Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 52

Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Soðið lambakjöt Matur og matgerð „Hætta tennur að vaxa í fólki?“ spyr Kristín Gestsdóttir, en tennur mannins hafa minnkað um helming síðan á dög- um Neanderdalsmannsins. ÞEGAR ég var lítil vorum við systkinin hvött til að borða óbarinn harðfisk til að styrkja tennurnar. Slíkt góðgæti er víst ekki til lengur, en dásamlegt var að sjúga og tyggja harðfiskinn sem við börðum á stórum steini. Kona nokkur sem borðar stundum í mötuneyti hér fyrir austan furðar sig á því hvenig unglingar sem þar borða ganga frá mat sínum. Þeir skilja eftir kjötið þegar á borðum er soðið lambakjöt í karrý eða íslensk kjötúpa. Það er ekki bara feita kjötið sem skilið er eftir, ég mæli ekki með að það sé borð- að. Þetta eru þó þeir réttir sem margir hafa mikið uppáhald á og öllum þótti hinn besti matur fyrir nokkrum árum. En þegar réttir með hökkuðu kjöti eru á borðum taka unglingarnir vel til matar síns. Það virðist sem þeir nenni ekki að tyggja. Þótt við fáum ekki lengur óbarinn harð- fisk, er sá barði og mjúki líka góður fyrir tennurnar. Hrátt grænmeti svo sem rófur, gul- rætur og hvítkál eigum við að láta börnin naga en ekki rífa niður ofan í þau, og umfram allt: skafið ekki gulræturnar, bara þvoið vel, mest vítamín er við hýðið. _______Lambakjöt í karrí________ 1 -11/2 kg fituhreinsað súpukjöt __________1 -2 tsk. salt________ _________2 lárviðarlauf_________ 1/2 meðalstór blaðlaukur (púrra) sjóðandi vatn svo að rétt fljóti ___________yfir kjötið__________ 1 -2 tsk. karrí Hveiti og vatn hrist saman: 1. Skerið sem mest af fitu frá kjöt- inu, raðið því þétt ofan í pott sem rétt rúmar kjötið, látið beinin vera í. Stráið salti yfir og leggið lárviðarlauf ofan í. Hellið sjóðandi vatni yfir svo að tæp- lega fljóti yfir. Best er að hafa vatnið sem minnst svo að sós- an verði sterk og góð. Sjóðið við hægan hita í 60-75 mínútur. 2. Kljúfið blaðlaukinn, þvoið hann með því að láta kalt vatn úr krananum renna inn í hann, skerið í sneiðar og setjið út í pottinn. Sjóðið áfram í 10-15 mínútur. 3. Takið kjötið úr pottinum og haldið heitu. 4. Hristið saman hveiti, vatn og karrí, hrærið út í soðið og jafnið sósu. Setjið kjötið út í og látið sjóða í 5 mínútur. Meðlæti: Soðin hrísgrjón. Athugið: Karrí er mjög mis- munandi enda blanda af ýmsu kryddi. Þið verið sjálf að finna út hve mikið á að nota. Soðið lambakjöt með káli (fricassée) 1 -11/2 kg fituhreinsað súpukjöt _________1V2-2 tsk. salt_________ sjóðandi vatn svo að rétt fljóti __________yfir kjötið____________ 3-4 meðalstórar gulrætur 1/2 blaðlaukur (púrra)_______ 1 meðalstór blómkálshaus ________vænn biti hvítkál________ ________1 meðalstór rófa_________ ________3 stórar kartöflur_______ nokkrar greinar fersk steinselja hveiti og vatn hrist saman 20 g hreinn rjómaostur eða 1/2 dl rjómi 1. Skerið sem mest af fitu frá kjöt- inu, raðið því þétt ofan í pott sem rétt rúmar kjötið, látið beinin vera í. Stráið salti yfir. Hellið sjóðandi vatni yfir svo að tæplega fljóti yfir. Best er að vatnið sé sem minnst, svo að sósan verði sterk og góð. Sjóð- ið við hægan hita í 60 - 75 mín- útur. (Sjóðið kartöflur, rófur og hvítkál sér í potti en gulrætur, blaðlauk, blómkál og steinselju- leggi með kjötinu). 2. Afhýðið kartöflur, skerið i þykkar sneiðar, afhýðið rófur, skerið í litla bita, saxið hvítkálið stórt. Sjóðið þetta í saltvatni í 10-15 mínútur. 3. Þvoið gulrætur vel, skerið í sneiðar, látið kalt vatn úr kran- anum renna inn í blaðlaukinn, skerið í sneiðar. Setjið hvort tveggja í súpupottinn ásamt leggjum af steinselju (geymið laufið) og sjóðið í 7 mínútur, takið þá blómkálið í hrislur og sjóðið með í aðrar 7 mínútur. 4. Takið kjötið úr pottinum og haldið heitu, hristið saman hveiti og vatn og hrærið út í soðið, hitið rjómaostinn t.d. í ör- bylgjuofni og hrærið út í eða setjið rjóma út í. 5. Klippið steinseljuna út í, takið steinseljuleggina úr, setjið kjötið aftur í pottinn, hellið vatn- inu af grænmetinu í hinum pott- inum en setjið grænmetið sam- an við, berið fram í pottinum eða hellið í skál. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags íslensk ljóð við ný lög VELVAKANDA barst eftirfarandi: „Mér sárnar í sál að hlusta á fögur íslensk ljóð, sungin við ný lög, ljóð sem þegar eiga sitt lag, eins og í kvöld, 27. janúar, Sofðu unga ástin mín. Eg undrast að tón- skáldin skuli ekki fremur semja lög við ný ljóð, sem ekki hafa eignast lag. Hugsið þið ykkur ef einhver færi að semja nýtt „lag“ við Carmen eða La Traviata. Þökk sé Atla Heimi fyrir hans fögru lög við ljóð Jónas- ar, sem ekki áttu lag fyrr, sungin frábærlega af Signýju Sæmunds- dóttur. Kannski eru þau það besta sem við eign- uðumst á síðsta ári. Kona. Hver þekkir þessa vísu? PALL hafði samband við Velvakanda og bað hann að birta eftirfarandi: Ég mætti héma um morguninn manni on’ úr sveit og viltu vita vinur minn hann var í kvenmannsleit. Kúskinsskó var karlinn með og kurfslegur að sjá og í skinnsokkum upp á hnéð var aulabárður sá Þetta er fyrsta erindi af tólf og hefur Páll áhuga á að vita hver sé höfundur þess. Hafi ein- hver upplýsingar um þetta er hann vinsam- lega beðinn að hafa sam- band við Pál í síma 568 5322. Góð þjónusta í Vogue MIG langar að benda á góða þjónustu í einni af verslunum bæjarins. Ég keypti gardínukappa í versluninni Vogue í Mjódd á síðasta ári. Þeg- ar ég svo þvoði hann (eftir leiðbeiningum) lit- aðist hann. Fór ég því með hann í verslunina og vonaðist eftir einhverj- um sárabótum, t.d. af- slætti af öðrum gardín- um. En þegar ég sýndi afgreiðslukonunni kapp- ann bauð hún mér strax að velja mér aðrar gard- ínur. Fann ég annan en þá var efni í stíl við hann búið og hringdi þá konan í aðrar verslanir og fann efnið í tveimur öðnim sveitarfélögum og lét senda sér það. Er óhætt að fullyrða að þetta er besta þjónusta sem ég hef fengið og kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Sigríður Steingrímsdóttir. Tapað/fundið Skotthúfa í óskilum LÖNG skotthúfa með bláum dúski fannst á Snorrabraut, Lauga- vegsmegin. Húfan er handprjónuð, mikið munstruð, svo sem hvít- ar stjörnur og bleikir karlar. Ef einhver kann- ast við lýsinguna má hafa samband við Hrafn- hildi í vs: 553 2940 eða hs: 565 6402. Hlífðarplast af barnavagni HVÍTT hlífðarplast af barnavagni fauk af svöl- um við íbúð á Háaleitis- braut í síðustu viku. Viti einhver um plastið er hann beðinn að láta vita í síma 588 6134. Kvenreiðhjól 1 óskilum BLEIKT kvenreiðhjól er í reiðuleysi í Hlíðunum. Eigandi má hringja í síma 568 7215 að kvöldi. Gullarmband týndist GULLARMBAND, gull- keðja með hlekkjum, sverum með hvíta- gullsplötu ofan á, týndist laugardaginn 10. janúar, að öllum líkindum á Sól- on Islandus, eða á leið- inni Hverfisgata, Flóka- gata. Skilvis finnandi vinsamlega hafi sam- band í síma 562 0061. SKÁK llmsjón Margeir Pétnrsson STAÐAN kom upp á fyrsta stórmóti ársins, Hoogovens mótinu í Wijk aan Zee í Hollandi. Heimamaður- inn Loek Van Wely (2.605) var með hvítt, en Englending- urinn Michael Adams (2.670) hafði svart og átti leik. 30. - Hc3! (30. - Ha4! sem hótar líka 31. - Hxa3! nægir einnig til vinn- ings) 31. Hxe5 SVARTUR leikur og vinnur - dxe5 32. bxc3 (Þiggur hróksfórnina. Svartur hót- aði hvort sem er að Ieika 32. - Hxa3) 32. - Db3+ 33. Kal - Dxa3+ 34. Kbl - Db3+ 35. Kal - Hxc3 36. Bbl - Da3+ 37. Ba2 - Hc2 og hvítur gafst upp, því hann er óverjandi mát í næsta leik. BRIDS llmsjón (lUómiiiulnr Páll Arnarson NORÐMENNIRNIR Helness og Helgemo urðu í þriðja sæti í hollenska boðsmótinu Cap Gemini, sem fram fór nú um miðjan janúai'. Þeir hafa tvívegis unnið þetta mót, árin 1994 og 1996, sem er frábært afrek. Hér er spil frá nýliðnu móti, þar sem þeim félögum tekst að tæla Hollendinginn Westerhof til að velja ranga leið í úrspilinu: Suður gefur; NS á hættu. Norður AÁKG9 ¥Á7 ♦ DG97 *Á Austur A85 VK532 ♦ K4 AD10954 Suður A10762 V86 ♦ Á98532 A6 Vestur Norður Austur Suður Helegmo Jansen Helnes Westerhof Pass 1 lauf Dobl 1 lyarta 2 tíglar Dob Redobl 31auf 3tígiar 4 lauf 5 tígiar Allir pass Dobl Helgemos á tveimm' tíglum er svonefnt „stuðningsdobl", sem lofar þrílit í hjarta - lit makkers. Utspil Helgemos var vei heppnað - lítið hjarta undan ásnum. Hann þóttist vita að makker ætti aðeins fjórlit, svo það var ólíklegt að sagnhafi væri með einspil. Westerhof stakk upp drottningu blinds og Helness drap strax á kónginn, alls óhræddur. Síðan skipti hann yfír í tígulfjarka! Setjum okkur nú í spor sagnhafa. Frá hans bæjardyrum lítur út fyrir að austur sé með AK í hjarta. Og sé svo, er útilokað að hann haldi einnig á tígulkóng, því þá er vandséð hvernig vestur gat opnað. Westerhof stakk því upp tígulás í þeirri veiku von að kóngurinn væri blankur. Og fór einn niðui- í spili sem lá allan tímann til vinnings. Vestur *D43 VÁ104 ♦ 7 ♦ KG8732 Víkverji skrifar... ÓTT skattyfirvöld séu búin að auglýsa framtalsfresti er ekki auðvelt fyrir samviskusama fram- teljendur að hefja framtalsgerð því ekki er búið að dreifa eyðublöðun- um. Skattgreiðandi á Akureyri sem þarf að útfylla ökutækjaskýrslu vildi hafa tímann fyrir sér við það verk en greip í tómt síðastliðinn mánudag þegar hann fór á skatt- stofuna til að ná sér í eyðublað. Það var ekki komið úr prentun. Á staðn- um hitti hann nágranna sinn sem þurfti að ná sér í önnur eyðublöð en hann hafði sömu sögu að segja, ekki var hægt að fá nema hluta af blöð- unum. Er nokkurt mál fyrir skattyf- irvöld að bæta úr þessu með því að dreifa eyðublöðunum áður en farið er að reka á eftir fólki með framtal- ið? XXX TÍMARIT Háskóla íslands kynnir meðal annars rannsóknir við Há- skólann. í nýjasta tölublaðinu er rætt við Gunnai- Karlsson, prófessor í sagnfræði, um söguvitund unglinga. Gunnar tók fyrh- Islands hönd þátt í samevrópskri könnun um söguvit- und unglinga og náði könnunin til stórs úrtaks 15 ára unglinga í á þriðja tug landa í Evrópu. Spurt var út í hugmyndir ungling- anna um fortíð, framtíð og heiminn, hvað þeim fyndist mikilvægt, afstöðu þeirra til lýðræðis og hvað þau teldu ráða gangi sögunnar. Gunnai- segist í samtalinu hafa haft vissar áhyggjur af því að íslenzkir unglingar kynnu að vera menningarlega afskiptir í uppeldinu, en nú þegar búið er að vinna úr töluverðum hluta könnunar- innar segist Gunnar hafa fengið tals- verða hughreystingu við að lesa nið- urstöðurnar. Enginn hróplegur munur hafi komið í ljós á íslenzkum unglingum og nágrönnum okkar og íslenzkir unglingar reyndust hvergi vera á yzta kanti í svörum sínum. Gunnar staðsetur íslenzka unglinga að ýmsu leyti á milli vestrænna tækniþjóðfé- laga, eins og Norðurlandabúa, Breta og Frakka og austur-evrópsku þjóð- anna. Honum sýnast íslenskir ung- lingar heldur þjóðernissinaðri en þeir fyrrnefndu en ekki eins og Austur-Evrópumenn. XXX ÉRSTAKT er að íslendingar virðast talsvert trúaðri en Vest- ur-Evrópumenn, en aðeins helming- ur íslenzkra unglinga veit að hann er lútherstrúar og rúmlega 20% vita ekki hvaða trúflokki þau tilheyra. Þessu svara unglingarnir árið eftir að þau fermast, þannig að vart er nú trúfræðslan mjög söguleg, eins og Gunnar kemst að orði. Um unglingana okkar segir Gunnar svo: „Þeir eru ekkert sér- staklega söguglaðir, þeir bera ekki merki þess að við séum af neinni sérstakri söguþjóð, eða hámenning- arþjóð öðrum fremur en þeir eru ekki menningarsnauðir heldur."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.