Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Qupperneq 37

Eimreiðin - 01.09.1896, Qupperneq 37
i97 Járnbrautarlestin rann af stað og hjelt í suðaustur. Leið ekki á löngu, áður fór að bregða fyrir skrúðgrænum engjum og korngulum ekrum. Voru menn sumstaðar í heyönnum, að þurka hey, að slá og raka, jm mesta sumarblíða var um daginn. Pegar komið var til Frið- riksróar, tók jeg eptir því, að eina þrjá fjórðunga stundar er verið á leiðinni frá Hamborg þangað. Við járnbrautarstöðina stendur litið þorp með um 200 íbúa. Eru það landsetar Bismarcks, því hann á jörð alla langar leiðir í allar áttir frá kotbæ þessum. Járnbrautin liggur um hlaðið á búgarði hans, og þó ekki sje nema þriggja mínútna kippur að járnbrautarstöðinni, lætur hann ekki svo lítið að skreppa þangáð, en stígur i vagninn á járnbrautinni fyrir dyrum sínum. Ekki gengur honum til þess leti, því á hverjum degi ekur hann eða gengur um Saxaskóg (Sachsennald), er svo heitir. Skógurinn er mikill og fríður, fura og beykitrje, rjóður og hólar, leiti og lautir, og er engin furða, þótt Bismarck uni sjer vel i honum, enda græðir hann stórfje á við, sem hann lætur höggva þar. Karlinn harð- bannar mönnum með auglýsingum að reykja i skóginum. Hann er hræddur um, að i honum verði kveikt. Mörgum er forvitni á að sjá hinn aldna jötun, en honum geðjast illa að þvi, að menn sjeu á degi hverjum að góna og glápa á sig, og hefur þvi, eins og Útgarðaloki, látið hlaða skiðgarð um hibýli sitt. Rjeðst jeg á hlið, er á honum var, og lauk þar upp gamall dyravörður, grár fyrir hærum. Furðaði mig á, að hallarvörður þessi var vingjarnlegur, þvi hann mun vist fyrir löngu orðinn lúinn og þreyttur af átroðningi manna. Jeg sagði honum erindi mitt og vísaði hann þá mjer til sætis í herbergi einu i húsi sinu við hliðið. Var þar ekki annað innanstokks en borð og tveir trjebekkir. Sátu á þeim karlmaður og kona, sem voru i sömu erindum og jeg. Fjekk jeg hallarverði nafnseðil minn og tók hjónaleysin, sem sátu þar, tali. Komst jeg skjótt að því, að það voru Þjóðverjar frá Kaliforníu. Eptir stundarbið kom ungur maður með gleraugu inn. Jeg vissi, að skrifari Bismarcks hjet Chrysander, og spurði hvort hann væri ekki Dr. Chrysander. Á Þýzkalandi er óhætt að kalla hvern vel menntaðan mann doktor, því þar er annarhvor maður doktor að nafnbót. Jeg sagð- ist vera utan af Islandi og vilja ná tali við Bismarck. Chrysander svar- aði, að nýstárlegt mundi Bismarck þykja að hitta Islending. Blaðamenn væru nú reyndar orðnir honum hvimleiðir, enda væri þeim ætíð vísað burt með harðri hendi, nema ritstjóra blaðs þess í Hamborg, sem Bis- marck ritar í (Hamburger Nachrichten). Annars væri karlinn lasinn og gengi ekki um Saxaskóg að venju sinni, en um klukkan fimm mundi hann líklega aka út i skóginn. En óvíst væri, hvort vagn hans færi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.