Fréttablaðið - 04.06.2002, Page 10
Vasifrá Steninge Slott
verð kr. 11.900,-
DUKA
Vandaðar heimilis & gjafávörur
Kringlan 4-12 s. 533 1322
Heimilisblaðið
4. til 9. júní 2002
Draumagarðurinn
fylgdi húsinu
Ki
]
ristín Guðmundsdóttir á nú
þegar sinn draumagarð.
Handfrjáls búnaður..
Kristín Guðmunds-
dóttir var svo heppin
að fá fullgerðan garð
með í kaupunum þeg-
ar hún festi kaup á
húsi fyrir ári.
„Hann er með stórum steinum í
einu horninu og svo eru mosa-
grónir steinar hér og þar um garð-
inn. Ég er með rauða túlípana í
kringum steinana og allskyns
blóm. í kringum húsið er stór
grasflöt.“
Kristín segist ekki hafa lagt
mikla vinnu í garðinn. „Ég keypti
hús í fyrra og fékk þennan garð í
bónus,“ segir Kristín og er harla
ánægð með kaupin. „Nú þarf hann
KRISTÍN CUÐMUNDSDÓTTIR
Elskar rauða túllpana og mosavaxna steina.
bara viðhald.“ Kristín er ekki með
pall eða sérstaka grillaðstöðu.
„Pallurinn og grillaðstaðan koma
seinna," segir hún. ■
Sum stefnumót breyta öllu!
Hringdu.
Stanislas Bohic Garðhönnuður 898 4332
Vinnandi fólk í Dugguvogi:
Framleiða allt sem hægt
er að gera úr málmsteypu
ÞRUMUGUÐINN
STEYPTUR f MALM
Þessar málmsteypur af
guðinum Þór verða not-
aðar sem lyklakippur.
... Aktu með Avis
Florida kr. 3.700 á dag
j Frankfurt kr. 2.900 ádag
Kaupmannahöfn kr. 3.500 á dag
Alicante kr. 2.200 ádag
Milano kr. 3.800 ádag
Amsterdam kr. 3.900 á dag
Innifalið i verði er ótakmarkaður akstur,
trygging og allir
skattar. I|1/#V
£ Dugguvogi 3 hefur verið opnað
lnýtt verkstæði á gömlum merg
undir heitinu Vinnandi fólk. Verk-
smiðjan var upphaflega í Hvera-
gerði og fluttist þaðan á Siglufjörð,
en nú hafa hjónin Oddný Magna-
dóttir og Hilmar Hansson hafið
starfsemina að nýju í Reykjavík.
„Við erum að framleiða bókstaflega
allt sem hægt er að gera úr málm-
steypu, eins og t.d. minjagripi,
skartgripi, lyklakippur og barm-
merki,“ segir Oddný. „Svo erum við
líka með sérhæfð verkefni fyrir
fyrirtæki og félagasamtök og erum
eina verksmiðjan á íslandi sem get-
ur boðið þessa þjónustu."
Starfsmenn verkstæðisins eru
sjö talsins og eru meira og minna
skyldir innbyrðis.“Þetta er auðvit-
að hálfgerður heimilisiðnaður,“
segir Oddný, „en við bjóðum líka
tímabundna vinnu þeim ungu ein-
staklingum sem eru að koma úr
meðferð, og vita oft ekkert hvað
þeir eiga að gera næst. Það er svo
mikilvægt að þeir öðlist einhverja
starfsreynslu og sjálfsvirðingu,“
segir Oddný. „Við hugsum þetta
sem skref fram á við fyrir þessa
krakka, og viljum að þau skilji að
vinna á að vera jafn sjálfsögð fyr-
ir þau og okkur hin. Á tímabili,
þegar verksmiðjan var starfrækt í
Hveragerði, var svo mikið að gera
að fólk vann allan sólarhringinn á
tvöföldum vöktum," segir Oddný,
„og við stefnum auðvitað að því að
vera með óþrjótandi verkefni fyrir
fullt af fólki,“ segir hún bjartsýn
að lokum. ■
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
Síðumúla 6
Verðdæmi:
allar buxur nú 2.000 kr. • allar skyrtur nú 1.500 kr.
allir jakkar nú 4.000. kr. • allar peysur nú 2.000 kr.
allar yfirhafnir nú 5.000
Opið mánudaga til föstudaga kl. 12:00 - 18:00
og laugardaga kl. 12:00 - 16:00