Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1907, Side 55

Skírnir - 01.04.1907, Side 55
Þjóðleikhús. 151 •og hér um bil 100000 árið 2000. Við reikninginn er það nð athuga, að bærinn vex of seint þegar sækir á öldina, on líklegast heldur fljótt framan af. Eftir því sem lands- mönnum fjölgar meira yfirleitt, eftir því flytja fleiri menn sig í kaupstaði og bæi, ef hér fer því fram, sem á sér stað í öðrum löndum, að sveitafólkinu fjölgi ekki. En svo heflr verið á íslandi frá 1801—1901. Hér er verið að gjöra ráð fyrir leikhúsi handa höf- uðstaðnum, en sá bær verður líklegast bær með 50,000 manns eftir 50 ár, og með 100,000 eftir 100, ár, og það alt þótt hér finnist ekkert gull, og þó hér séu engir námar. V. Leikhús, sem tæki 500 áhorfendur, ætti að nægja Reykjavík í 100 ár, eða jafnvel lengur. Fyrstu árin væri það svo stórt, að þar væri ■ ekki leikið oftar en nú er gert, eða um 40 sinnum á ári. En þegar Reykvíkingar væru orðnir 15000 manris, yrði að líkindum leikið þar þrisvar á hverjum tveimur vikum; þegar þeir yrðu 20000 yrði líklega að leika tvisvar í viku, og leikkvöldunum fjölgaði eftir því sem bærinn yxi. Þegar Reykvíkingar væru orðnir nálægt 50000 yrði líklega leikið hér á hverju kvöldi allan veturinn. Þegar bærinn væri orðinn of stór fyrir leikhús, sem tækí 500 áhorfendur, mætti víst byggja ofan á áhorfendasalinn fyrir pall með liðugum 100 sætum, svo leikhúsið tæki liðug 600 manns, og svo mætti lengja leiktímann, byrja fyr og hætta seinna að vorinu, og með því móti yrði leikhúsið væntanlega nógu ;stórt, þótt 100000 manns ættu heima í bænum. Leikhús, sem tæki 500 áhorfendur og hefði nægi- lega stórt leiksvið, mundi kosta eitthvað nálægt því, sem eftirfarandi áætlun gjörir ráð fyrir. Húsið verður .að vera úr steini. Ahorfendaplássið 24 ál. á breidd og 30 ál. á lengd og 12 á hæð. Leiksviðið ætti að vera 24

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.