Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Page 132

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Page 132
152 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Kópsvatni í Hrunamannahreppi 28. sept., en þar höfðu komið í ljós nokkrar byggingarleifar, sem ástæða þótti að kanna. í Reykholti var grafið niður á undirgöngin frá Snorralaug, þar sem þau koma upp á bæjarhólinn. Einnig var leitað að hinu forna bæjarstæði með löngum prófskurði og tókst að finna mörk þess með nokkurri vissu. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur annaðist þessa rannsókn. 17.—31. ágúst var haldið áfram fornleifaskráningu á Þingvöllum á vegum Þingvallanefndar. Miklu meiri mannvirkjaleifar hafa nú verið greindar á staðnum en virtust við fyrstu sýn og þekktar voru. — Unnu þeir Guðmundur Ólafsson og Kristinn Magnússon fornleifafræðingur að skráningunni. Rétt þykir að gera hér grein fyrir fornleifarannsóknum, sem gerðar eru án beinnar þátttöku safnsins, enda ber því að hafa umsjón með öðrum fornleifarannsóknum hér á landi. Bryndís Róbertsdóttir lauk skráningarstarfi sínu í Biskupstungum og vann að gerð fornleifaskrár og fornleifakorts yfir svæðið. Kristinn Magnússon lauk heimildasöfnun um minjar í Hafnarfirði á vegum Hafnarfjarðarbæjar og skilaði skýrslu sinni. Bjarni Einarsson vann að rannsóknum á fornbýlinu Granastöðum í Eyjafirði fyrir fé úr Vísindasjóði og Þjóðhátíðarsjóði. Á vegum Árbæjarsafns var rannsakaður grunnur hússins Aðalstrætis 8, þar sem reisa skyldi nýbyggingu. Fundust þó engar mannvirkjaleifar þar eldri en frá tímum Innréttinganna. Mjög umfangsmikil rannsókn var gerð á bak við Viðeyjarstofu vegna byggingarframkvæmda. Stóð Árbæjarsafn fyrir rannsókninni og fund- ust þar gamlar byggingarleifar frá allstórum byggingum, að því er virðist. Merkustu munir, sem þar fundust, voru vaxtöflur með áletrun og eru einstæðar hér á landi. Þá rannsökuðu bandarísku sérfræðingarnir Tom McGovern og Tom Amorosi, sem hér hafa dvalizt áður við rannsóknir, forna sorphauga í Bakkagerði og á Svalbarði í Þistilfirði. Voru þeir einnig við rannsóknir víðar. Húsafriðunarnefnd Nefndin hélt 6 fundi á árinu, en á árinu var hún skipuð að nýju með nokkrum breytingum. Þjóðminjavörður er formaður vegna embættis síns, en aðrir nefndarmenn eru Guðmundur Gunnarsson arkitekt, Hörður Ágústsson listmálari, Sturla Böðvarsson sveitarstjóri og Þor-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.