Fréttablaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 1
Vikulegt sérblað um heimili, hús og fasteignamarkaðinn
FRETTABLAÐIÐ
FASTEIGNIR
á vísir.id
halbsi.ðs
FSST6IGNAI.eiT A METIKU
Þrúun fermetraverðs fbúðarhúsnæðis á höfuðboi
svæðinu í maí á árunum 1996-2001, m.v. kaupv
_______
orgar
erð*
m——-
100,21
102,3
104,1
113,1
| J
2000 ir ■ ■ 142.01
2001 n 158,11
'þriggja mánaða meðaltöl. Visitala= 100 i jan. /996.
Fasteignamarkaðurinn:
Stöðugléiki
það sem af er ári
Verð á fasteignum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði umtalsvert
milli áranna 1999 og 2001, en er nú frekar stöðugt, að sögn
Snorra Gunnarssonar, hagfræðings hjá Fasteignamati ríkisins.
Veruiega dró úr f jölda kaupsamninga milli áranna 1999 og 2000,
en minna árin 2000 til 2001. Nú hefur dregið úr þessari fækkun og
fækkunin er fyrst og fremst á öðrum eignum en íbúðarhúsnæði
svo og á landsbyggðinni. Síðasta árið hefur lítið dregið úr f jölda
kaupsamninga og á fyrri hluta þessa árs hefur jafnvel orðið ein-
hver aukning, að sögn Snorra.
Þorvaldur St. Guðmundsson, löggiltur fasteignasali hjá Eigna-
miðlun, staðfestir að íbúðaverð hafi verið stöðugt fyrri hluta
þessa árs. Hann segist aðspurður ekki reikna með að tilkoma fé-
lagslegra íbúða á markaðinn muni hafa stór áhrif á fasteignaverð.
„Vissulega hefur það einhver áhrif,“ segir hann, „íbúðum f jölgar
á markaði, en kaupendum f jölgar líka að sama skapi, þannig að ég
held að áhrifin verði ekki mikil.“
Sigrún Þorgrímsdóttir, sölumaður hjá Húsakaupum, segir að
verð hafi staðið í stað síðustu mánuði. „Það má helst merkja örlitla
hækkun á litlum íbúðum," segir hún, „en það er óveruleg hækkun
og ekkert sem bendir til að verð haldist ekki stöðugt.“ ■
BLÓMSTRANDI MARKAÐUR
Fjöldi kaupsamninga hefur heldur aukist á árinu.
CÖMUL HÚSGÖCN i ELDHÚSKRÓKNUM
pSi
| . 1
Maraþonsamræður
í eldhúskróknum
Margrét Böndal getur ómögulega
valið eitthvað eitt sem hún held-
ur upp á öðru fremur. „Ég held svo
mikið upp á húsið mitt allt sem er
hérna á Hellisgötunnni í Hafnar-
firði,“ segir Margrét. „Eldhúskrók-
urinn er til dæmis alveg yndislegur.
Þar er ég með gamalt borð og stóla
frá ömmusystur minni og þarna sit
Eldhúskrókurinn henn-
ar Margrétar Blöndal er
hentugur fyrir „skýrslu-
tökur“ og garðurinn
hennar næstum eins
og landareign a la
Barbara Cartland.
ég með dætrum mínum og ræði öll
heimsins mál.“ Vinkonum Margrétar
er líka gjarnan boðið í eldhúsið og
„þar fara fram heilu skýrslutökurn-
ar“, segir Margrét hlæjandi. „Mér
finnst líka mjög gott þegar ég er að
skrifa að setjast niður með stílabók-
ina mína og byrja þar.“
Margrét segir ómögulegt annað
en að minnast örlítið á garðinn sinn,
sem hún segir unaðslegan drauma-
garð. „Þetta er sko allt að því svona
landareign a la Barbara Cartland,“
segir Margrét. „Nei, grínlaust, hann
er æðislegur, fullur af hrauni og
ofsalega villtum gróðri, og palli og
öllu tilheyrandi. Það er alltaf veður-
sæld og skjól hérna í mínum hluta af
Hafnarfirði," segir hún. Margrét
hyggur ekki á nein frí í sumar, en hún
er á milljón í fyrirtæki sem hún rek-
„Mamma átti llka góðar stundir við þetta
borð þegar hún bjó hjá Önnu móðursystur,"
segir Margrét.
VILLTUR GRÓÐUR OG HRAUN
Margrét segir garðinn unaðslegan frá náttúr-
unnar hendi en hún eigi þó ævintýralega
mörg handtök í honum.
ur með vinkonu sinni, Inger Önnu
Aikman, og heitir Alveg milljón. Við
erum að skrifa og búa til uppskrifta-
bæklinga fyrir Hagkaup sem heita
Æ, hvað á ég að hafa í matinn?, svo
eru að koma út bækur hjá okkur, ein
og jafnvel tvær eða þrjár, og svo er
ég auðvitað með þátt á Útvarpi Sögu
sem nefnist Fólk og fasteignir," segir
Margrét. En hvenær á að slaka á?
„Bara þegar ég dey,“ segir þessi káta
athafnakona hlæjandi að lokum. ■
Sumartilboð
Verð á Queen stærð
frá kr. 74.900
Sumarlilboð á húsgögnum
15 - 50% afsi. Pakkatilboð
GERIÐ GÓÐ KAI I’
Eitt niesta úrval landsins
af rafmagnsrúmum
actic
Sú besta
samkvæmt stærstu kírópraktora-samtökum í heimi
Verið velkomín
HEILSUNNAR V6Gt*
ÚAm*
Verð frá kr. 79.
Rýmingarsala
á eldri gerðum
Lísthúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheiIsa.is