Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Side 2

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Side 2
22 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Vegnajsess hve mikill jarðvegur var horfinn úr kirkjustæðinu verður fátt sagt um kirkjuna annað en að hún var lítil, í mesta lagi 8x5 metrar að utanmáli. Líkur benda til að hún hafi verið endurbyggð a.m.k. tvisvar, ef nota má stoðarholurnar þrjár í norðvesturhorni kirkjustæðis sem vísbendingu. Kirkjugarðurinn hefur verið stækkaður einu sinni. Þá voru nokkur ummerki um mannvist á staðnum áður en þar var gerður kirkjugarður. Þar voru hús, citt eða tvö, einnig suðuholur og sorphaugur. Því miður var kirkjugarðurinn að Stóruborg orðinn illa farinn þegar uppgröftur hófst þar, þannig að um afar margt skortir þær upplýsingar sem æskilegt hefði verið að fá og ber þessi greinargerð þess merki. Lítið verður sagt um kirkjuna með vissu, dýpt á stoðarholum og gröfum kemur yfirleitt ekki fram eins og hún var í upphafi. Ástand beina gerði það að verkum að takmarkaðar upplýsingar fást um fólk það sem jarð- sett var. Þetta var nokkuð ljóst frá upphafi verksins, en þó töldum við ekki annað verjandi en að athuga þær leifar sem eftir voru af garðinum eins vel og hægt væri við þessar aðstæður og halda til haga þeim fróð- leik sem þar mætti fá þótt takmarkaður væri. Sumurin frá 1979 hefur verið unnið við uppgröft í bæjarrústum hinnar gömlu Stóruborgar. Er nú langt komið verkinu, en þó líklega svosem fjórðungur eftir. Þó er alltaf erfitt að fullyrða um það fyrirfram hve langan tíma uppgröftur tekur. Efri hluti bæjarhólsins er myndaður úr húsarústum, yfir 2 m að þykkt þar senr mest er. Þar eru rústir hvers hússins undir öðru og ættu að gefa okkur gott yfirlit yfir húsagerð á þessum stað um langan aldur. Skrá yfir grafir Enn hafa fáir kirkjugarðar á íslandi verið kannaðir með uppgrefti og því ástæða til að skýra sem gleggst frá því sem sést hcfur í einum af þcssum fáu. Hér fylgir því skrá yfir grafirnar á Stóruborg og verður hverri fyrir sig Iýst með fáum orðum og skýrt frá því sem séð varð af umbúnaði og útliti grafa. Tcikningar af hverri gröf í hlutfollunum 1:10 og Ijósmyndir af flestum þeirra verða varðvcittar í Þjóðminjasafni. Getið er um stellingar handa þar sem hægt var að sjá þær og annað er að einhverju leyti skar sig úr. Allar lágu beinagrindurnar á bakinu eftir því sem séð varð. Getið er um stærð grafa þegar hægt var að mæla þær með nokkurri vissu. Mér er að fullu ljóst að takmarkað gagn er að því að slá máli á beinagrindur cða leifar þeirra eins og þær liggja í gröfum sínum. Þó er hér tilfærð lengd beinalcifa eftir því sem hægt hcfur verið að mæla þær, enda var ekki fært að varðveita beinin sjálf, eins og fram hefur komið. Ef tiltekin er lengd að ökkla þýðir það að mælt er að liðamótum þar, þ.e. sést hefur endi á beini, sköflungnum. Oft sást ekki með vissu hvar bein cnduðu og mjög
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.