evrópu-þjóða, er hann þýddi mörg sýnishorn af með mestu snild (»Stimmen der Völker«l), og sýndi þar með ágæti hins einfalda náttúruskáldskapar í samanburði við lærdómslegan og þvingaðan íþróttar skáldskap. Yfir þennan andlega ólgusjó og umbrot aldarinnar hefja sig nú tvö stórskáld, Goethe og Schiller, sem bera langt af hinum. Reir eru sjálfir fyrst fullir af þessum anda og taka þátt i hinni geystu framsóknarhreyf- ingu, en síðan stjórna þeir henni og leiða hana úr öfgum og óskapnaði til hreinnar skáldlegrar fegurðar. IDeir nota það sem nýtilegt og heilbrigt er í »Sturm und Drang«, en hafna hinu gagnstæða, fullkomna sig sjálfa og fram- 1 Þessi bók hans: »Stimmen der Völker in Liedern« hafði fyrst komið út með titlinum »Volkslieder«, 1—2 Leipzig 1778—79. Úr þeirri bók mun Bjarni Thórarensen hafa þýtt »Weg der Liebe« og niðurlagið úr kvæðinu »Darthula« eptir Ossian. í þessu safni Herders eru eigi faar þýðingar af fornnorrænum kvæðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.